Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Hlutfall fullorðinna sem notuðu
ljósabekki einu sinni eða oftar síð-
ustu 12 mánuði er nú komið niður í
um 6%, miðað við 11% í fyrra. Hlut-
fallið hefur ekki verið lægra frá því
að kannanir hófust árið 2004. Hlut-
fall þeirra sem höfðu notað ljósa-
bekki var hæst hjá aldursbilinu 18 –
24 ára, eða 21%.
Frá þessu er greint á heimasíðu
Geislavarna ríkisins og í fréttinni
er niðurstöðum um minnkandi
notkun ljósabekkja fagnað, enda
fylgi notkun þeirra aukin hætta á
húðkrabbameini. Norrænar geisla-
varnastofnanir hafa ráðið fólki frá
því að nota ljósabekki. Fyrrnefndar
niðurstöður fengust í árlegri könn-
un á notkun ljósabekkja á Íslandi
sem framkvæmd var af Gallup fyrir
hönd samstarfshóps Geislavarna,
embættis landlæknis, húðlækna og
Krabbameinsfélagsins.
Niðurstöðurnar sýndu m.a. einn-
ig að um 12% svarenda höfðu
brunnið a.m.k. einu sinni af völdum
ljósabekkja eða sólar á síðast-
liðnum 12 mánuðum, sem er það
lægsta frá árinu 2013, þegar þessi
spurning var fyrst lögð fyrir. Í
fyrra var sama hlutfall 19% en var
27% árið 2013.
Frá árinu 2004, þegar mælingar
á notkun ljósabekkja hófust, hefur
dregið verulega úr notkun þeirra.
Árið 2004 höfðu um 30% fullorð-
inna notað ljósabekki í einhverjum
mæli síðustu 12 mánuði, en frá
árinu 2013 hefur þessi tala verið
um 10%, þar til nú þegar hlutfallið
er komið niður í 6%.
Vegna kórónufaraldursins voru
sólbaðsstsofur lokaðar í rúman
mánuð síðasta vor. aij@mbl.is
Dregur úr
notkun
ljósabekkja
Færri brunnu í sól
eða ljósabekkjum
Morgunblaðið/Úr safni
Fækkun Um 6% fullorðinna hafa
notað ljósabekki síðustu 12 mánuði.
Kvenfélagasamband Íslands (KÍ)
stendur fyrir áheitabakstri í sólar-
hring, sem hefst síðdegis í dag kl.
18 og stendur til sömu stundar á
laugardag. Tilefnið er söfnunin
„Gjöf til allra kvenna á Íslandi“ sem
kvenfélögin hafa staðið fyrir í ár í
tilefni 90 ára afmælis KÍ.
Baksturinn hefur fengið grænt
ljós frá almannavörnum og heil-
brigðiseftirlitinu og fer fram í deili-
eldhúsinu Eldstæðinu við Nýbýla-
veg 8 í Kópavogi, Dalbrekkumegin.
Kvenfélagskonum og áhugasömum
stendur til boða að taka þátt í við-
burðinum með því að koma og
baka, pakka eða afgreiða.
Einnig stendur til boða að standa
vaktina í Jólaþorpi Hafnarfjarðar
um helgina. Hægt er að fara inn á
vefsíðuna gjoftilallrakvenna.is og
velja sér vaktir. Afmælisnefnd KÍ
mun svo hafa samband og staðfesta
vakt og tíma. Hámarksfjöldi í
hverju hólfi er 10 einstaklingar,
samtals geta 30 verið á hverri vakt
sem skiptist niður í þrjú hólf. Á
sömu síðu er svo einnig hægt að
panta og kaupa bakkelsið, margs
konar tegundir. Boðið er upp á
heimsendingu eins og fólki hentar.
Einnig er hægt að kaupa armbönd
og súkkulaði á síðunni og leggja til
frjáls framlög.
Kvenfélagasambandið er sam-
starfsvettvangur og málsvari kven-
félaganna í landinu. Um er að ræða
fjölmennustu kvennahreyfingu á Ís-
landi, með 17 héraðssambönd og
154 kvenfélög, alls um 5.000 félaga.
Markmið söfnunarinnar í ár er að
ná um 36 milljónum króna í hús.
Kvenfélagskonur safna fyrir tækj-
um og hugbúnaði þeim tengdum
sem koma til með að gagnast öllum
konum um landið allt. Um er að
ræða mónitora og ómtæki, ný eða
uppfærð, og rafrænar tengingar á
milli landsbyggðar og kvennadeild-
ar Landspítalans.
Áheitabakstur í sólarhring
Morgunblaðið/Eggert
Jólaþorpið Kvenfélagskonur verða á ferðinni í Hafnarfirði um helgina að
selja afurðir áheitabaksturs, armbönd, súkkulaði og fleira gott.
Stór liður í fjár-
öflun Kvenfélaga-
sambands Íslands
DRAUMA
JÓLA-
GJÖFIN
GLÆSILEG
ULLARKÁPA
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
BLACK
FRIDAY
TILBOÐ
af öllum vörum frá
ZHENZI, ZE-ZE og NO SECRET20% afsláttur
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Svartur föstudagur
20%
afsláttur
af öllum
vörum
föstudag og
laugardag
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.isEngjateigi 5 // 581 21 // hjahrafnhildi.is
Skoðið // hjahrafnhildi.is
BLACK FRIDAY
30-70%AFSL.
ÚT 1. DESEMBER
MOSMOSHJAKKI
VERÐ: 60.980
NÚ: 42.686
Þarftu að láta
gera við?
FINNA.is