Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft
mikil áhrif á starfsemi fé-
lagasamtaka. Kvenfélag Garða-
bæjar er þar engin undantekning.
Síðasti félagsfundur var haldinn 3.
mars sl. og síðan þá hefur mörgum
viðburðum félagsins verið aflýst
eða frestað.
Stjórn kvenfélagsins hefur reynt
að halda á spilunum með ýmsu
móti, eins og með tölvupóstum til
félagskvenna og borið út dreifibréf
til þeirra með upplýsingum. Einnig
hefur vefur félagsins verið upp-
færður reglulega, kvengb.is, og
facebooksíða félagsins.
Fella hefur þurft niður árlegt
fjáröflunarkvöld, vorferð til Vest-
mannaeyja bíður og hætta þurfti
við að bjóða bæjarbúum upp á ár-
legt hátíðarkaffihlaðborð, sem hef-
ur verið stærsta fjáröflun félags-
ins. Fjáraflanir hafa því ekki skilað
neinu í kassann. Helena Jónas-
dóttir, formaður félagsins, segir
erfitt hafa verið að sitja algjörlega
hjá og styrkja ekki neitt, þannig að
stjórnin færði Brunavarðafélagi
Reykjavíkur, sem eru starfsfólk
slökkviliðs og sjúkraflutninga á
höfuðborgarsvæðinu, smá styrk í
vor. Nú var jafnframt ákveðið að
styrkja styrktarsjóð Garðasóknar
um 200 þúsund krónur, sem rennur
til þeirra sem á þurfa að halda.
Stjórn félagsins taldi rétt að
halda ekki jólafund í byrjun desem-
ber, þótt búið hafi verið að und-
irbúa hann. Þá er ekki gert ráð
fyrir þátttöku félagsins í árlegri
kvennamessu Garðasóknar á fyrsta
sunnudegi í aðventu.
Kvenfélag Frá félagsfundi Kvenfélags Garðabæjar, fyrir Covid-19.
Félagasamtök finna
fyrir faraldrinum
Kvenfélag Garðabæjar styrkir
Garðasókn þótt engar séu fjáraflanir
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Veitingastaðurinn Maika’i verður
opnaður í Smáralind í Kópavogi í
næsta mánuði. Maika’i verður í rými
þar sem Smáralind og Norðurturn
mætast, þar sem bakarí Jóa Fel. var
áður til húsa. Mun Maika’i deila
rýminu með kökuþjónustunni Sæt-
um syndum.
„Við fundum fyrir eftirspurn eftir
skálunum okkar í Kópavogi og hjá
fólki sem starfar í bæjarfélaginu.
Þegar þetta tækifæri bauðst vorum
við ekki lengi að stökkva á það,“ seg-
ir Ágúst, en þetta er fjórði Maika’i-
staðurinn á höfuðborgarsvæðinu.
Hina þrjá staðina má finna á Hafn-
artorgi, inni á kaffihúsinu Sætum
snúðum í Mathöll Höfða og í Class-
anum Sport við hlið líkamsrækt-
arstöðvarinnar World Class Laug-
um. Hafa staðirnir notið gríðarlegra
vinsælda, en auk þeirra þriggja er
fyrirtækið með matarvagn á sínum
snærum.
Reksturinn gengið vel
Aðspurður segir Ágúst Freyr
Hallsson, annar eigenda Maika’i, að
rekstur Maika’i hafi gengið vel þrátt
fyrir erfitt ástand sökum faraldurs
kórónuveiru. „Reksturinn hefur
gengið vel miðað við aðstæður en
auðvitað hafa takmarkanir áhrif á
okkur eins og alla. Við teljum þó að
það séu bjartari tímar fram undan
og þá er mikilvægt að vera tilbúinn í
þann slag,“ segir Ágúst sem kveðst
bjartsýnn á að faraldrinum ljúki
senn. Þá sé hann mjög þakklátur
fyrir hversu vel hafi gengið þrátt
fyrir gríðarlega krefjandi aðstæður
á veitingamarkaði undanfarna mán-
uði.
Opna hugsanlega fleiri staði
Á Maika’i er boðið upp á acai-
skálar sem í grunninn eru búnar til
úr handtíndum sambazon-berjum
frá Brasilíu. Ofan á grunn skál-
arinnar stendur viðskiptavinum til
boða að setja m.a. ber, banana og
granóla. Auðvelt er að taka skál-
arnar með og segir Ágúst að það hafi
hjálpað í núverandi ástandi. „Við
höfum verið mjög heppin með það en
auk þess höfum við lagt mikið upp úr
því að sóttvarnareglum sé fram-
fylgt,“ segir Ágúst.
Einungis tveir mánuðir eru liðnir
frá því að Maika’i var opnaður í
Classanum Sport. Þá var staðurinn á
Hafnartorgi opnaður um mitt sum-
ar. Þannig mun stöðum fyrir-
tækisins fjölga um þrjá á yfirstand-
andi ári. Spurður hvort til greina
komi að opna enn fleiri staði á næstu
mánuðum kveður hann já við. Sem
stendur sé öll einbeiting þó á núver-
andi stöðum. „Við finnum greinilega
fyrir eftirspurn innan fleiri bæj-
arfélaga. Við ætlum samt að einbeita
okkur að þessu verkefni og því sem
er fram undan, svo sjáum við til.“
Maika’i opnar nýjan stað
í Smáralind í desember
Staðirnir nú fjórir talsins Sætar syndir í sama rými
Eigendur Ágúst rekur Maika’i ásamt kærustu sinni, Elísabetu Mettu.
SÖLUAÐILAR
Reykjavík:
Gullbúðin, Bankastræti 6 s: 551-8588
Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62 s: 551-4100
Meba Kringlunni s: 553-1199
Michelsen Úrsmiðir, Kringlunni s: 511-1900
Kópavogur:
Klukkan, Hamraborg 10 s: 554-4320
Meba Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður:
Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar
s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah úrsmiður, Hafnargötu 49
s: 421-5757
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi
s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah úrsmiður,
Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s: 471-1886
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson úrsmiður, Austurvegi 11
s: 482-1433
Vestmannaeyjar:
Geisli, Hilmisgötu 4 s: 481-3333