Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 45
FRÉTTIR 45Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Fjölmiðlasamsteypan ViacomCBS
hefur samþykkt að selja forlagið Sim-
on & Schuster til Penguin Random
House fyrir tvo milljarða dala, sem
svarar um 270 milljörðum króna.
Fjallað var um viðskiptin í New
York Times í vikunni en þar var salan
sögð leiða til uppstokkunar í útgáfu-
starfsemi. Stærsti bókaútgefandinn
vestanhafs væri enda að kaupa þann
þriðja stærsta. Með sterka stöðu sam-
einaðs félags í huga kynni afstaða
samkeppnisyfirvalda að vega þungt.
Að sögn blaðsins myndi samruninn
skapa fyrstu risaútgáfuna en Penguin
Random House er í eigu þýska fjöl-
miðlarisans Bertelsmann.
Leita hagræðingar
Samruninn er sagður koma í kjöl-
farið á samrunum í bókagáfu undan-
farinn áratug.
Rifjað er upp að Penguin og Rand-
om House hafi sameinast 2013 og
News Corp keypt útgáfufélagið
Harlequin, svo dæmi séu tekin.
Simon & Schuster er rótgróin út-
gáfa. Félagið var stofnað 1924 og gaf í
fyrstu út krossgátur. Meðal höfunda
hjá forlaginu eru Stephen King og
Bob Woodward og svo horfnir meist-
arar á borð við Ernest Hemingway og
F. Scott Fitzgerald.
Að sögn New York Times reyndist
kórónuveirufaraldurinn Simon &
Schuster erfiður og til að bæta gráu
ofan á svart hafi Carolyn Reidy, fram-
kvæmdastjóri félagsins, fallið frá
sviplega í maí síðastliðnum.
Streymisveita er framtíðin
Blaðið segir ViacomCBS telja
framtíðina liggja í streymisveitu og
bókaútgáfa rími ekki við þá sýn.
Má í þessu efni rifja upp að skammt
er síðan Storytel keypti 70% hlut í
Forlaginu, stærsta útgáfufyrirtæki
Íslands, en efla átti hljóðbækur.
ViacomCBS skuldar 21 milljarð
dala, 2.840 milljarða króna, og
grynnkar því á skuldunum með söl-
unni. baldura@mbl.is
Risasamruni í
bókaútgáfunni
Penguin kaupir Simon & Schuster
AFP
Samrunar Penguin sameinaðist Random House árið 2013.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri
sölu-, markaðs- og vöruþróunar hjá
Bláa lóninu, segir næsta sumar farið
að líta betur út eftir tíðindi af þróun
bóluefna.
„Þetta eru
sannarlega mikil
og góð tíðindi. Við
horfum til þess að
viðspyrnan geti
farið að hefjast á
nýju ári og við er-
um bjartsýnni
fyrir sumarið en
fyrir nokkrum
vikum. Við eigum
þó eftir að sjá
hvaða áhrif þetta hefur á ferðaþjón-
ustuna almennt næstu mánuðina.
Óvissan er enn mikil en ljós handan
við hornið,“ segir Helga.
Fari að fjölga frá apríl
Eins og fjallað var um í Morg-
unblaðinu í gær hafa Samtök ferða-
þjónustunnar endurmetið spá sína
fyrir næsta ár, á grundvelli tíðinda af
bóluefnunum. Samkvæmt nýrri spá
fer ferðamönnum að fjölga frá og
með apríl. Þeim fjölgi svo hratt og
verði 100 þúsund í desember.
Helga telur spána í takt við vænt-
ingar. Þess sé að vænta að ferðavilji
vakni þegar fólk hefur fengið bólu-
setningu gegn veirunni. Það sé þó
orðið mjög brýnt að tryggja fyr-
irsjáanleika við opnun landamær-
anna til að hægt verði að bregðast
við.
Skv. heimildum Morgunblaðsins
hefur Magnús Héðinsson látið af
störfum sem umsjónarmaður veit-
inga- og hótelrekstrar Bláa lónsins.
Helga staðfestir að þetta sé rétt og
að þar sjái Bláa lónið á eftir öflugum
og góðum liðsmanni. Þessi breyting
tengist skipulagsbreytingum og hag-
ræðingu hjá Bláa lóninu.
Magnús hóf störf hjá lóninu 2010.
Aukin
bjartsýni
hjá lóninu
Helga
Árnadóttir
Verði samruni Kviku, TM og Lyk-
ils samþykktur verður til félag sem
að óbreyttu mun verma fjórða sæt-
ið yfir verðmætustu félögin sem
skráð eru á aðallista Kauphallar
Íslands. Í dag er markaðsvirði TM
37,4 milljarðar króna en Kviku
rétt tæpir 30 milljarðar. Sam-
anlagt virði þeirra er sjónarmun
meira en fjarskiptafélagsins Sím-
ans sem í dag er fjórða verðmæt-
asta félag Kauphallarninar á eftir
Brimi (98,4 ma.), Arion banka
(157,4 ma.) og Marel.
Síðastnefnda félagið er lang-
verðmætasta fyrirtæki landsins og
miðað við núverandi gengi í Kaup-
höll er markaðsvirði þess tæpir
543 milljarðar króna. Slíkan æg-
ishjálm ber félagið yfir önnur fé-
lög á listanum að markaðsvirði
þess er nærri jafn hátt og sjö
næstu fyrirtækja á listanum.
Heildarmarkaðsvirði félaganna
19 sem nú eru á listanum nemur
tæpum 1.370 milljörðum og því er
virði Marels um 40% af saman-
lögðu virði félaganna. Lengi vel
var Origo það félag sem vermdi
neðsta sæti listans yfir verðmæti
kauphallarfélaga en nú situr þar
fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið
Sýn. Er það metið á 11 milljarða
en Origo á 15,3. Þriðja minnsta fé-
lagið er Skeljungur (17,2 ma.) en
flest bendir til að það muni á næst-
unni hverfa úr Kauphöll í kjölfar
yfirtökutilboðs nokkurra hluthafa.
Ekki er langt síðan leigufélagið
Heimavellir var tekið af lista
skráðra félaga í kjölfar yfirtöku.
Það hafði um fárra missera skeið
verið skráð á skipulegan hluta-
bréfamarkað. ses@mbl.is
Markaðsvirði hlutafélaga í Kauphöll Íslands
Kvika/TM
Iceland Seafood
Hagar
Brim
Arion banki
Festi
Eik
Reitir
Skeljungur
Síminn
Sýn
VÍS
Eimskipafélagið
Marel
Origo
Sjóvá
Icelandair
30,1 / 37,4
25,7
63,4
98,4
156,7
52,2
29,7
47,1
17,2
66,9
11
24,6
39,8
542,8
15,3
35,4
39,8
Allar tölur eru í ma.kr.
Heimild: Kauphöll Íslands
Verður fjórða
stærsta félagið
Marel 40% af heildarvirði Kauphallar
Traustur fyrirtækjarekstur og öflug nýsköpun
kallar á samstarfsaðila sem skilur þarfirnar.
Arion banki býður fyrirtækjum af öllum
stærðum og í öllum geirum alhliða
þjónustu með fagmennsku, innsæi
og þekkingu að leiðarljósi.
Hafðu samband á fyrirtaeki@arionbanki.is,
við þjónustuver í síma 444 7000 eða í
netspjalli á arionbanki.is.