Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Blaðsíða 11
1!)01
<)
héraðinu, en auk þeirra er grunsamt, að 2 aðrir hafi ef til vill haft hana. Úr veikinni
dóu 4 börn.
Höfðahvei'fishérað: 10 sinnuni kom fyrir diphtheritis í umdæmi mínu á árinu;
auk þess var mín vitjað á 1 heimili utan umdæmisins til þess að segja um, hvort þar
gengi barnaveiki, enda hafði enginn læknir komið þar. Þar hafði þá fyrir skemmstu
dáið stúlka, 15 ára, úr veiki þessari. 2 aðrir á heimilinu höfðu þá barnaveikis-
einkenni: fullorðinn kvenmaður dálitla skóf í hálsinum og drengur 8 ára paralysis i
kokinu. Hvað hina 10 sjúklingana snertir, þá voru börnin tvisvar dáin, er ég kom til,
enda allt of seint vitjað læknis. í eitt skipti fann ég aðeins paralysis í kokinu, og hafði
sjúklingurinn gengið með hana í margar vikur án jæss að vitja læknis, en veikin hafði
byrjað með „hálsbólgu“, og á þvi heimili gekk barnaveiki árinu áður. Tvisvar sá ég
alls ekki sjúklingana, og' var mín ekki leitað til þeirra, en það kom upp síðar, að
sjúkdómurinn hlaut að hafa verið barnaveiki; annar þeirra sjúklinga dó. Þá eru eftir
5 sjúklingarnir; 2 af þeim sá ég, er þeir voru mjög langt leiddir, og var full þörf á að
gera barkaskurð á öðrum, en verkfæri til þess hafði ég þá ekki með, og náðist ekki
til mín aftur, áður en þeir dóu; árangurslaust sprautaði ég inn sterkum skammti af
»serum“, enda höfðu sjúklingarnir þá haft veikina í viku eða lengur. Á 2 sjúk-
lin gum gat ég gert seruminjection i byrjun veikinnar, báðir höfðu D. pharyngis &
laryngis, og' batnaði báðum, án þess gera þyrfti barkaskurð. Ég trúi því, að fátt af
börnunum hefði þurft að deyja, ef þau hefðu notið fullrar læknishjálpar, fengið
seruminjectionir í tæka tíð og barkaskurðir verið gerðir, er þær hefðu elcki hrifið.
Aðallega er hér um að kenna vanrækslu á að leita læknis í tíma.
4. Hettusótt (angina parotidea).
Hún kom fyrir í 4 héruðum, öllum á Vesturlandi. Allir héraðslæknarnir þar
geta hennar stuttlega í aðalskýrslunum:
Ólafsvíkurhérað: Hettusótt sá ég á 2 sjómönnum i júnímánuði. Þeir voru báðir
af sama skipi og' kváðust hafa fengið veikina vestur á Dýrafirði. Lágu í hálfan mánuð
»ueð parotitis og' orchitis töluvert þungt haldnir.
Þingeyrarhérað: Hettusótt, sem brytt hafði á í Önundarfirði síðast á árinu
1900, barst hingað vestur á bóginn eftir áramótiri og stakk sér niður hér og hvar
fram á suinar. Síðan í júlí hef ég ekki orðið hennar var.
ísafjarðarhérað: Hettusótt hefur komið fyrir í 8 fyrstu mánuðum ársins, en
ekki verður séð, hvaðan hún hefur komið.
Strandahérað: Væg hettusótt gekk víða yfir í héraðinu í janúannánuði og fram
í febrúar. Dó svo út. 2 sjúklingar leituðu mín; hafði grafið í parotis á báðum, sem
riiun mjög sjaldgæft.
5. Taugaveiki (febris typhoidea)
var með tíðara móti. Voru skráðir 278 á árinu, og er það talsvert fleira en nokkur
riæstu ár á undan. Hér kemur það helzta sem héraðslæknarnir hafa frá henni að
segja:
Reijkjavikurhérað: 10 manneskjur tóku þessa sótt, svo að mér sé kunnugl.
Taugaveiki er heimasótt í Reykjavík. En aldrei hefur sólt þessi undanfarin ár náð
2