Morgunblaðið - 27.11.2020, Síða 76
UNDANKEPPNI EM
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu vann frábæran 3:1 sigur
gegn því slóvakíska í F-riðli und-
ankeppni EM í Seneca í Slóvakíu í
gærkvöldi. Ísland var 0:1 undir í
hálfleik eftir afar dapra frammi-
stöðu. Í síðari hálfleik var allt annað
að sjá til íslenska liðsins, sem keyrði
yfir Slóvaka og skoraði þrjú mörk.
Leikurinn fór rólega af stað en á
25. mínútu náði Mária Mikolajová
forystunni fyrir Slóvakíu þegar hún
átti gott skot fyrir utan teig sem
endaði í bláhorninu. Íslensku stelp-
urnar virtust slegnar út af laginu
eftir markið og gerðu þær slóvak-
ísku sig líklegar til þess að bæta við.
Í síðari hálfleik var engu líkara en
íslenska liðið hafi fengið duglega
vítamínsprautu. Liðið fór að vinna
boltann oftar og sóknarleikurinn
varð skæðari með hverri mínútu.
Öflugar sóknarlotur Íslands skil-
uðu sér loks á 61. mínútu þegar
Berglind Björg Þorvaldsdóttir jafn-
aði metin. Agla María Albertsdóttir
átti þá frábæra sendingu inn í víta-
teig þar sem Sveindís Jane Jóns-
dóttir teygði sig í boltann og kom
honum fyrir í fætur Berglindar
Bjargar sem skoraði örugglega af
markteig.
Nokkrum mínútum síðar fékk fyr-
irliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir
vítaspyrnu. Hún fór sjálf á punktinn
en Mária Korenciová varði frá henni.
Dómari leiksins mat það þó sem svo
að Korenciová hafi farið of snemma
af línunni og gaf merki um að spyrn-
una skyldi endurtaka. Fréttaritara
þótti það heldur harður dómur en
Sara Björk lét sér fátt um finnast og
skoraði af miklu öryggi á 67. mínútu
úr endurteknu spyrnunni.
Tíu mínútum síðar gerði Ísland út
um leikinn. Þá slapp Elín Metta Jen-
sen í gegn og var toguð niður. Varn-
armaður Slóvaka fékk aðeins gult
spjald fyrir vikið en það hefði með
réttu átt að vera rautt. Sara Björk
steig enn á ný á punktinn og skoraði
aftur af öryggi. Tvenna hjá fyrirlið-
anum og 3:1 sigur í höfn.
Nýttu tækifæri sín vel
Ánægjulegt var að sjá hversu vel
íslenska liðið brást við döprum fyrri
hálfleik, þar sem barátta og gæði í
sóknarleiknum voru ekki nægileg. Í
síðari hálfleiknum keyrðu íslensku
stelpurnar hreinlega yfir þær sló-
vakísku, sem sáu aldrei til sólar, og
hefðu hæglega getað skorað fleiri
mörk.
Agla María og Berglind Björg,
sem hafa ekki fengið margar mín-
útur í undanförnum leikjum, nýttu
báðar tækifæri sín í byrjunarliðinu
frábærlega. Auk þess voru Sveindís
Jane og Elín Metta afskaplega
skæðar í sóknarleiknum í síðari hálf-
leiknum. Þá steig Sara Björk upp á
gífurlega mikilvægum augnablikum.
Sigurinn þýðir að Ísland er að
minnsta kosti búið að gulltryggja sér
sæti í umspili um laust sæti á EM.
Náist sigur í næsta leik gegn Ung-
verjalandi á þriðjudaginn kemur á
liðið möguleika á að fara beint á EM,
sem eitt þriggja liða með bestan ár-
angur í 2. sæti undankeppninnar.
Tveir gjörólíkir hálfleik-
ar í endurkomusigri
Ísland vann Slóvakíu 3:1 í undankeppni EM Frábær síðari hálfleikur
Ljósmynd/KSÍ
Byrjunarliðið Íslensku landsliðskonurnar stilla sér upp fyrir leikinn í Slóvakíu í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfarinn Jón Þór Hauksson fagn-
aði þremur stigum í Slóvakíu.
Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari
íslenska kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu, var að vonum ánægður með
3:1 sigurinn í F-riðli undankeppni
EM gegn Slóvakíu ytra í gærkvöld.
„Þetta var ofboðslegur rússíbani.
Þetta voru tveir gjörólíkir hálfleikar,
ekki bara hvað spilamennsku varðar
heldur líka hugarfar og stemningin
var ekki í lagi í fyrri hálfleik. Spilið
var ofboðslega flatt og við vorum
flatar andlega. En seinni hálfleikur
var auðvitað alveg frábær. Þrjú
mjög góð mörk og margar góðar
sóknir en fyrst og fremst gríð-
arlegur karakter. Ég held að það sé
óhætt að segja að þetta hafi verið
karakterssigur,“ sagði Jón Þór við
Morgunblaðið.
Ísland var 0:1 undir í hálfleik og
frammistaðan döpur. Hverju breytti
liðið í hálfleik?
„Fyrstu skilaboðin til leikmanna
voru þau að núllstilla allt spennustig
og að gera leikmönnum grein fyrir
því að við yrðum að taka þátt í bar-
áttunni ef við ætluðum að ná að taka
boltann niður og láta hann ganga.
Þannig að það var fyrst og fremst að
núllstilla það til þess að fá gæði fram
á við. Það tókst sem betur fer,“ sagði
Jón Þór enn fremur.
gunnaregill@mbl.is
„Ofboðslegur rússíbani“
Gjörólík spilamennska í fyrri og seinni hálfleik að mati landsliðsþjálfarans
76 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Rhein Neckar Löwen kom sér fyrir
í toppsæti þýsku 1. deildarinnar í
handknattleik í gær með stórsigri á
Wetzlar 37:24. Alexander Pet-
ersson skoraði 1 mark fyrir Löwen
og Ýmir Örn Gíslason kom einnig
við sögu í leiknum. Löwen er með
16 stig og hefur unnið átta af fyrstu
níu leikjunum. Göppingen vann úti-
sigur á Essen 32:28. Janus Daði
Smárason skoraði eitt mark fyrir
Göppingen og átti þrjár stoðsend-
ingar. Balingen og Leipzig gerðu
jafntefli 20:20 en Oddur Gretarsson
lék ekki með Balingen.
RN Löwen fór
í toppsætið
Ljósmynd/dkb-handball-bundeslig
Á toppnum Alexander Petersson
er lykilmaður hjá toppliðinu.
Rúnar Alex Rúnarsson hélt marki
Arsenal hreinu í Evrópudeildinni í
knattspyrnu í gærkvöld. Arsenal
heimsótti Molde og vann 3:0. Rúnar
hefur nú leikið tvo leiki fyrir Arsen-
al í keppninni og haldið hreinu í
þeim báðum. Arsenal hefur unnið
alla fjóra leiki sína og er nánast
öruggt um að komast áfram. CSKA
Moskva gerði markalaust jafntefli
gegn hollenska liðinu Feyenoord í
Moskvu og á enn möguleika að
komast áfram. Hörður B. Magn-
ússon og Arnór Sigurðarson voru
báðir í byrjunarliðinu.
Aftur hélt Rúnar
Alex hreinu
Morgunblaðið/Eggert
Arsenal Rúnar Alex Rúnarsson
lék gegn Molde í gærkvöld.
Undankeppni EM kvenna
F-RIÐILL:
Slóvakía – Ísland...................................... 1:3
Svíþjóð 19 stig, Ísland 16 stig, Slóvakía
10 stig, Ungverjaland 7 stig, Lettland 0
stig..
B-RIÐILL:
Georgía – Malta ........................................ 0:4
Evrópudeild UEFA
A-RIÐILL:
CSKA Sofia – Young Boys ...................... 0:1
B-RIÐILL:
Molde – Arsenal ....................................... 0:3
Rúnar Alex Rúnarsson spilaði allan leik-
inn í marki Arsenal.
G-RIÐILL:
AEK Aþena – Zorya................................. 0:3
Braga – Leicester..................................... 3:3
Leicester 10 stig, Braga 7 stig, AEK
Aþena 3 stig, Zorya 3 stig.
H-RIÐILL:
Lille – AC Milan ....................................... 1:1
Sparta Prag – Celtic................................. 4:1
Lille 8 stig, AC Milan 7 stig, Sparta Prag
6 stig, Celtic 1 stig.
I-RIÐILL:
Maccabi Tel Aviv – Villareal.................... 1:1
Qarabag – Sivasspor ................................ 2:3
Villarreal 10 stig, Maccabi Tel Aviv 7
stig, Sivasspor 6 stig, Qarabag 0 stig.
J-RIÐILL:
LASK – Antwerpen ................................. 0:2
K-RIÐILL:
CSKA Moskva – Feyenoord ................... 0:0
Hörður Björgvin Magnússon spilaði all-
an leikinn í vörn CSKA og Arnór Sigurðs-
son spilaði 63 mínútur á hægri kanti.
Wolfsberger – Dinamo Zagreb ............... 0:3
Dinamo Zagreb 8 stig, Feyenoord 5 stig,
Wolfsberger 4 stig, CSKA Moskva 3 stig.
L-RIÐILL:
Gent – Rauða Stjarnan ............................ 0:2
Slovan Liberec – Hoffenheim ................. 0:2
Hoffenheim 12 stig, Rauða Stjarnan 9
stig, Slovan Liberec 3 stig, Gent 0 stig.
Katar
Qatar SC– Al-Arabi ................................. 3:0
Aron Einar Gunnarsson spilaði allan
leikinn á miðju Al-Arabi. Heimir Hall-
grímsson þjálfar liðið.
Danmörk
B-deild:
Viborg – Silkeborg .................................. 1:0
Patrik Sigurður Gunnarsson lék allan
leikinn í marki Viborg.
Stefán Teitur Þórðarson kom inn á sem
varamaður á 66. mínútu hjá Silkeborg.
Vináttulandsleikur kvenna
Danmörk – Noregur ............................26:29
Þórir Hergeirsson er landsliðsþjálfari
Noregs.
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
Pick Szeged – Elverum....................... 36:27
Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki í
leikmannahóp Pick Szeged.
Þýskaland
RN Löwen – Wetzlar........................... 37:24
Alexander Petersson skoraði 1 mörk fyr-
ir Löwen og Ýmir Örn Gíslason gaf eina
stoðsendingu og stal einum bolta.
Essen – Göppingen.............................. 28:32
Janus Daði Smárason skoraði 1 mark og
gaf þrjár stoðsendingar fyrir Göppingen.
Balingen – Leipzig .............................. 20:20
Oddur Gretarsson var ekki í leikmanna-
hóp Balingen.
Stuttgart – Nordhorn ......................... 36:24
Viggó Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir
Stuttgart og Elvar Ásgeirsson komst ekki
á blað.
Forkeppni HM karla
B-riðill:
Ísland – Lúxemborg............................. 90:76
Slóvakía – Kósóvó................................. 91:62
Staðan: Ísland 5 stig, Slóvakía 5, Kósóvó 5,
Lúxemborg 3.
Varnarmaðurinn Torfi Tímoteus
Gunnarsson er genginn í raðir úr-
valsdeildarliðs Fylkis í knatt-
spyrnu. Torfi, sem kemur frá upp-
eldisfélagi sínu Fjölni, skrifaði í
gær undir tveggja ára samning.
Torfi er 21 árs gamall en býr yfir
mikilli reynslu þrátt fyrir ungan
aldur. Hefur hann spilað 51 leik í
efstu deild. Torfi á einnig að baki
29 leiki með yngri landsliðum Ís-
lands. Níu þeirra eru með U21-árs
landsliðinu, þar sem hann er enn
gjaldgengur. sport@mbl.is
Árbæingar
þétta raðirnar
SLÓVAKÍA – ÍSLAND 1:3
1:0 Mária Mikolajová 25.
1:1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir 61.
1:2 Sara Björk Gunnarsdóttir (víti) 67.
1:3 Sara Björk Gunnarsdóttir (víti) 77.
M
Agla María Albertsdóttir
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Elín Metta Jensen
Sara Björk Gunnarsdóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir
Rautt spjald: Engin.
Dómari: Lina Lehtovaara, Finnlandi.
Áhorfendur: Ekki leyfðir.
Liðsuppstillingar, gul spjöld og fleira
í tengslum við landsleikinn – sjá mbl.is/
sport/fotbolti