Rit Mógilsár - 2013, Page 62
62 Rit Mógilsár 27/2012
sumars. Munurinn gæti einnig í
sumum tilvikum stafað af mis-
munandi jarðvegsgerðum, en allar
sunnlensku tilraunirnar eru á frjó-
sömu landi.
Klónamunur er einnig talsverður eftir
landshlutum (gögn ekki sýnd).
Strandklónarnir voru almennt að
standa sig vel á Suðurlandi, allavega
varðandi hæðarvöxt, margir eru þó
með lélega lifun sem gæti verið
vegna haustkals. Innlandsklónar
stóðu sig einnig vel í innsveitum á
Suðurlandi. Í öðrum landshlutum eru
margir strandklónar að standa sig
ágætlega ásamt innlandsklónunum.
Þessar niðurstöður staðfesta að það
er verulegur munur á því hvaða
asparklónar henta á mismunandi
stöðum á landinu. Þeir klónar sem
sýna mikil afföll ætti ekki að nota
nema þar sem lítil hætta er á vor-
eða haustfrosti. Hægt væri að bæta
mjög árangur í ræktun þessarar
mikilvægu trjátegundar annars
vegar með kynbótum sem hafa það
markmið að bæta aðlögun alaska-
aspar að erfiðum skilyrðum hér á
landi og hins vegar með því að
ákvarða hvaða klónar henti best á
mismunandi landsvæðum.
Heimildir
Aðalsteinn Sigurgeirsson, 2001.
Breytileiki hjá klónum alaskaaspar í
næmi gagnvart umhverfi. Skógræktar-
ritið 2001, 1: 20-27.
Halldór Sverrisson, Aðalsteinn Sigur-
geirsson og Helga Ösp Jónsdóttir, 2011.
Klónatilraunir á ösp. Rit Mógilsár,
25/2011: 39 bls.