Morgunblaðið - 27.11.2020, Qupperneq 46
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Á maður að láta bólusetja sig með
efni sem þróað hefur verið með flýti?
Nei, aldrei aftur, segir Meissa
Chebbi, sem eins og mörg hundruð
aðrir Svíar þjáðist af magnleysi eftir
bólusetningarherferð gegn svína-
flensufaraldri á árunum 2009-2010.
Reynslan af bólusetningunni þá
hefur lamað traust Svía á bóluefni við
kórónuveirunni nú og í framtíðinni og
þar við blandast ótti þeirra um
óþekktar aukaverkanir.
„Ég mun aldrei ráðleggja neinum
að láta bólusetja sig,“ sagði hin 21 árs
gamla gamla Chebbi við AFP-frétta-
stofuna, aðspurð hvort hún myndi
láta bólusetja sig með nýju lyfjunum.
„Ekki nema maður þyrfti vegna að-
stæðna sem snerust um líf eða
dauða,“ bætti hún við.
Þetta sænska mál sýnir hversu
flókið viðfangsefni það getur verið
fyrir yfirvöld að bjóða upp á bóluefni
gegn kórónuveirunni, ekki síst á tím-
um ofstopafullrar rangrar upplýs-
ingagjafar sem nærir efasemdir um
ríkisstofnanirnar og jafnvel sjúk-
dóminn sjálfan.
Sálrænt tjón vegna bóluefna er
einkar áberandi í Svíþjóð, sem á þó
met þegar smitsjúkdómavarnir með-
al barna eru annars vegar. Þá er
þátttakan yfir 90% og er hún engin
skylda heldur sjálfsval.
Nýleg rannsókn Novus-hugveit-
unnar leiddi í ljós að 26% Svía ætla
ekki að láta bólusetja sig með neinu
af þeim efnum sem verið er að þróa,
og 28% sögðust óákveðin. Ákveðin í
að láta sprauta sig voru hins vegar
46%.
Af andstæðingum bólusetningar
sögðu 87% ástæðuna vera ótta við
AFP
Tómlegt Einungis átta manns mega vera viðstaddir guðsþjónustu í Svíþjóð.
Draugar dúraveiki auka sprautufælni
Bólusetning við svínaflensu hafði
alvarlegar aukaverkanir í för með sér
aukaverkanir sem ekkert væri vitað
um hingað til. Árið 2009 hvöttu
sænsk heilbrigðisyfirvöld landsmenn
til að láta bólusetja sig gegn svína-
flensunni með pandemrix-lyfinu sem
breski lyfjarisinn GlaxoSmithKline
framleiddi. Rúmlega 60% þjóðarinn-
ar urðu við kalli og var það heimsmet
í þátttöku í bólusetningarherferð.
En Chebbi og hundruð annarra,
aðallega börn og fólk að þrítugu,
greindust síðar með dúraveiki, eða
svefnfelli, sem er aukaverkun bólu-
efnisins. Fundust á endanum eigin-
leikar í efninu sem ætlað var að efla
ónæmisvarnir bóluefnisins. Dúra-
veiki er ólæknandi óreiða í taugakerfi
mannslíkamans sem veldur óhóflegu
svefnfelli og jafnvel óstjórnlegu
svefnflogi.
„Ég fæ svefnköst öllum stundum
og við alls konar aðstæður og á óvið-
eigandi stundum. Í matartíma,
vinnuviðtali, í fyrirlestrum, í háskól-
anum. Ég hef dottið út af í vinnunni
og sofna einnig í strætó og bara alls
staðar,“ segir Chebbi. „Þetta hefur
eyðilagt líf mitt,“ bætti hún við.
Sænsku lyfjatryggingarnar hafa
til þessa samþykkt bætur til handa
440 af 702 sjúklingum sem þjást af
eftirköstum pandemrix-bóluefnisins.
Hafa þær borgað út um 100 milljónir
sænskra króna í bætur, jafnvirði um
1,6 milljarða íslenskra króna.
„Hefðum við bara vitað“
Anders Tegnell, sóttvarnastjóri
sænska ríkisins og hugmyndafræð-
ingur „mjúkrar“ viðspyrnu við kór-
ónuveirunni, var í sérfræðinganefnd
sem hvatti til fjöldabólusetningarinn-
ar 2009. „Auðvitað hefðum við ákveð-
ið allt annað hefðum við vitað um
aukaverkanirnar. Þær voru með öllu
óþekktar og komu öllum í opna
skjöldu,“ sagði hann við AFP. „Það
hefur verið alþjóðleg samstaða um
árabil um að bólusetning væri besta
aðgerðin gegn faraldri. Það er eina
langtímalausnin sem við höfum.
Ljósmynd/Colourbox
Skíði Sýktir ferðamenn á skíðasvæðum hjálpuðu til við að dreifa veirunni.
Snjóleysi og stríðið gegn kórónu-
veirunni verða þess valdandi að öll-
um líkindum að ekkert verður úr
skíðamennsku í Alpafjöllum um jóla-
leytið.
Knýja Þjóðverjar á um skíðabann
gegn Covid-19-veirunni sem lagt hef-
ur yfir 60 milljónir manna í rúmið.
Tilhugsunin um að verja jólum
bak við luktar dyr hugnast ekki öll-
um sem lagt hafa í vana sinn að
sækja til fjalla og renna sér í snævi
þöktum brautum. Þjóðverjar ætla
ekki að létta veiruvörnum sínum
fyrr en á nýju ári og freista þess nú
að fá bandalagsþjóðir sínar í Evrópu
til að loka öllum skíðabrekkum fram
til 10. janúar.
Frá þessu skýrði Angela Merkel
kanslari en hún getur þegar reitt sig
á stuðning Frakka sem tilkynntu sl.
þriðjudag að franskar skíðabrekkur
í Ölpunum og Pýreneafjöllum yrðu
lokaðar fram á næsta ár. Sýktir
ferðamenn á skíðasvæðum um síð-
ustu áramót hjálpuðu til við að
dreifa kórónuveirunni til margra
Evrópulanda.
„Ég segi það blákalt að það verð-
ur ekki auðvelt að ná samstöðu, en
við verðum að reyna,“ sagði Merkel.
Þjóðverjar og Frakkar hafa ákveðið
að fara allt aðra leið en austurrísk
skíðasvæði og ferðaskrifstofur, en
jólatekjurnar hafa skipt skíðastað-
ina gríðarlegu máli.
Í Sviss eru skíðasvæði aftur á móti
nú þegar opin en þar hefur sést til
lögreglu við eftirlit. Hlutverk henn-
ar hefur verið að tryggja að skíða-
fólkið virti ráðstafanir ríkisstjórn-
arinnar gegn kórónuveiru-
faraldrinum, svo sem að það bæri
grímu fyrir vitum sér og héldi tiltek-
inni lágmarksfjarlægð sín á milli.
agas@mbl.is
Freista þess að fá skíða-
svæðum í Ölpunum lokað
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
FALLEG LJÓS
Í ÚRVALI
Ármúla 24 • rafkaup.is
Meðal mikils fjölda fótboltastjarna fyrr og síð-
ar til að minnast argentínska sparksnillings-
ins Diegos Armandos Maradona, sem lést í
fyrradag í Buenos Aires, er þýski landsliðs-
fyrirliðinn Lothar Matthäus, sem sagði Mara-
dona hafa verið erfiðasta andstæðing sinn á
fótboltavellinum.
Mættust þeir í úrslitum HM 1986 og 1990 og
hafði Maradona sigur 1986 en Mathäus fjór-
um árum seinna.
Maradona hefur verið lýst sem manni með
stórt hjarta. Hin hlið goðsins var önnur verri
og einkenndist af viðvarandi glímu við fíkni-
efni með þeim afleiðingum að hann missti
stjórn á lífi sínu.
Þjóðarsorg ríkir í Argentínu vegna andláts
Maradona. Til stóð að hann yrði jarðsettur í
Jardin de Paz-kirkjugarðinum í útjaðri
Buenos Aires í gær, en þar hvíla foreldrar
hans. Á myndinni tjáir aðdáandi sig við borða
við ráðhús borgarinnar en þar stendur „Guð“. AFP
„Knötturinn
hlýddi honum
alltaf“