Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Page 58

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Page 58
1902 f)<) sem fyrir þekkingar- og efnaleysi skemmist sums staðar meira en skyldi. Matreiðsl- an, t. d. brauðgerðin, er ekki heldur sem fullkomnust. Nægan og góðan mjólkurmat hafa menn samt víðast hvar mestan tíma ársins. Fljótsdnlshérað: Af lifnaðarháttum manna í héraðinu er fátt að segja. Þeir eru auðvitað hinir sömu og víðast annars staðar í landinu. Að vísu er ekki ha>gt að segja annað en menn hafi víðast sæmilegt viðurværi, að því er mér er kunnugt, jafnvel þótt sums staðar sé fátækt. Eyrarbakkahérað: Undanfarin fiskileysisár hafa þrengt að almenningi hér við sjávarsíðuna, en aftur bætir úr fyrir mörgum garðrækt, sem hvarvetna er allvel stunduð. 5. Meðferð ungbarna. Læknar láta þessa getið: Skipaskagahérað: Allflestar mæður hafa börn sín á brjósti, að minnsta kosli fyrstu mánuðina, sumar 2—3 ár, en það er einkum hjá þeim efnaminni, sem ekki geta keypt mjólkina. Hirðing á börnum má einnig heita í g'óðu lagi, þótt sjá megi innan um óþrifnað og vanhirðingu. Þetta hefur þó mikið lagazt hin síðari árin. Þó skal ég geta þess, að enn einu sinni rakst ég á barn, sem var látið nota dúsu, og var því borið við, að barnið g'æti ekki drukkið úr vanalegum pela. Ég þreif dúsuna af barninu og kastaði henni í eldstóna. Annars vill það brenna við hjá mörgum, að ung- börnuin er gefin of snemma óhentug fæða. Borgarfjarðarhérað: Mjög margar mæður hafa ekki börn sín á brjósti eða þá um allt of stuttan tíma. Bera þær því ýmist við, að mjólkin falli ekki til brjóstanna, eða vörturnar séu of litlar eða sár á þeim. Um ungbarnadauða í héraðinu er mér ekki vel kunnugt, því að læknar fá engar skýrslur um hann, sem ætti þó að vera. Þó hygg' ég, að hann muni vera með meira móti þetta árið. Nauteyrarhérað: Því miður virðast mæður hér hafa ótrú á því að hafa börn sín á brjósti, þótt engin g'ild ástæða sé fyrir hendi. Þar sem ég hef getað komið því við, hef ég reynt að eyða þeirri ótrú, en oft átt erfitt. Til dæinis var ég einu sinni sóttur til konu, sem lá á sæng að fyrsta barni. Fannst mér sjálfsagt fyrir þá konu að hafa barn sitt á brjósti, enda hafði hún ekkert á móti því, en yfirsetukonan — ólærð — var á öðru máli. Meðan móðirin svaf og hvildist eftir fæðinguna, varð ég hvað eftir annað að taka pela með ógeðslegri dúsu af yfirsetukonunni, sem alltaf stakk þessu upp í barnið, ef ég hafði augun af henni eða gekk frá, þótt ég hvað eftir annað Ieiddi henni fyrir sjónir, að barnið hefði aðeins illt af þessu. Yfirleitt er það mest undir yfirsetukonunum komið, hvernig meðferð ungbarnanna er, því að þær eiga að kenna mæðrunum. Hestegrarhérað: Veikindi á ungbörnum eru hér fremur tíð, og mun orsökin til þess aðallega vera sú, að mæður hafa ekki eins títt börn sín á brjósti og ætti að vera. Kenna þær það því oftast, að þær séu svo veikar, að þær þoli það ekki, að barnið fá- ist ekki til að taka brjóstið, eða að þær megi ekki binda sig svo við barnið vegna heimilsanna. Að því er veiki þeirra snertir, skal tekið fram, að oftast mun hún vera hysteria, sem er hér mjög almenn. Hofsóshérað: Almennast munu konur hér hafa börn sín á brjósti, enda er víða eigi um annað að gera, því að búendur eru hér mjólkurlitlir margir hverjir,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.