Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Blaðsíða 100
1904
98
lendingar veikina óðara upp hingað aftur, því að fjöldi útlendra sjómanna er hér
árlega tímum saman.
2. Berklaveiki (tuberculosis).
Skráðum sjúklingum með berklaveiki fór enn fjölgandi. Hér er
Tafla um skráningu berklaveikra sjúklinga 1901—1904.
i ÍH Sjúklingar
Ár .s « c «o rt rt — U rC3 ^ ‘0) r-1 ~ — með lungna- berkla * U C3 «1 g'S
1901 27 141 63
1902 29 164 95
1903 32 208 113
1904 34 241 151
Ekki verður um það dæmt, að hve miklu leyti þessar hækkandi tölur stafa af
raunverulegri sjúklingafjölgun og að hve miklu leyti af fjölgun lækna og batnandi
framtali.
Læknar láta þessa getið:
Mýrahérað: Miklu fleiri sjúklingar með berklaveiki í lungum hafa leitað til
mín þetta ár en undanfarin ár (13 nú, 5 í fyrra og 2 í hitteðfyrra), en ekki þarf það
að benda á, að veikin sé að útbreiðast hér til muna, því að af þessum 13 eiga 2 ekki
heima í héraðinu, voru hér aðeins í sumarvist, og fyrir víst 5 af þeim 11, sem þá eru
eftir, hafa fyrir fleiri eða færri árum leitað læknis vegna sjúkdómseinkenna, sem
benda á, að veikin hafi þá verið byrjuð, en hafa síðan leg'ið niðri eða borið svo lítið
á lengri eða skemmri tíma, að þeir hafa ekki leitað læknis á ný fyrr.
Vopnafíarðarhérað: ískyggilegasta veikin er berklaveikin, sem nú virðist í hraö-
fara framþróun.
Fljótsdalshérað: Talsvert hefur borið á berklaveiki í héraði þessu eins og að
undanförnu. Þannig hafa leitað til mín 9 sjúklingar með tub. pulm. með 1 dauðs-
falli og 12 sjúklingar með tub. al. loc. Ber hér sérstaklega talsvert á adenit. tub.
bæði á börnum og' fullorðnum, og' er það helzt á þeim bæjum, þar sem fólk hefur
verið með lungnaberkla.
3. Geislasveppsbólga (actinomycosis).
Getið er um 2 sjúklinga. Annar er talinn með actinomycosis colli í skýrslu uni
sjúkrahús St. Josephs systra i Reykjavík. Hins er óbeinlínis getið í aðalskýrslu úr
Fljótsdalshéraði, þar sem „exstirpatio actinomycosis faciei“ er talin meðal læknis-
aðgerða. Frá hvorugum er neitt sagt að öðru leyti.
4. Holdsveiki (lepra).
Þetta ár voru aðeins taldir á mánaðaskrám 5 sjúklingar með líkþrá (1. tuberosa)
og' 3 með limafallssýki (1. anaesthetica). Munu þeir hafa verið nýíundnir, flestir eða