Rit Mógilsár - 2013, Blaðsíða 16
16 Rit Mógilsár 27/2012
mynni Hjaltadals í Skagafirði.
Tilraunin á Stóru-Hámundarstöðum
er í frjósömum lyngmóa og þar var
plantað stafafuru og sitkagreni 2.
júní 2009. Í Ásgarði-Eystri er
tilraunin í mel og þar var plantað
lerki og birki 3. júní 2009. Á hvorum
stað voru fjórar blokkir, meðferðar-
liðir voru 5 og það voru 10 plöntur í
röð fyrir hverja tegund.
Á Austurlandi fór tilraunin einnig
niður á tveimur stöðum, á Óseyri í
Stöðvarfirði og Droplaugarstöðum í
Fljótsdal. Landgerðin er gróið mó-
lendi. Gróðursett var lerki, lindifura,
birki og sitkagreni á báða staðina, 2
blokkir á Óseyri 23. júní 2009 og 2
blokkir í Droplaugar-staði 24 júní
2009. Meðferðaliðir voru 5
og 10 plöntur í hverri
blokk.
Meðferðin fólst í misstórum
skömmtum af FLEX áburði í
hnaus rétt fyrir gróður-
setningu. Þeir voru:
mjög sterkur=4 ml,
sterkur=2 ml,
meðal sterkur=1 ml,
veik=0,5ml
enginn áburður til við-
miðunar.
Lifun var metin og hæð
plantnanna mæld haustið
2011 eftir þrjú vaxtarsumur
í foldu. Tölfræðiforritið SAS
9.1 (SAS Institute Inc.) var
notað til að vinna tölfræði í
verkefninu. Notuð var ein-
þátta fervikagreining til að
athuga hvort marktækur
munur væri á hæð milli
með-ferða. Ef marktækur
munur reyndist á milli með-
ferða voru þær bornar
saman með Fisher’s Least
Significant Difference prófi
(LSD test). Munur meðal-
tala var metinn sem mark-
tækur ef p<0.05. Kruskal-
Wallis raðgreiningarpróf var notað til
þess að kanna mun milli meðferða í
lifun.
Niðurstöður og umræða
FLEX-áburður beint í hnaus plönt-
unnar rétt fyrir gróðursetningu gaf
almennt ekki jákvæða niðurstöðu
fyrir lifun og vöxt plantnanna (1.-4.
mynd). Einn ml eða meira dró nær
alltaf úr lifun. Þó má benda á að
minnsti skammturinn (0,5 ml) virtist
ekki auka afföll mark-tækt hjá lerki,
birki og sitkabastarði (1. og 2.
mynd), þó að lifun minnkaði
marktækt fyrir stafafuru, lindifuru og
sitkagreni með þeim skammti.
1. mynd. Lifun plantna eftir mismunandi magni af
FLEX í hnaus á Norðurlandi. Súlurnar sýna meðaltöl
og lóðréttu strikin staðalskekkju. Mismunandi
bókastafir í súlum sýna marktækan mun á
meðferðum (p<0.05).
2. mynd. Lifun plantna eftir mismunandi magni af
FLEX í hnaus á Austurlandi. Súlurnar sýna meðaltöl og
lóðréttu línurnar staðalskekkju. Mismunandi bókastafir
í súlum sýna marktækan mun á meðferðum (p<0.05).