Rit Mógilsár - 2013, Blaðsíða 24
24 Rit Mógilsár 27/2012
landfræðilega gagnagrunninum en
hinum tölfræðilega. Nokkur munur
er á eignarhaldi sveitarfélaga og
skógræktarfélaga milli gagnagrunna.
Niðurstöður Íslenskrar
skógarúttektar eru með vikmörkum,
ólíkt niðurstöðum landfræðilega
gagnagrunnsins, og því hægt að
meta skekkjumörk.
Fjórðungur náttúrulegs birkilendis er
á landi í eigu ríkisins. Það þýðir að ¾
hlutar þess eru á landi í eigu annarra
en ríkisins. Þetta er í takt við
niðurstöður fyrri greiningar á eignar-
haldi birkis, en þá var eignarhald
birkis á landi í eigu ríkisins metið
23%.
Ályktanir
Eignarhald skóglendis á Íslandi hefur
ekki verið skráð markvisst en með
þessu yfirliti er reynt að nálgast
stöðu þess. Með tilkomu lands-
hlutaverkefna í skógrækt hefur
einkaskógrækt margfaldast sem
endurspeglast í þessum niður-
stöðum. Staða skógræktarfélaga er
sterk samkvæmt þessum niður-
stöðum, þó verður að hafa í huga að
hluti skóga sem skráður er undir
hatti skógræktarfélaga getur verið í
eign sveitarfélaga og öfugt.
Flatarmál skóglendis er nokkuð
hærra í landfræðilegum gagnagrunni
yfir skóglendi á Íslandi heldur en
niðurstöður landsskógarúttektar gefa
til kynna. Þessi munur kemur til
vegna þess að kortlagðir flákar geta
verið stærri en sem nemur
raunverulegri útbreiðslu trjágróðurs
innan þeirra.
Eignarhald birkilendis á Íslandi er
byggt á landfræðilegri greiningu þar
sem það er ekki skráð sérstaklega. Í
greiningunni er gert ráð fyrir að allt
birki innan bújarða á vegum ríkisins
sé birkilendi á vegum ríkisins. Það er
nokkur alhæfing en gefur engu að
síður heildarmynd af eignarhaldi
birkilendis á Íslandi.
Heimildir
Aradottir AL, Thorsteinsson I & Sigurdsson S.
2001. Distribution and characteristics of
birch woodlands in North Iceland. Í:
Wielgolaski F.E. (ritstj.) 2001. Nordic
Mountain Birch Ecosystems. Man and the
Biosphere Series, bindi 27. UNESCO, Paris,
and Parthenon Publishing, Carnforth. 390
bls.
Landbúnaðarráðuneytið. 1986. Landnýting á
Íslandi og forsendur fyrir landnýtingar-
áætlun. Landbúnaðarráðuneytið 1985. 105
bls.
Snorri Sigurðsson og Hákon Bjarnason.
1977. Skóglendi á Íslandi. Athuganir á stærð
þess og ástandi. Reykjavík: Skógrækt
ríkisins og Skógræktarfélag Íslands. 38 bls.
Eignarhald náttúrulegs birkilendis
Flatarmál
ha
Hlutfall
%
Birkilendi á landi í ríkiseigu 29.900 24
Birkilendi á öðru landi 90.700 76
Samtals 119.600 100
2. tafla. Eignarhald náttúrulegs birkilendis samkvæmt landfræðilegum gagnagrunni