Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Qupperneq 25
23
1901
Yfirsetukonurnar eru eitt af vandaniálum héraðsins. Konurnar eru flestar fimar
og duglegar, einnig', að svo miklu leyti sem ég veit, samvizkusamar — en hafa enga
hugmynd um antiseptik. Sumar eru orðnar svo gamlar, að þetta er algerlega eðli-
legt, en ungu yfirsetukonurnar eru engu betri. Þannig var ungri yfirsetukonu, er 3
honur sýktust hjá af barnsfararsótt, hver á fætur annari, gersamlega ókunnugt um
orsakir barnsfararsóttar og hvernig' henni megi verjast; aftur kom 1 af gömlu yfir-
setukonunum til mín þetta árið og þóttist hafa sök að kæra á hendur mér. Sökin var,
oð ég hafði sagt, að febr. puerper. orsakaðist af óhreinum höndum eða áhöldum yfir-
setukvenna. Henni þótti þetta mesta óhæfa, og undrar mig næstum, að hún skyldi
eigi kæra mig fyrir þetta, svo sannfærð var hún um, að slíkt væri hégilja ein. Eg
skildi svo við hana, að hún trúði mér alls ekki. Kona þessi, sem er nú orðin gömuí,
hefur lært í Höfn og leng'i fengizt við starf sitt.
Alls er getið um yfirsetukonur i skýrslum úr 28 héruðum, og voru öll yfirsetu-
kvennaumdæmi þar fullskipuð, nexna aðeins 3.
V. Slysfarir.
Allmargar slysfarir urðu á árinu. Eru, sem vænta má, þær einar taldar í skýrslum
héraðslækna, sem komu til þeirra kasta, en ekki t. d. drukknanir, sem alltaf eru tíð-
astar þeirra slysfara, er fjörtjóni valda. Af slysum þeim, er læknar segja frá, skulu
hér talin þau, er banvæn urðu:
Reykjavíkurhérað: Ung kona var við þvott inni í Laugum og datt í laugina. Meir
en helmingur af yfirborði Iíkamans var brunnið, og andaðist hún eftir fáa dag'a. Það
ber við á hverju ári, að kvenfólk brennir sig í Laugunum, og hefur áður hlotizt bani
nf. Bæjarstjórn hefur nú ákveðið að gera svo við Laugarnar, að slíkt geti ekki fyrir
komið framvegis.
Maður dó af svefnlyfjaeitrun, var drykkjumaður, í þetta sinn veikur eftir vín-
nautn og' gat ekki sofið; var honum þá gefið inn chloral og morphin í einni blöndu,
náði hann í glasið, meðan frá honura var gengið, og' sást, að hann hafði tekið á %
sólarhring 12 centigr. af morphini og 10 grömm af chlorali og þar af rneir en helm-
mginn í einu; hann dó 10% tíma eftir síðustu, stóru inntökuna. Læknar vissu ekki
11 in þetta fyrr en svo seint, að magaskolun var álitin gagnslaus.
Skipaskagahérað: Maður á Akranesi hjó sig með öxi í úlnlið vinsti'i handar,
h'óð skítugum tóbaksklút inn í sái'ið til að stöðva blóðrás og fór svo lil læknisins.
hrátt fyi'ir vandlega hreinsun á sárinu, fékk maðurinn graftarsótt og' dó eftir riima
viku.
Barðastrandarhcrað: Barn á Bíldudal, rúmlega ársgamall, náði í glas með
stryknini og' lét eitthvað af duftinu upp í sig, fékk krampa og var dautt eftir 10
mínútur.
Ringegrarhérað: Drengur, 13 ára, átti að taka hest, sem dró á eftir sér reipi, og
tjóðra hann. Drengurinn flæktist í reipinu, en hesturinn fældist og hljóp með hann
langan spöl. Þegar vart varð við slysið og drengurinn náðist, var hann meðvitundar-
laus. Það voru einstöku smá skeiniir á höfðinu, en bakið allt skinnlaust eftir ixiiiX’