Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Blaðsíða 91
89
1904
Barnaveikinnar varð vart í 17 héruðum, mest á suðvestur- og vesturhluta lands-
ins. Á Norðurlandi var enginn skráður vestan Húsavíkurhéraðs. Sjúklingar. voru ná-
lega % fleiri en næsta ár á undan, en dauðratala jöfn, þ. e. þriðjungi lægri hlutfallslega,
sennilega vegna aukinnar serumnotkunar í tæka tíð.
Læknar láta þessa getið:
Reijkjavíkurhérað: Barnaveiki gerði lítið vart við sig; 6 börn fengu croup; 1 dó
af því, að það fékk serum of seint, öðru barni, sein ekki hafði fengið serum, gat ég
bjargað með barkaskurði. Serum virðist stöðugt gera ómetanlegt gagn.
Skipaskagahérað: í sambandi við hálsbólguna komu fyrir nokkur tilfelli af croup
og diphtheritis. Meðal annars var mín vitjað í október að Eystra-Miðfelli; þar veikt-
ust 3 börn af croup. Finim dögum síðar var mín vitjað að næsta bæ i sama hreppi,
Kalastaðakoti; þar var ársgamalt barn orðið yfirkomið af veikinni og dó 2 timum
eftir komu mína. Þangað hafði veikin borizt á þann hátt, að kona frá bænum hafði
komið að Eystra-Miðfelli 2—3 tímurn áður en ég kom þangað og menn vissu, hver
veikin var; kvaddi hún húsmóðurina og veika barnið með kossi, fór síðan beina leið
heim, og sú fyrsta, sem fyrir henni varð á hlaðinu, var húsmóðir hennar með yngsta
barnið sitt í fanginu, og rekur hún þeim báðum rembingskoss. Þannig hefur móðir
barnsins skýrt mér frá. AIls hafa komið fyrir mig 8 tilfelli af croup, 2 tilfelli af diph-
theritis. 1 öllum þessum tilfellum notaði ég seruminnspýtingu, og gafst það mjög vel.
Aðeins 2 börn með croup dóu, og' var mín í báðum tilfellunum vitjað of seint, og' þau
höfðu þe gar fengið kolsýrueitrun. Mörg af börnum þessum voru mjög þungt haldin
og sogin komin á hátt stig.
Borgarfiarðarhérað: Af barnaveiki komu alls fyrir 15 tilfelli á 9 hæjum. Hún
hefur nii verið hér viðloðandi í 15 mánuði og barst hingað fyrst, að því er ég' hygg',
nærri samtímis úr Reykjavík og af Akranesi í júnimánuði 1903. Hún hefur nú ekk-
ert gert vart við sig í 4 mánuði, og er nú vonandi útdauð hér um sveitir. 2 börn dóu
úr sóttinni, og' voru þau bæði aðfram komin, þegar ég kom til þeirra. Ég spýtti inn
>.diphtheriseruin“ i öllum tilfellunum og' álít það nærri óbrigðult meðal, sé það notað
í tíma.
Mýrahérað: Af barnaveiki (diphth. & croup) komu fyrir 2 tilfelli, og var í báð-
nm bæði barkinn og kokið veikt; i fyrra tilfellinu, sem kom fyrir í maí, bar þó mjög
lítið á þrengslum í barkanum, sennilega af því, að barnið dó svo snemma í veikinni,
nð hún hefur ekki verið komin á sitt hæsta stig þar; það dó á öðrum sólarhring, eftir
að fyrst varð vart veikinnar. Seruminjection var g'erð, en sást ekki, að hefði neina
verkun. í hinu tilfellinu, sem kom fyrir í ágústmánuði, brá aftur á móti mjög fljótt til
bata, eftir að serum var gefið.
Barðastrandarhérað: Af diphtheritis & croup veiktust alls 59 börn og unglingar,
sem ég sá alla sjálfur. Af þeim dóu 8. Flest crouptilfellin komu svo seint til vitundar
læknis, að eigi var hægt að bjarga lífi sjúklinganna með serum.
Hornafjarðarhérað: Barnaveiki, sem kom upp í Öræfum síðari hluta ársins 1903
og var mjög mannskæð á þeim bæjum, sem hún byrjaði á, breiddist ekkert út og gerði
hvergi annars staðar vart við sig í héraðinu. Þakka ég það samgöngubanni við hin
sýktu heimili og' öðrum varúðarreglum, er ég' gaf út í byrjun veikinnar og birti í öll-
Um hreppum héraðsins. (Ekkert tilfelli skráð í héraðinu),
12
i
L