Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Blaðsíða 45
43
1902
’víða ekki nema 1 eða 2 í héraði. Geta fæstir læknanna hcnnar, svo að teljandi sé, í
aðalskýrslum sínum og enginn svo, að verulegt sé á að græða. 1 er talinn dáinn úr
sóttinni (í Fljótsdalshéraði).
12. Lungnabólga (pncumonia crouposa).
Hún var miklu tíðari en árið áður. Vofu skráðir 306 alls, en ekki nema 172 árið
á undan, enda var hún talin óvenjulega fátíð þá. Að vísu mun sumt, sem er talið pn.
croup. í farsóttaskýrslunum, hafa verið kveflungnabólga, og bendir m. a. lil þess það,
seni um sóttina er sagt úr Siglufjarðarhéraði og Akureyrar. Hér er það helzta, sem
iun hana er getið í aðalskýrslunum:
Reijkjavikurhérað: Á lungnabólgu hefur bólað með minnsta móti. 17 sjúkir --
4 dauðir. Mun j>að stafa af hinu g'óða tíðarfari.
Borgarfjarðarhérað: Lungnabólga (pneumonia crouposa) hefur gengið með
mesta móti í héraðinu þetta árið. Mest bar á henni í mánuðunum apríl—ágúst, að þeim
báðum meðtöldum.
Olafsvíkui’hérað: Lungnabólga stakk sér niður við og við á árinu. Alls sýktust 8
sjúklingar (7 skráðir jneð pn. croup.). Skæðust var hún í júní. Þá sýktust 3, og voru
allir mjög þungt haldnir.
Siglufjarðarhérað: Lungnabólga kom 22 sinnum fyrir (13 skráðir með pn. croup.)
cða í öllum mánuðum ársins nema 2 hinum síðustu (nóvember og desember). Raunar
var sjúkdómur þessi í mánuðunum júlí, ágúst og september oftast samfara ldghóst-
anuin.
Akureyrarhérað: Lungnabólga (crouposa og catarrhalis) hefur verið mjög al-
geng, en aðeins fylgt kvefinu og verið afleiðing þess.
13. Kvefsótt (bronchitis incl. pneumonia catai'rhalis).
Meira en helmingi fleiri voru skráðir með kvefsótt en árið á undan (þetta ár
'841, þá 904). En þess ber að gæta, að sumir af þeiin, sem þetta ár voru skráðir með
kvefsótt, hafa verið kighóstasjúklingar. Er það nokkurn veginn víst um suma í Ak-
Ureyrarhéraði og líklegt, að eitthvað hafi borið á því viðar. Þá minna og lýsingar úr
sumum héruðunum æðimikið á inflúenzu, og skal um það vísað til kaflans um inflú-
enzu hér á undan og útdráttanna úr aðalskýrslunum hér á eftii', en þar er þetta hið
nierkasta, er læknar láta getið:
Borgarfjarðarhérað: Mest hefur borið á kvefsótt (tracheobronchitis acuta) af
farsóttum þetta árið. í janúarmánuði geklí víða kvef hér um sveitir, en var fremur
vægt, og eins og að undanförnu var kvef að stinga sér niður í héraðinu hér og þar
traman af árinu, en fæstir leituðu læknis við því. En svo kom hingað fyrstu dagana
í júlí mjög illkynjuð og langvinn kvefsótt. Eg varð fyrst var við hana í Borgarnesi,
°g er ætlun mín, að hún hafi borizt þangað úr Reykjavík með gufubátnum. Kvefsótt
þessi var mjög' næm og breiddist fljótt út um héraðið og kom á flesta bæi. Hún stóð
hér yfir fram í miðjan ágúst. Lagðist hún einkum þung't á ungbörn og varð stundum
capillær og mörg fengu þau lungnabólgu. Hitaveiki talsverð fylg'di veikinni oftast,
þótl ekki væru fylgikvillar.
Mýrahérað: Kvefsóttin lagðisl allþungt á ungbörn á nokkrum bæjum í Kolbeins-