Rit Mógilsár - 2013, Page 59

Rit Mógilsár - 2013, Page 59
Rit Mógilsár 27/2012 59 mældar. Bent er á að hægt er að sjá ýtarlegar niðurstöður frá hverjum tilraunastað í Riti Rannsóknarstöðvar skógræktar Mógilsár nr. 25/2011 (Halldór Sverrisson, Aðalsteinn Sigurgeirsson og Helga Ösp Jónsdóttir 2011) en hér verður eingöngu stiklað á stóru og farið yfir helstu niðurstöður. Efni og aðferðir Gróðursett var í asparklóna- tilraunirnar á árunum 1992 og 1993. Árið 1995 var gróðursett aftur í nokkrar tilraunir sem höfðu farið illa í hörðu haustfrosti 1993. Alls voru 46 asparklónar valdir í tilraunirnar og eru allt að 40 klónar á hverjum tilraunastað. Í 1. töflu má finna yfirlit yfir þá asparklóna sem teknir voru með í tilraunina. Í hverri tilraun eru 10 blokkir og í hverri blokk kemur hver klónn einu sinni fyrir, fjórar plöntur í röð. Tilraunastaðirnir eru 11 talsins og má finna yfirlit yfir staðina í 2. töflu. Mælingar fóru fram á árunum 2005, 2006 og 2010. Síðasta árið voru einungis tilraunirnar á Böðmóðs- stöðum og í Þrándarholti mældar. Áður höfðu fjórar tilraunir verið mældar árið 1999 og nokkrar einnig 2003. Einungis var mæld lifun og hæð árin 2005 og 2006, en þvermál í brjósthæð var einnig mælt 2010. Reynt var að meta kal í sumum úttektunum og er þess getið í um- fjöllun um niðurstöður frá hverjum stað. Niðurstöður Belgsholt Lifun var ekki mjög góð, en þó greinilega betri hjá innlandsklónum. Meðalhæð bestu klónanna var ekki mjög mikil, en af þeim klónum sem lifðu best eru ‘Pinni’, ‘P8’ og ‘Hallormur’ með mestan hæðarvöxt (gögn ekki sýnd). Saursstaðir Lifun var um og yfir 80% hjá nokkrum innlandsklónum, en einnig höfðu nokkrir strandklónar einnig góða lifun. Þeir klónar sem lifðu einna best og höfðu nokkuð góðan hæðarvöxt voru ‘Grund’, ‘Laugarás’, ‘Hallormur’, ’79-11-004’ og ‘Súla’ (gögn ekki sýnd). Lækur Lifun hjá nokkrum innlandsklónum var fremur góð eins og hjá nokkrum strandklónum. Hæðarvöxtur asparklónanna á Læk hefur ekki verið mikill. Klónar með góða lifun og mestan hæðarvöxt eru ‘Brekkan’, ’83-14-36’, ‘Laugarás’, ‘Pinni’, ’79-04 -001’ og ’79-11-004’ (gögn ekki sýnd). Sauðárkrókur Lifun var frekar slæm í þessari tilraun. En af þeim klónum sem voru að lifa best voru innlandsklónarnir ‘Sæland’, ‘Hallormur’, ‘C-06’ og ‘Laugarás’ og strandklónarnir ‘Súla’ og ‘Keisari’. Á Sauðárkróki var kal einnig metið sem ætti að segja jafn mikið til um hvaða klóna ætti að velja eins og hæðin. Þeir klónar sem höfðu ekkert eða nánast ekkert kal voru ‘Sæland’ og ‘Keisari’ (gögn ekki sýnd). Vaglir á Þelamörk Innlandsklónar höfðu áberandi bestu lifunina þó svo að lifunin hafi verið slök í heildina. Af þeim klónum sem höfðu góða lifun og með góðan hæðarvöxt eru ‘Randi’, ‘79-11-004’, ‘Sæland’ og ‘Hallormur’ (gögn ekki sýnd). Saltvík Tveir innlandsklónar eru með bestu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.