Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Page 37

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Page 37
35 1902 sannað um uppruna sjúkdómsins hér í kaupstaðnum í febrúar (4 tilfelli), en að öll- uin líkindum hefur sóttin breiðzt út frá einhverju húsi, þar seni henni hefur verið leynt og þar af leiðandi engin sótthreinsun fram farið. 1 fékk nephritis og dó af ur- aernia. Tilfellin í júlí, ágúst og september og líka í október tel ég hafa koinið hingað úr Dýrafirði í 1 hús hér í kaupstaðnum og breiðzt þaðan út í nokkur hús önnur. Þau voru sum allalvarleg'. Akureijrarhércið: Skarlatssótt gaus hér upp í bænum i febrúarlok, án þess að ég gæti fengið noklcra vitneskju um, hvaðan.hún væri komin. Ég áttaði mig ekki strax á, hvað uin væri að vera, svo að veikin úthreiddist á 5 eða máske 6 sjúklinga alls. Læknir reyndi að beita samgönguyarúð og tókst þannig að kæfa veikína niður, svo að síðan hefur hennar orðið lítt vart. Þó var grunur um 2 sjúklinga síðar, og var annar þeirra frammi í Eyjafirði, en hinn hér í bænum, en ekki er fullvíst, að um skarlatssótt hafi verið að ræða. Á flestum sjúklingunum var veikin væg. Seyðisfjarðarhéraö: Skarlatssótt var að sinástinga sér niður framan af árinu. 3 hörn fengu otitis media og 1 þar að auki dacryocystitis. Hálfu ári eftir að sá sjúk- lin gur varð frískur af skarlatssóttinni, var honum komið hingað til lækninga. Hann hal'ði þá enn þá dacryocystitis suppur. sin. og' otit. med. supp. dextr. með talsverðri útferð. í því húsi, þar sem þessum sjúklingi var komið fyrir, kom nú upp ágústtilfellið af skarlatssóttinni hér í bænum. Fyrir mínum auguxn er hér dæmi upp á, að skar- latssóttkveikjan hafi haldizt lifandi í graftarútferð af skarlatssóttaruppruna í meira en G mánuði. Yfirleitt verður þó ekki annað sagt, en skarlatssóttin hafi verið hér mjög væg. Fáskriíðstjarðarhérað: Yfirleitt má segja, að sóttin hafi verið mjög væg. 3—4 sjúklingar voru þó allþungt haldnir. Af fylgikvillum má nefna abscessus peri- tonsillaris á einum og snert af nephritis á 2 sjúklingum. Eyrarbakkahérað: Á skarlatssótt bar mest í apríl og mai, en svo dró úr henni aflur um hásumarið, þegar sem mest var um sólskin og' þurrka, og eftir það kemur hún aðeins fyrir á stangli. Að vísu þykist ég viss um, að fleiri hafi fengið veikina en skýrsla mín um landfarsóttir ber með sér, því að ég hefi orðið þess var, að henni hefur verið leynt, eða hún hefur verið svo væg, að henni hefur eigi verið sinnt. Grímsneshérað: Skarlatssótt kom á fáa bæi, og lögðust 20 manns. Úr henni dóu 2. Hún var ákafari en árið fyrir, og sumir sjúklingarnir voru mjög þungt haldnir, þótt þeir fengju fulla heilsu. Keflavikurhérað: Skarlatssótt stakk sér niður hér og hvar allt til ársloka. Var hún yfir höí'uð að tala væg og fá tilfelli, sem höfðu hættulega fylgikvilla í för með sér. Illkynjuðust varð sóttin í Garðinum, enda varð hún þar útbreiddust. 3. Barnaveiki (diphtlieritis). Hún hreiddist mjög út, hafði aðeins orðið vart í 4 héruðum árið áður, en í 14 héruðum þetta ár. Var hún að kalla útdauð þar, sem hún hafði gert mestan usla 1901, í Akureyrar- og Höfðahverfishéruðum, aðeins 1 skráður í hvoru, þótt að vísu sé getið um, að fleiri hafi sýkzt. Mun barnaveikisfarsóttin, sem nú var í öðrum héruð- um, hafa verið komin þaðan beint eða óbeint, nema í 2 héruðum á Vestfjörðum, Harðastrandarhéraði og Hesteyrarhéraði, en í þau harst hún með norskum hvalveiða-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.