Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Síða 87
85
1903
uiu yfirleitt er víða fremur bág'; dúsur eru líklega brúkaðar viðar en læknir veit af,
þótt flestar mæður neiti, en tennurnar segja oft eftir, því að börn brúka dúsur í mörg
ár, 3—4 á sumum stöðum. Verst er, að yfirsetukonurnar hafa litla hugmynd um
meðferð á ungbörnum og leiðbeina konum því í öfuga átt.
Vestmannaeijjnhérað: Það er almennur siður hér, að konur hafi börn sín á
brjósti; meðferð á ungbörnum góð og ungbarnadauði lítill. Á umliðnu ári hafa dáið
4 af 20 lifandi fæddum börnum eða 20%, og er það í meira lagi.
Rangárhérað: Meðferð ungbarna í góðu lagi, eftir því sem gerist.
Eyrarbakkahérað: Börn eru, einkum til sveita, alin of mikið ujip við pela, en
auðvitað er slíkt nokkuð upp og' niður. Brjóstið fá börn jió fremur í þurrabúðinni
við sjóinn. Meðferð barna mun viðast vera þolanleg, þótt ábótavant sé enn með
þrifnaðinn.
6. Bólusetningar.
Talið er, að bólusetningar hafi farið fram, eins og lög gera ráð fyrir, og gengið
vel í 8 héruðum. í 12 héruðum var ekki bólusett nema sums staðar og með misjöfn-
um árangri. í 3 héruðum kom bóla ekki út á neinum (kennt um bóluefni). í aðal-
skýrslum úr mörgum héruðum er ekkert minnzt á bólusetningar.
7. Skoðunargerð eftir kröfu lögreglustjóra.
Einnar er getið, úr Reykhólahéraði. Verður ekki séð af skýrslunni, hver hefur
verið ástæðan til þess, að skoðunargerðin þótti nauðsynleg, og ekki kveðst héraðs-
læknir hafa orðið neins vísari um banameinið.