Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Page 181
— 179 —
1953
44. 16. október. G. G-son, 34 ára. Kom
heim kl. 3 um nótt, kvartaði um
verk fyrir brjósti og hné litlu sið-
ar niður meðvitundarlaus. Lífg-
unartilraunir reyndust árangurs-
lausar. Hann hafði lent í eltinga-
leik og ryskingum, rétt áður en
hann kom heim. Við krufningu
kom i ljós, að hjarta var stækkað
(440 g) og þanið. Báðar krans-
æðar voru kalkaðar og hin vinstri
stífluð rétt við upptök.
45. 23. október. K. S-son, 8 ára. Fannst
látinn í baðherbergi sinu heima
hjá sér með mittisól, sem brugðið
var um háls honum i gegnum
liringju, en hinn endinn hékk á
handklæðissnaga. Hafði drengur-
inn oft notað ól þessa til að
bregða um hálsinn á ketti og láta
hann draga þannig lítinn bíl. Við
líkskoðun og krufningu fannst
greinileg hengingarrák á hálsi. Af
upplýsingum rannsóknarlögregl-
unnar, ásamt brevtingum á lung-
um og heila, virðist einsætt, að
Jrengurinn hafi látizt af heng-
ingu. Mar á augabrún og enni
gæti bent. til þess, að drengurinn
hefði hrasað og hlotið þá áverka
i fallinu.
46- 29. október. M. E-son, 50 ára.
Fannst látinn á legubekk alklædd-
ur i herbergi sínu með sæng yfir
sér. Hafði verið drykkfelldur og
sást drukkinn á götu daginn áður.
Ekki vitað, að hann hefði verið
neitt veikur. Við krufningu fannst
uiikil lungnabólga, sérstaklega
hægra megin. Lifur reyndist vera
uijög skemmd af fitu, eins og títt
er i ofdrykkjumönnum. Lungna-
bólgan hefur fljótlega orðið mann-
inum að bana, vegna þess hve
lifrin var léleg.
4'- 30. október. J. S-dóttir, 65 ára.
Þreifst mjög illa og veslaðist upp,
eftir að stór hluti af maga henn-
ar var skorinn úr henni. Við
krufningu fannst útbreiddur vöxt-
ur krabbameins í kringum allt
niagasvæðið; lóðaði meinið saman
garnir og þrengdi sumar þeirra.
I vinstra lunga fannst igerð. Kon-
an var mjög uppþornuð.
48. 27. nóvember. G. K. C., 4 daga
meybarn. Dó skyndilega, skömmu
eftir að það hafði drukkið úr
pela. Við krufningu fundust merki
þess, að barnið hefði verið ófull-
burða (44 cm langt). Engin mjólk
eða drafli var i maga og lítið inni-
hald í görnum. Enginn sérstakur
sjúkdómur fannst að barninu, en
dálítil blæðing út frá falx cerebri.
Barnið virðist hafa tekið litla
næringu til sín, og það, ásamt
blæðingunni i falx cerebri, hefur
sennilega verið nóg til þess að
gera út af við það.
49. 30. nóvember. R. S-son, 30 ára
Hafði verið drykkfelldur og of-
stopafenginn við vín. Fannst
hengdur á hurðarhúni í herbergi
sinu og hafði notað hálsbindi til
þess. Við krufningu fannst eng-
inn sjúkdómur, og virðist greini-
legt, að dánarorsökin hafi verið
henging. í blóði fannst 0,87%«
alkóhól, sem sýnir, að maðurinn
hefur verið undir áhrifum áfengis.
50. 7. desember. B. G-son, 8 ára. Varð
fyrir bíl, sem ók yfir hann, en
var með lifsmarki, unz hann and-
aðist skömmu seinna í sjúkrahúsi.
Við krufningu kom í Ijós, að
vinstri lærleggur var þverbrotinn.
Enn fremur fannst mikið af smá-
blæðingum í heila, án þess að um
nokkurt kúpubrot væri að ræða.
Blæðingar þessar eru greinileg af-
leiðing mjög mikils heilahristings.
Banamein virðist hafa verið lær-
brot ásamt miklum heilahristingi
og losti (shock).
51. 10. desember. I. K-son, 63 ára.
Veiktist skyndilega af höfuðverk
og varð að fara heim frá vinnu.
Varð fljótt rænulaus og dó í al-
geru meðvitundarleysi sama
kvöld. Við krufningu fannst
thrombosis í arteria basilaris
cerebri. í vinstra corpus striatum
fannst dálítil emollition. Allmikil
lungnabólga fannst hægra megin.
52. 16. desember. Þ. Ó-son, 6 ára. Var
að leika sér uppi á gömlum og
ónýtum bíl, sem á var timbur-
brak, og valt staur ofan á hann
af bílnum. Mun drengurinn hafa