Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Blaðsíða 38
1902
3(5
mönnum. Skipti mjÖg i tvo horn um skaðvæni þessara faraldra: Sá innlendi var afar
skæður eins og áður, svo að af 59 sjúklingum dóu 27, en hinn mátli teljast vægur í
samanburði við það, því að af nálega jafnmörgum, sem skráðir voru með sóttina, l>á er
innflutt var, eða 57 samtals, dóu aðeins 3, og svktust þó fleiri en skráðir voru.
Læknar láta þessa getið:
Reykjavílciirhérað: Þessa sjúkdóms hefur ekki orðið vart mörg undanfarin ár,
og ekki er mér unnt að gera grein fyrir því, hvaðan hann nú hefur borizt hingað.
Hann byrjaði í húsi, þar sem margt fólk kom úr Vestmannaeyjum, og má vera, að
sóttkveikjan sé þaðan komin, en hitt getur líka hugsazt, að veikin hafi borizt hingað
að norðan, en þar mun lnin hafa haldið til mörg undanfarin ár.
Skipaskagahérað: Hér kom illur gestur, sem, að því er mér er kunnugt, hefur
ekki gert vart við sig í héraðinu síðastliðin 16 ár. Það var barnaveiki (croup). Sem
betur fór, fengu aðeins 4 börn veikina, og dóu þau öll. Þetta var á 3 heimilum. Fyrstu
tilfellin 2, sitt á hvorum bæ, komu upp um sama leyti (22. desember), og var mín
ekki vitjað til þeirra. Það var stúlka, 3 ára, og drengur, 7 ára, og' dóu þau bæði eftir
sólarhrings legu. Á jóladagsmorgun var min vitjað á þriðja heimilið. Þar voru 0
börn á mismunandi aldri, 2 börnin voru þar veik, og var annað dáið fyrir ca. hálf-
tíma, áður en ég kom, 6 ára gömul stúlka. Hitt barnið var alveg aðfram komið og dó
um kvöldið. Það var einnig stúlka, 4 ára að aldri. Ég sá mér lítt fært að reyna tra-
cheotomi á síðara barninu, þar sem það var mjög aðfram komið, enda var húsakynn-
um svo varið, að naumlega var hugsandi, að það gæti lánazt, bæði loftlítið og óþrifa-
legt, en engin tæki til að flytja það nær mér sökuin vegalengdar frá heimili mínu og
annarra óþæginda. Á þessu sama heimili voru önnur 2 börn lasin af angina catarr-
halis, en þeim batnaði fljótt aftur. Veikin byrjaði með venjulegu kvefi og aðlcenn-
ingum í hálsi, sem lítill gaumur var gefinn í fyrstu.
Barðastrandarhérað: í aprílmánuði barst hingað diphtheritis með norsku hval-
veiðaskipi, og sýktust alls 14 i héraðinu. Þar af dóu 2 fullorðnir (Norðmenn).
Hesteyrarhérað: Illkynjuð kverkabólga (43 tilfelli, 1 dáinn) kom hingað með
Norðmönnum frá Haugasundi í Noregi, en þeir seltu hér upp hvalastöð i Hesteyrar-
firði í apríl. Veikin var yfir höfuð væg, og dó aðeins 1 af hér um hil 80 manns, sem
alls munu hafa veikzt af henni. Sumir höfðu aðeins fengið sárindi í hálsinn og voru
ávallt við verk sitt og sýndu sig ekki lækni. Flestir af sjúklingunum Iágu ekki nema
3—7 daga, þá alhraustir, og' gengu undir eins til vinnu sinnar, margir úti í illu veðri
og' illa klæddir, án þess að þeim versnaði aftur. Þess skal getið, að bannaðar voru
allar samgöngur milli þeirra og héraðsbúa, og hefur ekkert tilfelli komið fyrir af
þessari veiki á nokkrum íslending í þessu héraði.
Akureyrarhérað: Diphtheritis hefur aðeins gert vart við sig á einum bæ þetta
ár, svo að mér sé kunnugt. Hún tók þar börn og fleiri heimilismenn, en mín var
leitað aðeins lil eins sjúklings, sem var þungt haldinn og hafði fengið mikið drej) í
kverkarnar. Eftir veikina l'ékk hann nrjög útbreitt máttleysi og vöðvarýrnun, en
komst þó á endanum tii heilsu.
Höfðahverfishérað: Diphtheritissjúklingur sá, er hér er talinn, var úr Akureyr-
arhéraði, 25 ára piltur, og virtist vera úr hættu, þegar hingað var leitað. Annars hefi