Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Blaðsíða 95
93
1904
Mikil áraslcipti hafa verið að tíðni lungnabólgunnar, en á hlutfallslegri dauðatölu
niunar ekki miklu. Annars er tölurnar minna að marka vegna þess, að auðséð er sums
staðar og annars staðar grunur um, að kveflungnabólgu sé ruglað saman við pn. croup.
Læknar láta þessa getið:
Borgarfiarðarhérað: Upp úr kvefsóttinni og jafnframt henni bar mjög mikið á
lungnabólgu. Voru svo mikil brögð að henni um þær mundir, að víða lágu 2 og 3 í henni
á bæ í einu. Ekki var lungnabólga þessi skæð, þó að flestir yrðu mikið veikir, sem sjá
iuá af því, að af þeim 42 sjúklingum, sem mín leituðu, dóu aðeins 2, og var annar
þeirra mjög brjóstveik kona á sjötugsaldri. En margir af sjúklingum þessum voru
komnir á efri ár. „Albuminuria" var almennari í þessari lungnabólgu en ég hefi áður
þekkt, því að hjá 26 sjúklingum, sem ég rannsakaði úr þvagið, var eggjahvíta í því 6
sinnum. Brjósthimnubólga kom tvisvar fyrir upp úr lungnabólgunni.
Mýrahérað: Lungnabólga (pn. croup.) hefur verið miklu tíðari og lagzt þyngra á
fólk þetta ár en árin á undan; komu nú fyrir af henni 11 tilfelli, flest þung, og 2 dóu,
annar maður á bezta aldri, heilsugóður undir, en hafði einu sinni áður haft lungna-
ból gu í sama lunganu, hinn lungnaþembusjúklingur um sjötugt. 1 maður um tvitugt
fékk brjósthimnumein (empyema pleurae) upp úr henni, og gerði ég á honum resectio
costae og ojinaði brjóstholið til að hleypa úr greftinum.
Reyðarfiarðarhérað: Af landfarsóttum skal ég' sérstaklega geta um pneumonia
crouposa, því að ég verð að telja þann sjúkdóm í þeim flokki nú. í ár hafa
komið hér 41 sjúklingur til minnar vitundar með þann sjúkdóm, þar sem ég að
Undanförnu hef ekki haft fleiri en 3—4 á ári. Á þessum sjúkdómi bar fyrst í júní-
mánuði (eftir júníferð Hóla hingað austur), og verð ég' að álíta, að sjúkdómurinn sé
að sunnan kominn með sjómönnum. Þessi sjúkdómur reyndist hér mjög skæður,
þar sem úr honum dóu 12 af 41. Ég skal þó geta þess, að margir þeirra, sem dóu,
voru aldraðir menn, komnir yfir 60 ára aldur.
Vestmannaeijjahérað: Lungnabólgan, sem byrjaði hér 1903, hélt áfram í júlí;
flestir sýktust í marz (9) og í júní (8), alls 26 á árinu; af þeim dóu 5.
Eyrarbakkahérað: Pneumonia crouposa, sem er tíðari þetta ár en nokkru sinni,
síðan ég kom í hérað þetta, kom upp úr kvefi, en flestir fengu hana, eins og vant er,
ún nokkurra vitanlegra orsaka, þótt vosbúð og ofkælingu mætti kenna um á stöku
manni. Svo mætti ætla, þegar litið er á dauðratölu veiki þessarar í meðfylgjandi
skýrslu um farsóttir, sem hún hefði verið sérstaklega illa kynjuð, þar sem 10 deyja
af 24 sjúklingum, en þess ber að gæta, að þeir 10 sjúklingar, sem dóu, voru 87, 79,
76, 74, 74, 73, 70, 65 og 60 ára, aðeins 1 tæpra 50 ára, og á slíkum aldri er tæplega við
lágri dauðatölu að búast.
15. Kvefsótt (bronchitis incl. pneumonia catarrhalis).
Sjúklingafiöldi 1901—1904: 1901 19n2 i903 1904
Sjúklingar........................... 904 1841 1635 1981
Kvefsótt er þetta ár skráð oftar en árin á undan, en dauðratala hlutfallslega
langt um lægri. Eins og bent er á í kaflanum um inflúenzu, er sennilegt af lýsing-
um sumra læknanna, að sumir sjúklingar, er sltráðir voru með kvefsótt, hafi haft