Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Page 111
— 109 —
1953
Þingeyrar. 1 tilfelli.
Flateyrar. 3 tilfelli. 1 sjúklingur
skorinn á Landsspítalanum, annar
sendur heim — ekki talinn þola aS-
gerð — og þriðji skorinn á Sólheim-
um.
Hólmavíkur. 77 ára maður með
hypertrophia prostatae c. retentione
sendur til Reykjavikur til aðgerðar.
Blönduós. Karlarnir minir 2, sem
e§ gat um í siðustu skýrslu, báðir á
tíræðisaldri og ganga stöðugt með
Foley’s þvaglegg i sér. Annar hefur
11 ú gengið með slikan þvaglegg í 4 ár,
er viðloðandi á sjúkrahúsinu, en labb-
ai’ út sumar og vetur með sín 94 ár
að baki.
Grenivíkur. 1 tilfelli, roskinn mað-
ur, sem lagður var inn á sjúkrahús
Akureyrar. Lézt hann þar eftir aðgerð.
49. Hypotonia arteriarum.
Nes. Nokkur ný tilfelli.
50. Hysteria.
Ólafsvikur. 1 tilfelli.
Ólafsfi. 1 stúlka.
51. Idiosyncrasia.
Ólafsvíkur. 3 tilfelli.
Þórshafnar. 2 tilfelli, annað eftir
súlfatöflur, hitt eftir pensilín.
Nes. Ekki mjög áberandi.
52. Ileitis terminalis.
Árnes. 54 ára kona var skorin á
Fandsspitalanum vegna þessa sjúk-
dórns.
53. Ileus.
Nleppjárnsreykja. 1 tilfelli.
Ólafsvikur. 1 tilfelli.
Blönduós. Kom fyrir þrisvar sinn-
iim. Sjómaður frá Akureyri var lagður
? ^and og skorinn við strangulations-
deus. Miðaldra kona á Skagaströnd
va,r lögð inn með heiftarlegum saur-
stiflueinkennum og skorin þegar, en
Þar var um mesenterialocclusio að
eaeða, og dró það hana til dauða.
vona, 77 ára, hafði lengi gengið með
jujög stóran naflahaul, og voru finnan-
3 allstór göt á magálnum. Hún var
einnig með hjartabilun, lungnaþembu
og feitlagin. Haullinn hljóp í sjálf-
heldu og var orðinn mjög fyrirferðar-
mikill, enda reyndist taxis með öllu
óframkvæmanleg. Ég lagði það ekki
upp að flytja hana um alllangan veg
til uppskurðar, því að hún átti heima
langt úti í sveit, enda orðin aðfram-
komin, er ég var sóttur til hennar, og
varð þetta mein henni að bana.
54. Megacolon.
Kleppjárnsreykja. 3 tilfelli.
55. Migraene.
Kleppjárnsreykja. 5 tilfelli.
Þingeyrar. 2 tilfelli.
Grenivíkur. 1 tilfelli.
Seyðisfi. Kona um þritugt þjáist oft
af migraene. Gynergen hjálpar bezt.
Nes. Nokkur ný tilfelli greind.
Cafergon verkar oft sæmilega.
Búða. 2 konur.
Eyrarbakka. Orðið var nokkurra til-
fella.
56. Molluscum contagiosum.
Kleppjárnsreykja. 1 tilfelli.
57. Morbi cutis varii.
Nes. Sömu aðalkvillar og áður getið.
Sveppsjúkdómar i húð gerast allal-
gengir, einkum á fótum. Asterol, hið
nýja ameriska lyf, hefur reynzt mér
langtum fremra við þessum sjúkdómi
eldri lyfjum. Því miður hefur viðleitni
lyfsalans hér á staðnum til þess að
útvega lyf þetta engan árangur borið.
Furðulegar hömlur virðast vera á
innflutningi margra nýlegra lyfja til
landsins, þótt þau hafi gefizt mjög vel
erlendis og þeirra sýnist full þörf hér
á landi (Asterol og fleiri lyf hef ég
fengið send sem auglýsingar beint frá
útlöndum).
58. Morbus Addisonii.
Djúpavogs. Maður milli þritugs og
fertugs lézt úr þessum sjúkdómi á ár-
inu. Hefur sennilega gengið með sjúk-
dóminn alllengi latent, en fékk inflú-
enzu og hrakaði þá skyndilega. Yar
sendur til Reykjavíkur, en dó þar.