Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Síða 106
1004
104
skipti var að minnsta kosti ekki að tala um, að það yrði notað, því að þá var húsið
sem sagt inni í húsi, og var verið marga daga að koma því upp. Auðsætt var, að ekki
dugði að ætla sér að reisa það í hvert sinn, sem einhverja óvænta farsótt bæri að
höndum og bráðrar einangrunar þyrfti við. Var því afráðið að taka ekki húsið ofan,
þegar einu sinni væri búið að reisa það, og til þess að afstýra því, að það fyki —
því að það hlaut það að gera sökum léttleikans — þá var það bundið niður mjög
rammlega. En þá kom fram annar ókostur á smíðinu. Húsið reyndist nefnilega svo
veig'alítið og' krókarnir, sem því var krækt saman með, svo veikir, að þegar það gat
ekki í storminum 13.—14. janúar þ. ú. (1905) fokið af grunninum, af því að það var
bundið niður, þá lagðist það saman, liðaðist í sundur og fauk á þann hátt. Sem betur
fór, var enginn sjúklingur í húsinu og' hafði ekki í það komið. Er þessu mjög illa
farið, því að viðbúið er, að hér geti, vegna hinna tíðu skipaferða, þegar minnst
varir, orðið þörf fyrir sóttvarnarhús. Og sorglegt er að hugsa sér, að fyrir verð
Döckerstjaldsins, sem fauk, hefði verið hægt að smíða miklu hentugra hús, að ég
ekki tali um varanlegra."
3, Húsakynni og þrifnaður.
Læknar láta þessa getið:
Ólafsvíkurhérað: Þrifnaður og hreinlæti manna á meðal fer sífellt í vöxt, þótt
enn vanti mikið á, að slíkt sé komið í það horl', sem æskilegt væri.
Reykhólahérað: Mér vitanlega hefur engin ný baðstofa né nokkurt annað íbúð-
arhús verið byggt í þessu héraði á hinu umliðna ári. Ég vænti breytinga á því, er
betri samgöngur koma, sem nú er von á í sumar.
Nauteyrarhérað: Ahnennir hollustuhættir eru á fremur lágu stig'i, sérstaklega
á Snæfjallaströnd. Þar eru einkuin sjómenn. Húsakynni eru þar víða þröng og
óhentug og' þrifnaður bágborinn. Drykkjuskapur er þar mikill.
Öxarfjarðarhérað: Húsakynni má telja í góðu meðallagi, þótt timburhúsin séu
fá, og menn hafa almennt talsverðan smekk fyrir því, sem betur má fara, bæði utan
húss og innan, og nýjar baðstofur, sem byggðar eru, eru loftgóðar og víða með ofn-
um. Þetta tekur sífelldum framförum ár frá ári, því að Þingeyingar eru yfirleitt
framfaramenn miklir.
Fljótsdalshérað: Yfirleitt mun mega segja, að þrifnaður sé í sæmilegu lagi í
umdæmi mínu, eftir því sein í sveitum gerist, og er fremur í framför; t. d. hafa
nokkrir búendur komið ú vatnsleiðslu í bæi sína, og hefur það aukinn þrifnað í för
með sér, þegar ætíð er nægilegt af hreinu, góðu vatni við hendina, svo að ekki þarf
að spara það, og skólpræsi fyrir óhreint vatn flytur það burtu aftur. Þá mun og all-
víða hætt þeim ósið að sópa baðstofur með sóp eða kústi, sem áður var algengt, en
gólfin þvegin eða strokin með votri rýju í þess stað. Enn fremur eru menn víða
orðnir varkárari með hráka sína, og sést óvíða, að hrækt sé á gólf, heldur í hráka-
dalla. En það gengur erfiðlega að fá menn til þess að hafa nóg af hrákadöllum, svo
að ekki sé hrækt á moldargólf í bæjum, eg enda erfitt að kenna mönnum að láta
það ógert.
Vestmannaeyjahérað: Bæði húsakynni og þrifnaður utan húss og innan fer
batnandi ár frá ári,