Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Blaðsíða 107
105
1904
Eyrarbakkahérað: Hollustuhættir eru hér á heldur lágu stigi; þó fara húsakynni
talsvert batnandi, einkum að því leyti, að járnið útrýmir torfinu, og' moldargólfin
hverfa. Eitt af því, sem stuðlar að óhollustu hér, er hin afar mikla fátækt, sem
margir búa við. Karlar og konur, sem ekkert eiga til, flytja saman ógift í einhvern
kofa hér i sjávarþorpunum og hlaða niður börnum. Þegar nú margt þessa fólks er
óþrifið að eðlisfari, og svo bætist fátækt ofan á, er eigi við góðu að búast. Mjög mikill
munur er á því, hvað alþýða manna er óhreinlegri hér en þar, sem ég þekki til á
Norðurlandi.
4. Mataræði.
Læknar láta þessa getið:
Boryarfjarðarhérað: Hvað mataræði snertir, er helzta breytingin sú, að fiskur er
alltaf að verða fágætari í þessum sveitum, einkum harðfiskur, og mun það aðallega
stafa af því, hvað örðugt er að fá fiskinn, og líka er það vegna hins háa verðs, sem
nú er á fiski. Neyzla haframjöls og knosaðra hafra er allmikið að fara í vöxt í þessu
byggðarlagi. Er haframjölið einkum notað í grauta sainan við skyr' á sumrum, og
þykir góður matur. Rúgkaup eru fremur að minnka, en í þess stað er „overhead"-
mjöl tekið, og' er það oft misjafnt að gæðum.
Ólafsvikurhérað: Lifnaðarhættir manna hér um slóðir eru svipaðir og í öðrum
sjóþorpum hér á landi. Aðalfæðutegund manna er fiskur í ýmsum myndum. í sjó-
þorpunum er lítið um mjólk. Jarðarávexti (rófur, kartöflur) rækta menn hér ekki
óvíða og hafa töluverðan styrk af þeim til manneldis. Áfengisnautn er hér engin, svo
að teljandi sé, enda er engin vínfangasala i héraðinu, en kaffinautn og tóbaksneyzla
er víða fram úr hófi.
Reykdælahérað: Matarhæfi manna er bezt á haustin og framan af vetri, meðan
menn hafa nýtt kjöt, slátur og næga mjólk; siðari part vetrar og framan af sumri lifa
menn mikið af kornmat; margir geta aflað sér fisks yfir sumarið, og er hann þá
aðalfæðan, ásamt korn- og mjólkurmat, því að ekki eru það margir, sem eiga kjöt
og slátur frá því haustið áður.
Öxarfjarðarhérað: Fólk lifir hér mest á kjötmat, ýmislega tilreiddum, því að
Htið er um fiskmeti, og hef ég ekki orðið annars var en allur matur væri viðunan-
lega til búinn og þrifnaður og meðferð hans allgóður. Ósköpin öll lifa menn einnig
hér sem annars staðar á kornmat. Menn hér eru mjög reglusamir, hvað áfenga drykki
snertir, enda fást þeir ekki hér um slóðir á svæðinu frá Akureyri til Seyðisfjarðar.
Varla sést maður drukkinn.
5. Meðferð ungbarna.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskagahérað: Allflestar mæður hafa börn sín á brjósti og það stundum fram
undir ár og yfir það. Hér við sjóinn hættir fólki oft við að gefa ungbörnum of
snemma þunga og óhentuga fæðu, og' á ég hér einkum við kartöflur og saltmeti, sem
stundum er byrjað að gefa börnunum nokkurra mánaða gömlum, en þetta á sér helzt
stað hjá hinum fátækari, sem ekki hafa mjólkina. Þetta má telja eina hina helztu
orsök þess, hve meltingartruflanir og iðrakveisa eru algengir sjúkdómar hér á ung-
Framh. á 110. siðu.
14