Morgunblaðið - 27.11.2020, Page 92
BALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ
10% AFSL.
AF ÖLLU Í VERSLUNINNI
25% AFSL.
AF ÖLLU Í VERSLUNINNI
30-50% AFSL.
AF ÖLLU Í VERSLUNINNI
KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ
OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM
Í VEFVERSLUN OKKAR
Kvikmyndin Agnes Joy verður framlag Íslands til
keppninnar um bestu erlendu kvikmyndirna á næstu
Óskarsverðlaunahátíð. Myndin var valin í keppnina af
dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarps-
akademíunnar. Agnes Joy var valin kvikmynd ársins á
Edduverðlaununum í ár. Silja Hauksdóttir leikstýrði og
skrifaði einnig handritið ásamt Göggu Jónsdóttur og
Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur. Tilkynnt verður 15.
mars hvaða erlendu kvikmyndir komast í lokakeppnina
um verðlaunin en þau verða afhent 25. apríl.
Kvikmyndin Agnes Joy verður fram-
lag Íslands til keppni um Óskarinn
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 332. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Ísland sigraði Lúxemborg 90:76 í forkeppni HM 2023 í
körfuknattleik í Eurovia Aréna í Bratislava í Slóvakíu í
gær. Riðill Íslands er kominn í hnút eftir gærdaginn en
Ísland, Slóvakía og Kósóvó eru öll jöfn eftir þrjá leiki í
forkeppninni. Tvö lið komast áfram á næsta stig keppn-
innar en á morgun mætir Ísland liði Kósóvó sem tapaði
fyrir Slóvakíu í gær.
Lúxemborg var yfir 38:34 að loknum fyrri hálfleik. En
íslenska liðið þurfti smá tíma til að hrista sig saman og
sleit sig frá Lúxemborg í síðari hálfleik. »77
Allt í hnút í riðli Íslands í for-
keppni HM karla í körfuknattleik
ÍÞRÓTTIR MENNING
að þegar hann var þar í landi hafi
hann iðulega heimsótt kaþólskar
kirkjur og kveikt þar á kertum. „Ég
hef séð ansi marga kertastanda í
kirkjum en samt hef ég aldrei unnið
sambærilegt verk og þennan bæna-
kertastand,“ segir Sigurður Árni.
Listamaðurinn segir að töluverð-
ur munur sé á kertastöndum í
kaþólskum og lúterskum kirkjum,
þótt hann hafi ekki gert fræðilega
úttekt á því. Kertastandar séu
komnir í margar kirkjur á Íslandi
og þeir virðist vera mun veglegri en
víða í kaþólskum kirkjum í Frakk-
landi.
„Kópavogskirkja er ótrúlega fal-
leg,“ segir Sigurður Árni, sem fékk
fyrirtækið Geislatækni til að skera
verkið til og sjóða hluti saman.
„Ég styðst við bogana í arkitekt-
úr kirkjunnar og bæti við kross-
markinu, sem er eins og hryggj-
arstykki í bænakertastandinum.“
Sjö sé heilög tala og kertahillurnar
minni meðal annars á hæðirnar sjö
til ljóssins. Þrír fætur sökkulsins
vísi til hinnar heilögu þrenningar,
föður, sonar og heilags anda. „Fæt-
urnir sjálfir taka mið af tréverkinu
eftir Hörð Ágústsson sem er inni í
kirkjunni.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bænaljósastandur eftir Sigurð Árna
Sigurðsson myndlistarmann verður
formlega tekinn í notkun í Kópa-
vogskirkju 29. nóvember, fyrsta
sunnudag í aðventu, og verður
streymt frá athöfninni. Verkið er
gjöf fjölskyldu tengdrar kirkjunni.
Sr. Sigurður Arnarson, sóknar-
prestur í Kópavogskirkju, segir að
bænaljósastandurinn sé mikið lista-
verk og gjöfin sýni vel hug fjölskyld-
unnar til hennar. „Síðan ég tók við
þjónustu hér 2009 hef ég átt mér
þann draum að Kópavogskirkja ætti
svona grip enda hafa sóknarbörn
lengi talað á sömu nótum,“ segir Sig-
urður.
Kópavogskirkja er listaverk í
sjálfu sér. Gerður Helgadóttir gerði
steinda glugga hennar, altaristaflan
er eftir Steinunni Þórarinsdóttur,
forgöngukross og tveir kertastjakar
eru eftir Evu Björnsdóttur og auk
þess á kirkjan listaverk eftir Bar-
böru Árnason, Benedikt Gunnarsson
og Hörð Ágústsson. „Verk Sigurðar
Árna fellur vel inn í kirkjuna og önn-
ur listaverk sem hér eru,“ segir Sig-
urður.
Öðruvísi verk
Í liðinni viku var opnuð í Lista-
safni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum
yfirlitssýningin „ÓraVídd“ á verkum
sem spanna um 30 ára feril Sigurðar
Árna. Málverkið hefur alla tíð loðað
við hann en hann hefur einnig farið
út fyrir það með góðum árangri,
meðal annars með því að skapa þrí-
víð verk.
„Myndlistin leiðir mann út og suð-
ur og upp á síðkastið hef ég verið að
færa mig inn á upphleypt veggverk,“
segir hann. Bætir við að allt síðasta
ár hafi hann að mestu unnið að und-
irbúningi sýningarinnar á Kjarvals-
stöðum, en opnun hennar hafi frest-
ast vegna kórónuveirufaraldursins.
Sigurður Árni lærði og bjó lengi í
Frakklandi og hefur meðal annars
starfað sem gestakennari við Lista-
háskólann í Montpellier. Hann segir
Hæðirnar til ljóssins
og heilög þrenning
Listaverk eftir Sigurð Árna Sigurðsson í Kópavogskirkju
Ljósmynd/Hreinn S. Hákonarson
Í Kópavogskirkju Sigurður Árni Sigurðsson við bænaljósastandinn.