Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Side 28

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Side 28
1901 26 » 4. Mataræði. Skipaskagahérað: Mataræðið er mjög mismunandi, og er matur bæði lítill og óhentugur á sumum fátækum heimilum, en aftur annars staðar betra. Borgarffarðarhérað: Fólk bcr um sveitir lætur nú í kaupstaðina hér um bil allt það fé, sem það fargar árlega, en tekur iit í staðinn skemmda og lélega kornvöru og lifir eingöngu á henni ásamt mjólkinni, sem víða er lítil að vetrinum. Skurður til heimilis er sama sem enginn hjá bændum, og kjöt er ekki borðað hjá flestum nema á hátíðum og' tyllidögum. Fiskmeti er nú minna keypt en áður og fremur lítið notað, helzt að sumrinu. Ólafsvíkurhérað: Mjólkurráð eru víðast í héraðinu mjög lítit og í Ólafsvík á vetrum jafnvel svo litil, að til vandræða horfir oft. Dalahérað: Fyrir 11 árum síðan var ekki í héraði þessu nema eitt einasta heimili, þar sem hrossakjöt var etið, að því er ég frekast lil vissi eða heyrði getið um, og það í svo stórum stíl, að það var nærri því einmeti fólksins að vetrinum, svo að sumt af þvi fékk skyrbjúg. Þó eru nú nokkur heimili, þar sem hrossakjöt er notað til mann- eldis við og við með þrifnaði og í öllu hófi, svo að auðvitað engum verður meint af. Selakjöt er og' notað og' etið á Fellsströnd og Skarðsströnd. Reykdælahérað: Híbýlin eru víða slæm, rök og köld, og fæða manna ekki sein hentugust, bæði af því að matvælin vilja víða skemmast sökum vankunnáttu i að geyma þau, og svo er matreiðslan sums staðar ekki í svo góðu lagi sem skyldi. Seyðisffarðarhérað: Hafragrjón og haframjöl, sem aðeins var þekkt hér fyrir 4 árum, er nú notað mjög svo mikið, og' fer notkun þess til manneldis sífellt í vöxt. Áður voru hrísgrjón brúkuð í staðinn. Mýrdalshérað: Annar algengasti sjúkdómur hér er kroniskur magakatarrh, og þarf engum getgátum til að dreifa um það, að cpusa morbi er ,,garðamaturinn“; á meðan hann endist, sení sums staðar er mest allt árið, er hann etinn af stjórnlausri ógengd, svo að fáir munu trúa, nema sem séð hafa, hvílík ósköp af kartöflum geta rúmast í einum mannsmaga við hverja máltíð, og það víða af þeim eingöngu og við- bitslaust. Dilatatio ventric.uli er því allt annað en fágætur sjúkdómur í þessu héraði — helzt undir Eyjafjöllum. Með dilatationinni, eða réttara sem afleiðing af henni, kemur hjartsláttur, hræðsla, titringur, neurasthenia, og svo endar allt í hysteri, sem ekki læknast nema sjúklingurinn komist á skynsamlega diæt. Eyrarbakkahérað: Lifnaðarhættir eru hér ár eftir ár hinir sömu, nema hvað íleira og' fleira fólk færist árlega úr sveitum í sjávarþorpin, en eftir því, sem þar fjölgar, verður atvinnan minni á hvern, og því fátækt mikil og viðurværi illt, eink- um ef vertíð bregzt. 5. Bólusetningar. Þær fórust víða fyrir, sums staðar vegna skarlatssóttarinnar, sums staðar (t. d. í Vopnafjarðarhéraði) vegna þess, að enginn kom til bólusetningar, þótt auglj'st væri í tæka tíð og ekki kunnugt um forföll. Sumum læknum reyndist bóluefnið ónýtt. Hér- aðslæknirinn í Akureyrarhéraði segir, að það reynist ónýtt ár eftir ár. Héraðslækn- irinn í Reykjavík segir, að sér hafi reynzt það vel og ætlar, að kvartanir um gagns-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.