Rit Mógilsár - 2013, Blaðsíða 56
56 Rit Mógilsár 27/2012
skemmda smitaðra og ósmitaðra
plantna bæði við -12°C og -16°C
þann 27. september (2. mynd).
Ekkert samband fannst á milli magn
ryðs á plöntum og frost-skemmda
(3. mynd). Við -12°C sýndu plöntur
smitaðar í júlí minni frostskemmdir í
frostþolsprófun þann 27. september
en 14. september og fannst mark-
tækur munur á milli frostþolsprófana
(4. mynd).
Umræður
Samkvæmt niðurstöðum úr þessari
tilraun þá dregur asparryð úr
frostþoli alaskaaspar á Íslandi.
Ekkert samband fannst á milli magns
asparryðs og frostskemmda sem
gæti bent til þess að nóg sé að
asparryðið sé til staðar til þess að
það dragi úr frostþoli.
Mismunandi smittímar yfir vaxtar-
tímabilið virtust ekki hafa áhrif á
magn frostskemmda í öspum, þ.e.
ekki var marktækur munur á milli
frostskemmda hjá plöntum smit-
uðum með asparryði í júlí og
plöntum smituðum í ágúst. Þetta
styður þá tilgátu að magn ryðs segi
lítið til um hversu miklar skemmdir
geta orðið, þar sem magn ryðs á
plöntum smitaðar í júlí var meira
heldur en á plöntum sem smitaðar
voru í ágúst.
Ekki fundust nein augljós sambönd á
milli uppruna asparklónanna, þ.e.
innlands- eða strandklóna, og
mismunandi mótstöðu gagnvart
asparryði. Auk þess gáfu niður-
stöðurnar í skyn að sumir aspar-
klónanna væru að auka frostþol sitt
seinna um haustið, þrátt fyrir að
vera sýktir af asparryði. Þetta gæti
bent til þess að sýktar aspir seinki
frostþolsmyndun sinni fremur. Til
þess að hægt sé að álykta frekar um
þetta þá þyrfti ítarlegri rannsóknir.
Lokaorð
Meginniðurstöður verkefnisins voru
að asparryð hefur neikvæð áhrif á
frostþol alaskaaspar að hausti til og
áhrifin eru óháð uppruna aspar-
klónanna eða smitmagni, þ.e. ef
klónarnir voru yfirhöfuð næmir fyrir
asparryði þá dró úr frostþoli þeirra í
september. Niðurstöðurnar benda til
þess að erfitt gæti verið að koma í
veg fyrir auknar frostskemmdir af
völdum asparryðs með klónavali,
nema með vali á klónum með algjört
ónæmi gegn asparryði. Sjaldan er þó
ráðlagt að velja klóna með algjört
ónæmi gegn sjúkdómum vegna
hættu á þeir missi mótstöðuna ef
skaðvaldurinn þróast. Áhugavert
væri að kanna hvort að asparryð
seinki eingöngu frostþolsmyndun
sýktra aspa.
4. mynd. Meðalfrostskemmdir milli frost-
þolsprófana, þ.e. mismunandi tímasetninga
frystinga. Dökkgrár súlur tákna plöntur
smitaðar í júlí, ljósgráar súlur tákna
plöntur smitaðar í ágúst. Mismunandi
bókstafur fyrir ofan súlu sýnir marktækan
mun milli frostþolsprófana.