Rit Mógilsár - 2013, Blaðsíða 17
Rit Mógilsár 27/2012 17
Áhrif áburðargjafar með
litlum skömmtum við
gróðursetningu hafa í
rannsóknum hérlendis
almennt verið jákvæð á
lifun skógarplantna á 1. ári
(Hreinn Óskarsson, Aðal-
steinn Sigurgeirsson og
Bjarni Helgason, 1997;
Hreinn Óskarsson 2010). Þó
hafa komið fram niður-
stöður þar sem áburðargjöf
hefur ekki haft marktæk
áhrif eða jafnvel neikvæð
(Else Møller, 2010). Of
stórir áburðarskammtar við
gróðursetningu hafa einnig
verið sýndir hafa neikvæð
áhrif á lifun sem hefur verið
útskýrt með saltáhrifum af
áburðarsöltunum (Hreinn
Óskarsson, Aðalsteinn
Sigurgeirsson og Bjarni
Helgason, 1997). Það er því
nærtækt að álykta að
skammtarnir af Flex-
áburðinum hafi verið of
stórir og valdið neikvæðum
saltáhrifum.
Áburðargjöfin með FLEX gaf
ekki í neinum tilvikum
marktæka aukningu á vexti
(3. og 4. mynd). Það er því
ekki hægt að mæla með FLEX í
hnaus fyrir gróðursetningu í því
magni sem hér var reynt. Hugsan-
legt er að minni skammtar hefðu
haft jákvæð áhrif á lifun en það þarf
að prófa sérstaklega.
Heimildir
Hreinn Óskarsson (2010). Tree seedling
response to fertilization during affore-
station in Iceland. Doktorsritgerð. Forest
and Landscape, Danmark Kaupmanna-
hafnarháskóla.
Hreinn Óskarsson, Aðalsteinn Sigur-
geirsson og Bjarni Helgason (1997).
Áburðargjöf á nýgróðursetningar í rýrum
jarðvegi á Suðurlandi. I. Niðurstöður
eftir tvö sumur. Skógræktarritið 1997.
42-59.
Else Møller (2010). Hraðræktun jólatrjáa
á ökrum: Lifun ungplantna og áhrif
mismunandi áburðarmeðferðar. BS
verkefni í skógfræði, Landbúnaðar-
háskóli Íslands, 75 bls.
Flex Fertilizer System (2013). Skoðað
26. febrúar 2013 á https://sites.
google.com/site/flexfertilizersystem.
3. mynd. Hæð plantna eftir mismunandi magni af
FLEX í hnaus á Norðurlandi. Súlurnar sýna meðaltöl
og lóðréttu línurnar staðalskekkju. Mismunandi bók-
stafir í súlum sýna marktækan mun á meðferðum
(p<0.05).
4. mynd. Hæð plantna eftir mismunandi magni af
FLEX í hnaus á Austurlandi. Súlurnar sýna meðaltöl og
lóðréttu línurnar staðalskekkju. Mismunandi bókstafir í
súlum sýna marktækan mun á meðferðum (p<0.05).