Rit Mógilsár - 2013, Qupperneq 19
Rit Mógilsár 27/2012 19
er þó ekki óbrigðult. Bæði kemur
hringbörkun ekki alveg í veg fyrir
flutning sykra til róta og síðan er
ljóst að aspir sem eru tengdar hver
annarri, í gegnum annað hvort
rótartengsl (e: grafting) eða með því
að deila með sér svepprótum, geta
skipst á sykrum í gegnum tengslin.
Önnur algeng leið er að nota
plöntueitur sem borið er á stubbinn í
þó nokkrum styrkleika strax eftir
fellingu. Þetta getur gefið góða raun,
en hefur þó sýnt sig geta einnig
stórskemmt eða jafnvel drepið önnur
aspartré í næsta nágrenni, sem geta
þá fengið eitrið í sig í gegnum
áðurnefnd rótartengsl (1. mynd).
Markmiðið með þessari rannsókn var
að reyna að þróa nýja aðferð til að
koma í veg fyrir endurvöxt alaska-
aspar með rótarskotum eftir fellingu.
Aðferðir
Tilraunaskógurinn í Gunnarsholti
(stundum nefndur Espiholt) var
gróðursettur í 14,5 ha þökuskorið
tún vorið 1990 með einum klóni af
alaskaösp (Iðunni). Árin 2004 og
2005 var hann grisjaður í fyrsta
skipti, úr 10.000 trjám á ha niður í
2.000 tré á ha (Jón Ágúst Jónsson,
2007; Jón Ágúst Jónsson og Bjarni
D. Sigurðsson, 2010).
Við undirbúning grisjunarinnar varð
talsverð umræða um það hvort
óhætt væri að nota plöntueitur beint
á stubbinn til að draga úr myndun
rótarskota eftir grisjun. Vegna
slæmrar reynslu af aðferðinni var
það ekki talið óhætt, en ákveðið að
gera tilraunir á minna svæði til að
finna aðferð sem gæfi góðan árangur
án þess að skaða trén sem standa í
skóginum eftir grisjun.
Aðferðin sem þróuð var fólst í því að
í stað þess að bera eitur beint á
stofninn í talsverðum styrkleika strax
við fellingu, var beðið með eitrunina
þar til að nýir sprotar tóku að
myndast á rótarhálsi asparinnar ári
síðar. Með því að láta laufblöð taka
upp eitrið var styrkleiki eitursins
takmarkaður og þannig dregið úr
áhættunni að eitrið bærist til annarra
trjáa með rótartengslum.
Reynd voru tvö plöntueitur
(Roundup og Herbamix) í fjórum
mismunandi styrkleikum, alls 8
ólíkar meðferðir auk samanburðar
þar sem ekkert var gert. Lögð var út
hefðbundin blokkatilraun með fjórum
blokkum og 10 felldum öspum í
hverri meðferð. Alls voru því 120
felld tré notuð í
verkefnið. Meðferðin
fór fram um miðjan
júní 2005.
Eitrið var borið á með
kalkkústi (ein pensil-
fylling á lauf og sprota
per tré). Notaðir voru
fjórir styrkleikar:
0,2% (staðalstyrkur),
0,4%, 0,7% og 1,4%
af virku efni af
Roundup, 0,1%
(staðalstyrkur), 0,2%,
0,5% og 1,0% af
virku efni af
Herbamix.
Lifun rótarskota aspar
2. mynd. Dánartala asparstubba ári eftir eitrun með fjórum
styrkleikum af Herbamix (0,1%, 0,2%, 0,5% og 1,0% af
virka efninu) eða Roundup (0,2%, 0,4%, 0,7% og 1,4% af
virka efninu).