Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Blaðsíða 40
1902
38
héraði, og Siglufjarðarlæknir telur sóttina koma i sitt hérað úr Eyjafirði. Héraðs-
læknirinn í Akureyrarhéraði telur aftur á móti engan kighósta fram. Hins vegar telja
héraðslæknarnir í Höfðahverfishéraði og Húsavikurhéraði hiklaust, að sóttin hafi
flutzt í sín héruð úr Akureyrarhéraði. Mun það og sannast, að hún hafi byi’jað þar
í april, en verið talin kvefsótt (sjá kaflann um kvefsótt). Auk þess, sem jafan má
gera ráð fyrir, að læknar fái oft enga vitneskju um létt haldna og' fjarlæga kíghósta-
sjúklinga, má því telja víst, að þetta ár hafi þeir verið óvenjulega vantaldir, bæði
vegna þess, sem nú var getið um Akureyrarhérað, og vegna þess, að enginn er skráð-
ur með kíghósta úr Sauðárkrókshéraði, og segir þó héraðslæknir frá faraldri þar, er
gengið hafi um allt héraðið.
Læknar láta þessa getið:
ísafjarðarhérað: Tussis convulsiva barst hingað með síðustu ferð Vestu norðan
um land fyrst í nóvember. Með því skipi komu farþegar af ýmsum höfnum norðan-
lands (Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum), þar sem kíghóstinn gekk, og dreifðust
þeir farþegar hingað og' þangað í verstöðvarnar hér í kring. Þó vissi ég ekki af nema
19 tilfellum fyrir árslokin, og voru engin mjög áköf.
Blönduóshérað: Kíghósti barst hingað úr Skagafirði um árslokin, og komu fyrir
eigi allfá tilfelli í desembermánuði, en eigi urðu þó mikil brögð að honum til áramóta.
Sauðárkrókshérað: Kíghósta varð fyrst vart hér í september, og kom hann hing-
að norðan úr Fljótum eða Siglufirði. Hósti þessi hefur nú gengið yfir allt héraðið
og mátt heita vægur. Þó liafa nokkur börn dáið úr afleiðingum hans, en þau liafa
öll verið ung, innan tveggja ára, ei'tir því sem ég lief haft spurnir af. Því miður hel'
ég eigi getað bókfært á liðnu ári neitt af þessum kíghóstasjúklingum sakir veikinda
minna, sem einmitt voru um sama leyli og hóstinn gekk,
Hofsóshérað: Um kighóstann hafa verið skiptar skoðanir. Einstöku læknar hafa
haldið því frain, að hér væri aðeins um illkynjað kvef að ræða, sem þeir hafa nefnt
bronchitis capillaris, en neitað gersamlega kíghóstafaraldi. Að svo miklu leyti sem
ég hef frekast vit á, hafa báðir þessir kvillar gengið hér jafnhliða þetta síðasta ár.
Siglufjarðarhérað: Kíghóstinn geisaði hér í sumar, og jafnvel þótt hann væri
yfirleitt ekki mjög skæður, þá dóu þó nokkur börn úr honum, eða réttara sagt
lungnabólgu, er fylgdi sjúkdómi þessum á æði mörgurn börnum. Veikin byrjaði hér i
firðinum fyrri part júlímánaðar, og hefur að öllum líkindum borizt hingað með
strandferðabátnum „Skálholti“ frá Eyjafirði. Tók veikin flest öll heimili, en var
fremur væg, eins og áður er getið, yfirleitt. Þó var hún í algleymingi sínum á sumum
börnum, svo að blóðið spýttist út uin vitin á þeim.
Höfðahverfishérað: Kíghósti gekk töluverður síðastliðið suinar. Ég varð sýkinn-
ar fyrst var í maímánuði á Akureyri, og' þaðan kom hún í mitt Iæknishérað. Yfirleitt
var veikin með vægara móti, sem mest mun vera því að þakka, að hún kom á heppi-
legum árstíma, svo að börnin gátu flest fengið nóg af hollu andrúmslofti, og því var
ekki heldur til mín leitað nema fyrir 20 börn, en af þeiin dóu 2, annað ársgainalt, úr
lungnabólgu, er það fékk upp úr kíghóstanum, hitt á 1. ári, og væri það að vísu
mjög mikið mortalitet, ef ekki hefðu miklu fleiri sýkzt.
Húsavikurhérað: Kíghósti barst í vesturpart héraðsins síðari hluta ársins (lík-
lega í októbermánuði) að innan frá Fnjóskadal og Svalbarðsströnd. Ég veit um veik-