Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 81
MENNING 81
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
SVÖRT VIKA
25% afsláttur af öllum umgjörðum og sólgleraugum
í verslunum okkar út mánudaginn 30. nóv.
Gildir líka í vefverslun opticalstudio.is
vinnu sinnar að myndlist hefur hún
ætíð ferðast mikið þótt hún hafi allt-
af verið búsett þar í borginni.
Við ræðum nýju bókina þar sem
hún fjallar meðal annars um það
hvað Ísland hafi orðið sér mikilvægt.
„Til að halda áfram, varð ég að fara
til Íslands. Það þýddi aldrei að ég
myndi setjast þar að – því miður hef-
ur verið einhver misskilningur um
að ég hafi verið búsett þar; ég var
með vinnustofu á landinu um tíma en
aldrei með búsetu. Ég var alltaf að
koma og fara.“
Roni segist telja að þar sem hún
hafi verið eins konar „varanlegur
ferðamaður“, og komið svo reglu-
lega í allan þenan tíma, og oft til
langdvala, en farið heim á milli, hafi
gert henni kleift að upplifa breyt-
ingar sem hafi orðið á landinu og
menningunni með öðrum hætti en
þeir sem búa hér að jafnaði geri.
Henni fannst hún með tímanum fá
sterka tilfinningalega tengingu við
landið, og svo sannarlega við lands-
lagið og náttúruna, og sú tenging
hafi augljóslega breytt lífi hennar.
„Og á bæði illskilgreinanlegan og
augljósan hátt hefur það haft áhrif á
verkin mín. Það hefur haft meiri
áhrif á verkin en nokkuð annað sem
ég get hugað eða talað um.“ Hún
segir reynslu sína hér hafa kennt sér
margt „um eðli upplifana og styrk-
inn sem staður getur haft á verk
manns – algjör grundvallaratriði
sem er ekki auðvelt að koma auga á
en snerta mann. Ísland gaf mér
þannig vídd í tungumálið sem ég
hafði ekki áður og ég varð að halda
áfram að snúa aftur til að þroska
þekkingu mína, og lífið með það í
huga.“
Vill ekki sjá landið eyðilagt
Í kynningu útgefanda á Iceland
Zombie segir að bókin sé hugleiðing
um að vera í núinu. Í röð texta, sem
séu ýmist ljóðræðnar hugleiðingar,
smáskissur, myndskreyttar greinar
eða dagbókarlýsingar, þá dragi bók-
in upp áhrifaríka mynd af nær ævi-
langri reynslu listamannsins í nátt-
úru Íslands. Textarnir bjóði upp á
ógleymanlega könnun bæði óskil-
greinanlegra og óflýjanlegra afla
fjarlægra staða og einnig sýn á það
hvernig ein eyja geti fangað innsta
kjarna manneskju.
Í kynningunni segir að í áhrifa-
ríkri umfjöllun Roni um veðrabreyt-
ingar og önnur náttúruleg fyrirbæri,
svo sem sínálæga nærveru vatns í
öllum formum, taki lesandinn að
skilja þörf hennar fyrir Ísland, stað
sem hafi orðið svo mikilvægur fyrir
bæði andlegt og skapandi líf hennar.
Og á þessu ferðalagi bókarinnar séu
menningarlegir ferðafélagar hennar
margir, svo sem El Greco, Emily
Dickinson, Judy Garland og Edgar
Allan Poe. Þá er bent á að samhliða
því að í bókinni sé fjallað um ægi-
fagra orku náttúrunnar, þá taki
Roni einnig fyrir neyslu, eyðingu og
missi, þar sem iðnaður og mann-
gerður heimur sæki að náttúru Ís-
lands. Eins og hún ræddi einmitt í
fyrsta samtali okkar 1991.
Þegar við töluðum saman í síman-
um á dögunum segist Roni hafa upp-
lifað þegar dró að aldamótunum
miklar breytinar hvað varðaði ágang
á náttúruna hér. Og henni fannst
það erfitt. Sífellt fleiri vegir voru
uppbyggðir og malbikaðir og Íslend-
ingar fóru, á sívaxandi flota stórra
jeppa, að kanna landið í auknum
mæli; landið sem var vissulega gott
að við kynntumst betur. En þessi
aukni ágangur og pressa á við-
kvæma náttúruna hafi breytt upp-
lifun hennar nokuð.
„Og svo þegar við svo komumst
yfir efnahagshrunið 2008 þá hófst
eins konar heildsölu-brjálæðis-
túrismi þar sem lággjaldaflugfélög
tóku að veita fólki aðgang að Íslandi,
þegar fólk annars staðar áttaði sig á
því að landið var ekki eins langt í
burtu og það hafði talið, og ágang-
urinn á náttúruna varð mjög mikill.
Þá varð staðurinn mér ekki jafn
mikilvægur og hann hafði áður ver-
ið,“ segir Roni.
Hún bætir við að tæknibylting
síðustu áratuga hafi líka gert það
að verkum, að með farsímum og
staðsetningartækni hafi hluti
möguleikanna sem felast í ein-
angrun og ímyndun tapast. „Og
jafnvel þótt þú teljir þig vera ein-
an, þá hefur sú hugmynd tekið
gríðarlegum breytingum á síðustu
15 árum. Þar á meðal á Íslandi, og
hefur haft mikil áhrif á það sem ég
var að gera þar.“
Roni bætir við að vegna ferða-
mannaflóðsins á landinu hafi hún
komið minna til landsins að ferðast
um óbyggðir en í áratugi áður. „Ég
vil ekki horfa upp á landið eyðilagt.
Ég vil ekki sjá skemmdirnar sem
ég veit að eru þar,“ segir hún með
þunga. Áhrifin af ferðamannaflóð-
inu hafi ekki verið góð, nema þá
efnahagslega, en það megi aldrei
ráða bara för.
Skapið mikilvæga hluti
Roni hefur skapað áhrifarík verk
um veðrið hér á landi og um áhrif
þess á fólk. Hún hefur líka fjallað af
mikilli aðdáun um byggingar Guð-
jóns Samúelssonar og segist dást að
því hvernig hann tengir þær við um-
hverfið og náttúruna, til að mynda í
hlutföllum og með vali á byggingar-
efnum. Og það endurspegli viss
gæði í íslenskri menningu, teng-
inguna við umhverfi og náttúruöfl,
sem sýni bestu hliðina á þjóðinni.
Þar í felist viljinn til að spinna og
skapa á öllum stigum, sem hún telur
einstakan. Hún segist telja reynslu
Íslendinga af því að takast óttalaus
á við veðrið sem getur barið á eyj-
unni hafa gríðarleg áhrif á það
hvernig við tökumst á við áföll. „Við
efnahagshrunið þá efaðist ég aldrei
um að þið mynduð rífa ykkur strax
upp úr því,“ segir hún. „Maður finn-
ur þessa skynsemi í unga fólkinu.
Það er merkilegt miðað við hvað
menningin ykkar er smá hvað þið
skapið ótrúlega hluti. Hvort sem
það er tækni, tónlist eða bækur. Þið
skapið ótrúlega mikið af mikil-
vægum hlutum fyrir heiminn og ég
dáist að því.“
Að lokum berst talið að greina-
flokknum eða verkunum sem Roni
skapaði fyrir síður Lesbókarinnar
fyrir 18 árum. Henni finnst með
ólíkindum að svo langt sé síðan.
„Ég man vel eftir að hafa skrifað
þessa texta, Iceland’s Difference, en
ég var þá nýflutt í vinnustofuna
mína hér í New York. Ég naut þess
að fá þetta tækifæri til að tala við
Íslendinga, eða hafa aðgang að
þeim, um landið þeirra. Mér fannst
örvandi og áhugavert að vinna
þetta.“
Og þegar við kveðjumst segir
Roni: „Ég hlakka mjög mikið til að
komast aftur til Íslands en hvenær
það getur orðið, eins og sakir
standa, er engin leið að segja.“
Sérkenni Íslands Þrjú verkanna í röð Roni Horn Iceland’s Difference sem birtust 23 sinnum á baksíðu Lesbókar
Morgunblaðsins vor og haust 2002. Þessi birtust 6. apríl, 18. maí og 12. október. Í verkunum fjallaði hún til að
mynda um „hin mörgu hjörtu hvergisins sem dreifð eru um landið“ og um laugar hannaðar af Guðjóni Samúelssyni.