Morgunblaðið - 27.11.2020, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Ársþing Hafnasambands Íslands fer
fram í dag og hefst klukkan níu. Í
fyrsta skipti í rúmlega 50 ára sögu
sambandsins verður þingið rafrænt.
Á þinginu verða lagðar fram og
ræddar þrjár tillögur, um orkuskipti
í höfnum, fyrir-
hugaðar breyt-
ingar á hafnalög-
um og hugmyndir
um breytingar á
vigtarreglugerð.
Á þinginu mun
Gísli Gíslason,
fyrrverandi hafn-
arstjóri Faxaflóa-
hafna, láta af for-
mennsku í Hafna-
sambandinu. Gísli hefur verið
hafnarstjóri frá árinu 1987. Fyrst á
Akranesi sem bæjar- og hafnar-
stjóri, en frá árinu 2005 sem hafn-
arstjóri Faxaflóahafna. Hann lét af
því starfi síðsumars. Þessum starfs-
titli fylgdi þátttaka í starfi hafna-
sambandsins – fyrst Hafna-
sambands sveitarfélaga og síðar
Hafnasambands Íslands. Þar var
hann varamaður í stjórn frá 1987-
1994, en í stjórn frá 1994-2004 og síð-
an formaður stjórnar frá þeim tíma
til þessa fundar.
Gísli segir að nú skilji leiðir eftir
langa og afar skemmtilega og
ánægjulega vinnu að málefnum
hafnanna. „En því miður gerist það á
fundi þar sem ekki er tækifæri til fal-
legrar samveru með tilheyrandi og
hefðbundinni gleðistund.“
Kjörnefnd mun á þinginu í dag
gera tillögu um að Lúðvík Geirsson,
hafnarstjóri í Hafnarfirði, taki við
formennsku af Gísla. Hafna-
sambandsþingið átti að fara fram
dagana 24.-25. september sl. í Snæ-
fellsbæ en því varð að fresta vegna
heimsfaraldursins. Í staðinn verður
þingið 2022 haldið þar. sisi@mbl.is
Fyrsta rafræna
þing hafnanna
Gísli Gíslason lætur af formennsku
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Löndun Hugmyndir um breytingar
á vigtarreglugerð verða ræddar.
Gísli Gíslason
vísað til verkstæðisbyggingar sem
Steindór Einarsson reisti, en hann
rak á síðustu öld umfangsmikla bíla-
útgerð, Bifreiðastöð Steindórs, sem
var mjög þekkt fyrirtæki á sinni tíð.
Árið 2016 var nýtt deiliskipulag
auglýst og þá hét reiturinn Byko-
reitur og var þá vísað til þess að í
fyrrverandi verkstæðishúsinu rak
Byko um árabil verslun. Fékk það þá
nafnið Byko-húsið. Í erindinu sem nú
liggur fyrir í borgarkerfinu heitir
lóðin Steindórsreitur.
Í deiliskipulaginu frá 2016 var gert
ráð fyrir íbúðum og hóteli. Enn á ný
var deiliskipulag auglýst árið 2019.
Þá var búið að falla frá fyrri hug-
myndum um hótel en íbúðum fjölgað
frá því sem áður var áformað.
Húsið sem Steindór Einarsson
reisti á sínum tíma sem verkstæði
var síðar innréttað fyrir verslun.
Sem fyrr segir rak Byko verslun þar
um árabil. Síðar var þar verslunin
Víðir auk þess sem Pósturinn var þar
með starfsemi. Undanfarið hefur
húsið staðið autt og er það farið að
láta á sjá eftir að veggjakrotarar
fóru um það höndum.
Húsið er 1.483 fermetrar að stærð.
Á jólaföstu árið 1939 stóð Tónlistar-
félagið í Reykjavík fyrir miklum
menningarviðburði í húsinu. Flutt
var „Sköpunin“ eftir Joseph Haydn
og stjórnandi var Páll Ísólfsson. Var
þetta fyrsta óratórían sem flutt var
hér á landi. Ekkert annað hús í bæn-
um rúmaði bæði kór og hljómsveit,
sem voru um 100 manns. Utan á hús-
inu er skjöldur til minningar um
þennan menningarviðburð.
Niðurrif hússins heimilað
„Ekki er gerð krafa um varðveislu
neins húss á skipulagsreitnum,“ seg-
ir í deiliskipulagstillögunni frá 2016.
Á fundi byggingafulltrúa Reykja-
víkur sl. þriðjudag var tekin fyrir
beiðni U22 ehf. um að fá að rífa versl-
un og vörugeymsla á lóð nr. 79 við
Sólvallagötu. Var hún samþykkt.
Áskilin var lokaúttekt byggingarfull-
trúa. Enn fremur var áskilið sam-
þykki heilbrigðiseftirlits. Afgreiðslan
er án staðfestingar skipulags- og
samgönguráðs, segir í fundargerð.
Nýjar íbúðir í Vesturbænum
Fjögur íbúðarhús verða reist á Steindórsreit við Hringbraut Heimila niðurrif á Byko-húsinu
Morgunblaðið/sisi
Byko-húsið Það mun víkja fyrir nýjum byggingum. Húsið hefur orðið fyrir barðinu á veggjakroturum undanfarið.
Tölvumynd/Plúsarkitektar
Ný byggð Fjögur hús munu rísa á Steindórsreitnum við Hringbraut, alls 9.184 fermetrar. Í húsunum verða 83 íbúðir.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Plúsarkitektar hafa sent erindi til
Reykjavíkurborgar þar sem sótt er
um leyfi til að byggja fjögur tveggja
til fimm hæða fjölbýlishús á svoköll-
uðum Steindórsreit. Í húsunum er
gert ráð fyrir 83 íbúðum, atvinnu-
rýmum á götuhlið v/Hringbraut og
bílakjallara fyrir 82 bíla. Erindinu
var vísað til umsagnar verkefnis-
stjóra skipulagsfulltrúa. Á fundi á
þriðjudaginn samþykkti bygging-
arfulltrúi niðurrif húsa á reitnum.
Umrædd lóð, Sólvallagata 79, er á
besta stað í Vesturbænum, gegnt
Eiðsgranda og JL-húsinu. Lóðarhafi
er U22 ehf., dótturfélag Kaldalóns
hf. +ARKITEKTAR eru hönnuðir
bygginganna.
Húsin verða 9.184 fermetrar
Fram kemur í umsókninni um
byggingarleyfi að húsin fjögur verði
alls 9.184 fermetrar. Þar af verður
atvinnurými 584 fermetrar. Húsin
verða steinsteypt, einangruð að utan
og með loftræstri klæðningu. Bíla-
kjallarinn verður 2.700 fermetrar.
Á fundi borgarráðs í febrúar sl.
voru kynnt drög að samkomulagi
milli Reykjavíkurborgar og lóðar-
hafa Sólvallagötu 79, þ.e. U22 ehf. og
K. Steindórsson ehf. Greiðslur fyrir
byggingarrétt skyldu vera krónur
59.160.000. Samið var um, með tilliti
til áforma Reykjavíkurborgar, að á
reitnum verði 20% íbúða skilgreind
sem leiguíbúðir, stúdentaíbúðir,
leiguíbúðir Félagsbústaða hf., bú-
seturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir
aldraða.
Reiturinn sem um ræðir afmark-
ast af Hringbraut, Framnesvegi og
Sólvallagötu. Lengi hefur staðið til
að þétta byggð á svæðinu og byggja
á reitnum. Í desember 2006 sam-
þykkti borgarráð deiliskipulag fyrir
reitinn og var þar gert ráð fyrir að 70
íbúðir yrðu byggðar. Ekkert varð af
framkvæmdum þá. Í deiluskipulag-
inu frá 2006 var umrædd lóð nefnd
Steindórslóð við Hringbraut. Var þar
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
JÓLAPERLUR
Vefuppboð nr. 513
Þorvaldur Skúlason
vefuppboð hefst laugardag
28. nóvember - 9. desember
Louisa Matthíasdóttir
Forsýning á verkunum hjá
Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is