Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 8
Við Færeyjar Mörg uppsjávarskipanna eru nú á kolmunnaveiðum.
Níu íslensk uppsjávarskip voru í
gær á kolmunnaveiðum vestur af
Færeyjum; Venus NS, Víkingur AK,
Aðalsteinn Jónsson SU, Guðrún
Þorkelsdóttir SU, Jón Kjartansson
SU, Bjarni Ólafsson AK, Ísleifur
VE, Börkur NK og Beitir NK. Þá
voru Heimaey VE og Huginn VE á
leið á miðin.
Samkvæmt upplýsingum frá Ingi-
mundi Ingimundarsyni, útgerðar-
stjóra uppsjávarskipa hjá Brimi hf.,
hefur verið heldur rólegt á miðunum
síðustu daga. Í gærmorgun fékk
Venus þó um 360 tonn eftir að hafa
togað í hátt í sólarhring og var kom-
inn með um 2.200 tonn. Ráðgert var
að skipið héldi heimleiðis til Vopna-
fjarðar í dag eftir eitt hol til við-
bótar. Veður hefur verið sæmilegt á
miðunum síðustu daga.
Kolmunnaafli ársins nálgast nú
200 þúsund tonn, samkvæmt yfirliti
um afla úr deilistofnun á heimasíðu
Fiskistofu, en alls er kvótinn 247
þúsund tonn. Af þessum afla hafa
rúmlega 11 þúsund tonn verið veidd
innan íslensku lögsögunnar, yfir 140
þúsund tonn við Færeyjar og yfir 44
þúsund tonn á alþjóðlegu hafsvæði
vestur af Írlandi. Mestur afli í einum
mánuði var í maí þegar tæplega 80
þúsund tonn veiddust við Færeyjar.
aij@mbl.is
Á kolmunnaveiðum
vestur af Færeyjum
Aflinn nálgast 200 þúsund tonn á árinu
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Formaður Viðreisnar ofbýðurPáli Vilhjálmssyni með frum-
legum útleggingum á hag- og fjár-
málafræðum:
Íslenska krónanber ábyrgð á
kreppunni vegna
Kínaveirunnar, seg-
ir formaður Við-
reisnar efnislega. Í
Evrópu er engin
verðbólga eins og
hér á Íslandi, kemur
úr koki Tobbu Kötu.
Formaðurinn veit
ekki, eða þykist ekki
vita, að Evrópu
glímir við verð-
hjöðnun, sem er
margfalt verri en
verðbólga.
Allir sem eitthvað kunna í hag-fræði, lögverndaðir eða ekki,
vita þetta. Tobba Kata kann ekki
hagfræði og heldur ekki einföldustu
atriði um áhrif Kínaveirunnar á eft-
irspurn í ferðaþjónustu – sem kem-
ur krónunni nákvæmlega ekkert
við.
En Tobba Kata kann að spilagolf, ójá, enda hvorki verð-
bólga né verðhjöðnun á vellinum í
Hveragerði. Ónei, sei, sei.“
En Páll má ekki gleyma því aðformaðurinn kann einnig sitt
hvað fyrir sér í persónulegum fjár-
málafræðum. Þá var viðmiðunin
höfð í kringum milljarðinn, ef rétt
er munað og ekki farið eftir alfara-
leiðum við að koma því öllu í kring.
Þau Jón og Sigga náðu aldrei uppí slík undur. Svo klauf formað-
urinn Sjálfstæðisflokkinn sem borið
hafði hana á höndum sér til þess
eins að geta tekið þátt í borgarsukk-
inu með Degi, sérfræðingi í því.
Páll
Vilhjálmsson
Enn veifar hún
fræðunum
STAKSTEINAR
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Illa hefur gengið að fá íslenskar
gúrkur í verslunum Bónus undan-
farnar vikur. Að sögn Guðmundar
Marteinssonar, framkvæmdastjóra
Bónuss, bendir lítið til annars en að
svo verði áfram. „Uppskeran er ekki
í eðlilegu horfi og það er ekki alveg
ljóst hvers vegna það er að gerast. Í
tilkynningu frá sölufélaginu í síðustu
viku kom fram að ræktun hafi gengið
afburða illa og sé langt undir vænt-
ingum. Það eigi þó að breytast með
nýju húsi sem tekið verður í notkun á
næstunni,“ segir Guðmundur og
bætir við að verslunin sé að flytja inn
gúrkur frá Hollandi til að mæta eft-
irspurn.
„Tilkynningaflæðið mætti vera
betra frá sölufélaginu. Óánægjan
beinist að búðunum, en við erum að
auka innflutning til að mæta þessu.“
Aðspurður segir hann ljóst að við-
skiptavinir verslunarinnar vilji velja
íslenskt. Af þeim sökum sé ekki gott
hversu illa virðist ganga að fá ís-
lenskt grænmeti. „Það er langt síðan
það hefur verið svona mikill skortur
á gúrkum. Svo erum við líka að lenda
í skorti á tómötum, en við höfum enn
ekki fengið skýringu á því. Ég á þó
von á því að það lagist.“
Tómata- og gúrkuskortur í Bónus
Illa gengur að fá íslenskar gúrkur og
tómata Flytja inn hollenskar gúrkur
Skortur Engar gúrkur hafa verið
fáanlegar í verslunum Bónuss.
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15