Rit Mógilsár - 2013, Síða 5
Rit Mógilsár 27/2012 5
Hin árlega Fagráðstefna skógræktar
fór að þessu sinni fram á Húsavík
dagana 27.-29. mars 2012. Skipu-
leggjendur ráðstefnunnar voru
Norðurlandsskógar, Skógrækt ríkis-
ins, Landbúnaðarháskóli Íslands,
Skógræktarfélag Íslands, Lands-
samtök skógareigenda og Skóg-
fræðingafélag Íslands.
Þema ráðstefnunnar var að þessu
sinni „Tegundir, kvæmi og klónar í
íslenskri skógrækt”. Ráðstefnugestir
mættu til Húsavíkur að kvöldi þess
29. og að venju skiptist ráðstefnan
upp í þemafund og opinn fagfund þar
sem öllum bauðst að senda inn
tillögur að erindum. Sú nýbreytnin
var höfð á dagskránni að blandað
var á milli þessara tveggja „funda“
yfir báða dagana.
Fundarmenn fjölmenntu í skoðunar-
ferð í skóginn ofan Húsavíkur, þar
sem léttar veigar biðu fundarmanna.
Var það ógleymanleg upplifun.
Alls voru erindin á ráðstefnunni 17
talsins og auk þess var haldin
sérstök veggspjaldasýning með 14
veggspjöldum sem kynntu niður-
stöður ýmissa rannsókna- og
þróunarverkefna sem tengjast
skógum og skógrækt. Öll erindin
sem flutt voru á ráðstefnunni má
finna inn á www.skogur.is, undir
Rannsóknir / Ráðstefnur. Einnig má
finna á sömu heimasíðu, undir
Útgáfa og fræðsla / Útgefið efni, Rit
Mógilsár 26/2012 með útdráttum úr
öllum erindum og veggspjöldum sem
kynnt voru á ráðstefnunni.
Eins og tvö síðustu ár var áhuga-
sömum höfundum erinda og vegg-
spjalda boðið að skrifa grein í
ráðstefnurit sem gefið væri út í
ritröðinni Rit Mógilsár. Undirtektirnar
voru góðar, eins og sjá má.
Ritnefnd vill þakka öllum höfundum
fyrir góð og vönduð vinnubrögð við
skil handrita og er þess fullviss að
hér birtist ýmis fróðleikur sem
mörgum áhugamönnum um skóg-
rækt er mikill fengur í.
Fylgt úr hlaði
Edda S.Oddsdóttir1, Bjarni D. Sigurðsson2 og Rakel J. Jónsdóttir3
1Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá; 2Landbúnaðarháskóli Íslands, Hvanneyri;
3Norðurlandsskógar, Akureyri