Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Page 139
137 —
1953
Um daufdumba:
Flateyrar. 1 daufdumbur maður
fluttur til Revkjavíkur.
Blönduós. Á árinu uppgötvaðist, að
barn eitt á 3. ári mun vera daufdumbt.
Bauðárkróks. Hinir sömu og áður.
Vestmannaeyja. Hinir sömu og í
fyrra.
Um málhalta:
Blönduós. Á Skagaströnd fæddist
barn með cheilopalatoschisis, og færð-
llr er á skrá sem málhaltur 14 ára
drengur, sem að réttu lagi hefði átt
að standa þar fyrr. Hann hefur mik-
Jnn málgalla vegna lömunar á lina
gomnum, sem mun vera meðfædd.
Hann er einnig með meðfæddan
hjartagalla, sem virðist þó baga hann
minna, eftir þvi sem hann eldist.
Vestmannaeyja. 2 eins og áður.
U m heyrnarlausa:
Flateyjar. 1 karlmaður heyrnarlaus.
Sauðárkróks. Hinir skráðu allt gam-
alt fólk og 2 af þeim auk þess blindir.
Vestmannaeyja. Skráðir 3 eins og
aður, en allmikið mun vanta á þá
skrá.
U m b 1 i n d a :
Búðardals. Blindir eru nú engir í
beraðinu.
Sauðárkróks. 4 færri en áður. 4
hafa dáið og enginn nýr bætzt við.
Djúpavogs. Blindum hefur fækkað
undanfarið, enda munu flestir nú orð-
ið fylgjast betur með ástandi augna
sinna en áður var.
Vestmannaeyja. 5, sömu og áður.
Um deyfilyf janeytendur :
Hafnarfj. Deyfilyfjaneytandi, sem
talinn hefur verið undanfarin ár, kom
heim af hæli i Noregi s. 1. sumar og
hefur losnað undan því oki, a. m. k.
i bili.
Flateyrar. Nokkuð ber á, að menn
komi og segi ekki rétt til nafns og
vilji fá litið eitt af amfetamini, ópíum
og jafnvel svefnlyfjum, en um áfengi
er nær aldrei beðið. Bjóða þessir ná-
ungar háar fjárhæðir til að ná settu
marki. 3 konur og 1 karlmaður nota
tabl. codeipheni, eins og frá er greint
í siðustu ársskýrslu.
Sauðárkróks. Deyfilyfjaneytandi,
skráður á fyrra ári, dó á árinu.
Seyðisfj. Deyfilyfjaneytendur eru
hér nú ekki lengur. 2 konur hafa ver-
ið skráðar síðan fyrir 1926. Önnur er
flutt af landi burt, en vandi sig af
morfíninu áður af eigin rammleik, hin
konan dó á árinu yfir sjötugt.
Djúpavogs. Deyfilyfjaneytandi hinn
sami og áður var talinn á skýrslum.
Vestmannaeyja. Taldir 4, hinir sömu
og áður, en allmikið hefur áunnizt í
að minnka skammt þeirra, og mega 2
teljast nálægt lækningu.
VII. Ymis heilbrigðismál.
1- Heilbrigðislöggjöf 1953.
Á árinu voru sett þessi lög, er til
beilbrigðislöggjafar geta talizt:
U Lög nr. 7 3. febrúar, um hunda-
0 hald og varnir gegn sullaveiki.
“• Lög nr. 24 16. febrúar, um breyt-
ing á lögum nr. 33 1945, um
breyting á lögum nr. 30 19. júní
1933, um sjúkrahús o. fl.
3. Lög nr. 33 18. febrúar, um breyt-
ing á lögum nr. 1 12. janúar 1952,
um breyting á lögum nr. 50 7.
maí 1946, um almannatryggingar
og viðauka við þau.
4. Lög nr. 38 27. febrúar, um breyt-
ing á lögum nr. 50 1946, um al-
mannatryggingar og viðauka við
þau.
5. Tilskipun nr. 47 7. júli, um regl-
ur til að koma í veg fyrir árekstra
á sjó.
6. Lög nr. 71 14. desember, um
breyting á lögum nr. 44 9. mai
1947, um varnir gegn útbreiðslu
næmra sauðfjársjúkdóma og út-
rýmingu þeirra.
18