Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 90
1953
— 88 —
fýlastofninn á norðanverðu Atlants-
hafi, nú eða rétt fyrir 1930, og má
vera, að hún eigi eftir að ná til fleiri
fuglategunda ... Telja verður, að
mikil framför hafi orðiö i meðferð
psittacosis við tilkomu aureomycíns
og terramycíns. Hins vegar er þess að
gæta, að enn er mjög lítil reynsla af
lyfjunum. Jafnvel þótt reynslan yrði
góð framvegis, má vera, að eldra fólk
og vanfærar konur, sem áður dóu
flestar, yrðu enn hart úti, þótt beztu
aðferðum yrði beitt við meðferð
þeirra.“ Að svo stöddu treysti heil-
brigðisstjórnin sér ekki til að verða
við tilmælum um að létta banni við
fýlungatekju, en hefur málið til nánari
athugunar.
Vestmannaeyja. Varð ekki vart.
Björn Sigurösson, læknir á Keldum,
tók hér fýla til rannsóknar i sumar.
Tetanus:
Ekkert tilfelli mun hafa komið fyrir
á árinu.
Vestmannaeyja. Blóðvatn er oft not-
að, þar sem götuóhreinindi komast
i sár.
Vertigo:
Hin síðari ár hefur nokkuð gætt
faraldra að truflun jafnvægisskyns
með svima og annarri vanlíðan, og
mun læknum óljóst, hvað veldur. Á
síðast liðnu ári voru skráðir nokkrir
faraldrar að þessu i Rvik, en í ár er
þar skráður á farsóttaskrá aðeins 1
sjúklingur, í september: 20—30 ára
karl. Annars staðar er þessa kvilla
ekki getið, en vel má liann hafa verið
á ferli fyrir þvi.
B. Aðrir næmir sjúkdómar.
Krabbamein. Drykkjuæði.
Töflur V, VI, VII, 1—4, VIII, IX og XI.
1. Kynsjúkdómar (morbi venerei).
Töflur V, VI og VII, 1- -3.
1949 1950 1951 1952 1953
Gonorrhoea 375 208 220 24G 272
Syphilis 54 37 25 12 8
UIcus vener. »» 1 1 »» 4
Skráðum lekandatilfellum fjölgar
nokkuð aftur hin siðustu ár, en sára-
sóttartilfellum heldur enn áfram að
fækka.
Rvík. Miðaldra karlmaður lézt af
sárasótt í hjarta.
Hafnarfj. Lekanda gætti lítiö. Fiski-
skipin hafa ekkert siglt til útlanda á
árinu, en þaðan mátti helzt vænta
kynsjúkdóma.
Árnes. Stúlkubarn, nýkomið úr
Reykjavík, fékk útferð og einkenni
gonorrhoea. Hafði hún sömu einkenni,
meðan hún dvaldist fyrir sunnan, og
var sjúkdómurinn greindur þar; fékk
hún þar einnig meðferö. Sjúkdómur-
inn tók sig aftur upp hér; fékk stúlk-
an pensilinmeðferð, og batnaði henni
fljótt. Allir á heimili hennar voru
rannsakaðir, og fundust engin ein-
kenni gonorrhoea.
Hvammstanga. Lekandi 1 tilfelli,
sjómaður á skipi, sem hafði hér litla
dvöl.
Iiofsós. Aldrei þessu vant komu til
mín 4 sjúklingar með lekanda. Sýking
allra upprunnin utan héraðs.
Ólafsfj. 1 tilfelli af lekanda, útlend-
ingur af skipi, staddur hér í septem-
ber.
Breiðumýrar. Kynsjúkdómar hafa
víst aldrei verið skráðir í þessu hér-
aði.
Þórshafnar. 2 tilfelli af linsæri
skráð í júlí, stúlka úr Reykjavik og
piltur héðan af Þórshöfn. Bæði lækn-
uö með pensilíni.
Bakkagerðis. 2 lekandasjúklingar
skráðir í júní, sjómaður, sem kom frá
Reykjavik af vertíð og ráðskona hans.
Seyðisfj. Get ekki sagt, að kynsjúk-
dóma hafi orðiö vart á árinu. Að visu
hefur einstaka farmaður fengið pensi-
líninnspýtingu, bæði vegna gruns um
lekanda, eða þá að viðkomanda hefur
verið ráðlagt að fá hér eina inndæl-
ingu til öryggis.
Djúpavogs. Sjómaður, sem fengið
hafði meðferð annars staðar við
gonorrhoea, varð ekki einkennalaus.
Gaf honum áfram pensilín og einnig
aureomycín, og bætti það hann að
fullu (ekki skráður).