Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 77
FORKEPPNI HM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Sjö stig í röð frá Herði Axel Vil-
hjámssyni í þriðja leikhluta sneru
leiknum gegn Lúxemborg í for-
keppni HM í körfuknattleik í Brat-
islava í Slóvakíu í gær. Ísland var sjö
stigum undir 47:40 þegar Hörður tók
rispuna en Ísland sigraði þegar upp
var staðið 90:76.
Hörður Axel er nú „gamli mað-
urinn“ í liðinu eftir kynslóðaskiptin á
undanförnum árum og frumkvæði
hans í þriðja leikhluta kom sér afar
vel. Hann seti niður þriggja stiga
skot og annað í næstu sókn á eftir.
Þá var auk þess brotið á honum og
hann skoraði úr vítinu. „Þetta var
mjög flottur leikur og við fundum
góðan takt í seinni hálfleik sem sneri
leiknum svolítið okkur í hag. Við
fundum betri lausnir bæði í vörn og
sókn. Hvernig við ættum að sækja á
þá og hvernig við ættum að verjast,“
sagði Hörður að leiknum loknum í
gær en hann skoraði 9 stig.
Spennan eykst
Spennan í riðlinum jókst verulega
í gær en í síðari leik dagsins vann
Slóvakía lið Kósóvó og eru þessi þrjú
lið þá jöfn og Lúxemborg einum sigri
á eftir. Tvö lið komast áfram úr riðl-
inum og á næsta stig forkeppninnar
en lokakeppni HM er ekki á dagskrá
fyrr en árið 2023. Þjóðirnar leika nú í
Bratislava vegna þeirra áhrifa sem
kórónuveiran hefur haft og þar mun
Ísland mæta Kósóvó á morgun.
Lúxemborg var yfir 38:34 að lokn-
um fyrri hálfleik í gær. Hittnin var
slæm og á sama tíma náðu andstæð-
ingarnir að setja niður þriggja stiga
skot úr erfiðum skotfærum.
Leikmönnum gekk illa að finna
miðherjann Tryggva Snæ Hlinason
nærri körfunni í fyrri hálfleik og
sóknunum lauk gjarnan með þriggja
stiga skotum. Tryggvi skoraði ekki í
opnum leik í fyrri hálfleik en þetta
gerbreyttist í þriðja leikhluta. Þá
tróð Tryggvi boltanum hvað eftir
annað í körfuna hjá Lúxemborg og
þegar upp var staðið hafði hann
skorað 17 stig í leiknum, tók 11 frá-
köst og varði tvö skot. Tryggvi var
einnig mikilvægur í því að verja körf-
una en á köflum var hann með fjóra
lágvaxna menn með sér inni á vell-
inum. Þess ber þó að geta að fram-
herjinn Tómas Þórður Hilmarsson
barðist vel þegar hann var inni á vell-
inum.
Margir lögðu í púkkið
Sveiflan sem varð í þriðja leikhluta
var athyglisverð. Lúxemborg var sjö
stigum yfir og með boltann þegar
vendipunkturinn varð í leiknum. Áð-
ur en þriðja leikhluta var lokið hafði
Ísland náð tíu stiga forskoti. Ís-
lensku landsliðsmennirnir fylgdu því
ágætlega eftir í síðasta leikhlutanum
og munurinn varð mestur nítján stig.
Margir lögðu í púkkið að þessu
sinni í sókninni. Sigtryggur Arnar
byrjaði vel og hélt lífi í sókninni í
fyrri hálfleik. Landsliðið er farið að
nýta þennan óvenjulega og skemmti-
lega leikmann en það hefði að mínu
mati mátt gerast fyrr eða eftir
magnaða frammistöðu hans í bik-
arúrslitaleiknum gegn KR í janúar
árið 2018. Gott að eiga vopn sem
þetta því hann sést ekki fyrir í leik
sínum.
Fleiri en Sigtryggur Arnar eru
með snerpuna í lagi. Ægir Þór Stein-
arsson og Elvar Már Friðriksson
nýttu hana vel í gær. Þessir lágvöxnu
leikmenn náðu að koma miklu róti á
vörn andstæðinganna þegar þeir
hristu af sér varnarmenn. Stór-
skyttan Kári Jónsson tók við sér í
þriðja leikhluta og Jón Axel Guð-
mundsson skoraði sex stig á stuttum
tíma þegar Ísland sleit sig frá Lúx-
emborg í síðasta leikhlutanum.
Sterkara lið en Lúxemborg hefði
vafalítið nýtt sér betur gang mála í
fyrri hálfleik. En taka verður með í
reikninginn að íslenska liðið er án
Martins Hermannssonar, Hauks
Helga Pálssonar, Kristófers Acox og
Pavels Ermolinskij.
Hörður Axel sneri leiknum
Skoraði sjö stig í röð í tveimur sóknum gegn Lúxemborg Fjórtán stiga
sigur í Bratislava Snerpan í góðu lagi hjá bakvörðum íslenska liðsins
Ljósmynd/FIBA
Einbeittur Leikstjórnandinn Hörður Axel Vilhjálmsson með boltann í leiknum í gær en hann er aldursforsetinn í leikmannahópnum í þessu verkefni.
ÍÞRÓTTIR 77
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Fram og KR ætla bæði að áfrýja úr-
skurði aga- og úrskurðarnefndar
KSÍ til áfrýjunardómstóls KSÍ en
bæði félög kærðu ákvörðun stjórn-
ar KSÍ um að hætta keppni á Ís-
landsmótinu 2020. KR var í fimmta
sæti úrvalsdeildar karla þegar
keppni var hætt og missti þar af
leiðandi af Evrópusæti. Framarar
voru í þriðja sæti 1. deildarinnar
með jafn mörg stig og Leiknir í
Reykjavík en Leiknismenn fóru upp
í efstu deild á markatölu. Áfrýj-
unardómstóll KSÍ mun því taka mál
félaganna fyrir á næstunni.
Una ekki úrskurði
aganefndarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Áfrýja Vesturbæingar eru ósáttir
við ákvörðun stjórnar KSÍ.
Belgíski bakvörðurinn Jonathan
Hendrickx er eftirsóttur af liðum í
úrvalsdeild karla, Pepsi Max-
deildinni, samkvæmt heimildum
mbl.is. Hendrickx verður 27 ára í
desember en samkvæmt heimildum
mbl.is hafa Breiðablik, FH og KR
öll sett sig í samband við leikmann-
inn með það fyrir augum að semja
við hann fyrir næsta ár. „Það eru
meiri líkur en minni á að ég spili á
Íslandi næsta sumar,“ sagði bak-
vörðurinn í samtali við mbl.is. Hann
á að baki 78 leiki í efstu deild með
Breiðabliki og FH.
Belginn eftir-
sóttur á Íslandi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kópavogur Jonathan Hendrickx lék
með Breiðabliki frá 2018 til 2019.
Bratislava, Forkeppni HM karla,
fimmtudaginn 26. nóvember 2020.
Gangur leiksins: 23:24, 34:38,
66:59, 90:76.
Stig Íslands: Tryggvi Snær Hlinason
17, Jón Axel Guðmundsson 14, Elvar
Már Friðriksson 13, Ægir Þór Stein-
arsson 13, Sigtryggur Arnar Björns-
son 12, Hörður Axel Vilhálmsson 9,
Tómas Þórður Hilmarsson 2.
Fráköst: 27 í vörn - 16 í sókn.
Ísland – Lúxemborg 90:76
Stig Lúxemborgar: Clancy Rugg
26, Philippe Gutenkauf 15, Oliver
Vujakovc 14, Alex Laurent 9,
Ivan Delgado 4, Ben Kovac 3, Kevin
Moura 3, Thomas Grun 2.
Fráköst: 25 í vörn, 13 í sókn.
Villur: Ísland 21, Lúxemborg 22.
Dómarar: Christoph Rohacky, Sim-
on Unsworth og Sergiy Chaykov-
skyy.
Áhorfendur: Ekki leyfðir.
Thiago Silva, varnarmaður enska
knattspyrnufélagsins Chelsea, verður
áfram í herbúðum félagsins á næstu
leiktíð en það er Sky Sports sem
greinir frá þessu. Miðvörðurinn, sem
er 36 ára gamall, gekk til liðs við
Chelsea á frjálsri sölu í sumar eftir
átta ár í herbúðum PSG í Frakklandi.
Silva skrifaði undir eins árs samning
við Chelsea með möguleika á árs
framlengingu en forráðamenn enska
félagsins eru mjög ánægðir með
störf hans og vilja nú framlengja
samning hans eitt ár. Silva hefur
byrjað fimm leiki í ensku úrvalsdeild-
inni á tímabilinu þar sem hann hefur
skorað eitt mark.
Leikur Slóvakíu og Íslands í und-
ankeppni EM kvenna í knattspyrnu
var stöðvaður um tíma í gær. Ástæð-
an var sú að rafmagnið fór af fljóð-
ljósunum á NTC-vellinum í Seneca í
Slóvakíu. Staðan var 1:0 fyrir Slóvak-
íu þegar hlé var gert á leiknum á 48.
mínútu. Umsjónarmenn vallarins
náðu að lagfæra fljóðljósin að nokkr-
um mínútum liðnum og gat leikurinn
því haldið áfram.
Kristján Örn Kristjánsson og
samherjar í franska handknattleiks-
liðinu Aix héldu áfram á sigurbraut á
miðvikudagskvöld þegar þeir lögðu
St. Raphaël á útivelli, 29:26, í
frönsku 1. deildinni. Aix hefur nú
unnið fjóra leiki í röð eftir að hafa
tapað fyrsta leiknum á tímabilinu, og
aðeins stjörnulið París SG er með
færri töpuð stig. PSG hefur hins veg-
ar leikið átta leiki og er því með 16
stig en mörgum leikjum Aix að und-
anförnu hefur verið frestað og það
hefur aðeins lokið fimm leikjum.
Kristján Örn lét áfram talsvert að sér
kveða í liði Aix og skoraði fjögur
mörk.
Íslendingaliðið í Katar, Al Arabi,
nær sér ekki á strik í deildakeppninni
þótt liðið hafi gengið nokkuð vask-
lega fram í bikarkeppnunum. Í gær
tapaði liðið 3:0 á útivelli fyrir Qatar
SC sem er í 6. sæti en Al Arabi er í
10. sæti af tólf liðum. Al Arabi hefur
aðeins unnið einn leik af fyrstu sjö í
deildinni og er með 5 stig. Landsliðs-
fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson lék
allan leikinn á miðjunni. Heimir Hall-
grímsson þjálfar liðið og Freyr Alex-
andersson er honum til aðstoðar.
Liverpool tapaði sínum fyrsta leik
á tímabilinu í Meistaradeild Evrópu í
knattspyrnu gegn Atalanta á Anfield
á miðvikudagskvöld. Leiknum lauk
með 2:0-sigri Atalanta. Liverpool hef-
ur verið svo gott sem ósigrandi á An-
field í stjóratíð Jürgen Klopp sem tók
við liðinu í október 2015 af Brendan
Rodgers. Tapið gegn Atalanta var það
stærsta á heimavelli Liverpool síðan
Klopp tók við. Þá átti Liverpool ekki
skot á markið og er það í fyrsta sinn
sem það gerist síð-
an tölfræðifyr-
irtækið Opta hóf
mælingar tíma-
bilið 2003-04.
Eitt
ogannað