Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Síða 169
— 167 —
1953
hreppi t. d. kennt á 8 stöðum og ekki
valdir þeir beztu.
Flateyjar. Húsakynni hin sömu og á
fyrra ári.
Flateyrar. Skólaeftirlit framkvæmt
í öllum skólum héraðsins.
Arnes. Kennslustofur eru bjartar og
rumgóðar. Loftrými i svefnherbergj-
er nægjanlegt.
Hvammstanya. Skólastaðir, allir
nema 1, sem ekki var enn ákveðinn,
skoðaðir um haustið, ásamt börnum
°g kennara. Töldust viðunandi.
Flönduós. Farskólar eru nú haldnir
1 miklu betra húsnæði en áður, því
a® i öllum sveitum eru til nýbyggð,
''onduð og sæmilega rúmgóð hús, sem
U£egt er að halda skóla i.
SÍQlufí. Leikfimishús fylgir barna-
skólanum. Verður það að teljast ófull-
komið. Seint á síðast liðnu ári kvikn-
a®i i því, og skemmdist það allmikið,
eu mun verða endurbyggt og þá ef til
vill eitthvað fullkomnað. Við barna-
skolann starfar hjúkrunarkona, sem
Jafnframt aðstoðar tannlækninn við
aogerðir á barnaskólabörnum, sem fá
°keypis tannaðgerðir.
ylafsfí. Á efri hæð skólahússins var
Uu lokið við að ganga frá kennslustof-
um. Renniskilrúm voru sett upp, og
vmðist verkið vandað. Má nú gera
emn sal úr 3 kennslustofum. Stofurn-
ar voru allar fullmálaðar. Enn fremur
geugið að fullu frá ljósastæðum í
ollum kennslustofum uppi og niðri.
vennslustofur á efri hæð einnig hljóð-
(ieyfðar með þar til gerðum plötum,
sem reynast ágætlega. Eftir er nú ein-
Ungis að ganga frá kennslueldhúsi.
A-kureyrar. Ljósastofa barnaskóla
kureyrar starfaði frá 7. nóvember til
* aPril. Ljósböð fengu 332 börn, 181
stulka og 151 drengur. Þorskalýsi var
Sefið í skólanum — svo og gulrófur —-
Ia 2. nóvember til 10. apríl.
Freniuíkur. Börnin skoðuð haust og
Framför skólabarnanna yfirleitt
Lýsisgjafir voru i skólanum, þó
ekki alveg stöðugt. Miðstöð var sett í
? ^olahúsið siðast liðið haust og í sal-
(Un> sem er uppi yfir skólastofunni.
°lf hans var orðið ónýtt og mikið
arið að bera á því, að ryk félli frá
mltinu niður í skólastofurnar, sérstak-
lega eftir samkomur i salnum. Nýtt
gólf var sett i salinn, og bólar nú ekki
á neinu slíku. Miðstöðin hefur reynzt
prýðilega i vetur, og er húsið nú eins
og annað hús.
Breiðumýrar. Engir heimavistar-
skólar eru i héraðinu. Á 2 stöðum eru
fastir skólar á heimilum kennara við
góðan aðbúnað. Annars staðar á ýms-
um heimilum við misgóða, en þó yfir-
leitt sæmilega aðstöðu. í Mývatnssveit
er skóli nú á þriðja vetri i prestslausu
prestsseturshúsi. Kennarinn og kona
hans hafa tekið börn þangað á vist,
þau, sem lengra eiga að. Þetta er stórt
hús, herbergjaskipun er um flest svip-
uð og væri í smáheimavistarskóla, svo
að þarna er prýðileg aðstaða, hvað
lengi sem það nú varir, og segja má,
að hvert gagn sem sé að prestum, þá
hafi þarna verið mikil not að prest-
leysi.
Seyðisfí. Skólaskoðun fer fram í
byrjun skólaárs og að vetrinum, ef
þörf þykir, t. d. ef vart verður við
óþrif.
Djúpavoys. Lokið er að mestu leyti
byggingu barnaskólans á Djúpavogi.
Er það mikil og vegleg bygging, enda
ekki vanþörf á úrbót, þar sem ganii
skólahúsið var mjög lélegt orðið.
Vestmannaeyja. Gagnfræðaskólahús-
ið er innréttað i áföngum, eftir því
sem þörfin fyrir húsnæði eykst, og
var á árinu gengið frá 2 stofum í við-
bót. Á árinu 1954 er fyrirhugað að
ganga alveg frá leikfimissal og tilheyr-
andi lireinlætistækjum. Mest áherzla
var lögð á eftirlitið í barnaskólanum,
en þar starfar hjúkrunarkona. Börnin
fengu ókeypis tannlækningar, lýsi og
ljósböð.
12. Barnauppeldi.
Blönduós. Varla lakara hér en víð-
ast hvar annars staðar, og er að vísu
ekki mikið með því sagt. Lakara mun
það vera i kauptúnunum, en i sveit-
unum, og veldur þvi iðjuleysi ung-
linga, sem ekkert athvarf eiga utan
heimilis nema götuna.
Grenivíkur. Barnauppeldi í sæmi-
legu lagi.
Seyðisfí. Engin breyting, nema þá