Rit Mógilsár - 2013, Page 76
viðhaldi girðinga var umfangi áður
girtra girðinga bætt við á hverju ári
og greiðslur fyrir viðhald greiddar
samkvæmt þeim tölum.
Úrvinnsla
Þegar búið var að fastsetja forsendur
fyrir tímaútreikninga voru allar
upplýsingar settar inn í töflureikni og
tími í hverjum verkþætti reiknaður
sérstaklega fyrir öll LHV. Síðan voru
allir verkþættir sameinaðir og þannig
fenginn heildarfjöldi klukkustunda í
vinnu við skógrækt á vegum LHV yfir
allt landið. Miðað var við 1800
klukkustundir bak við hvert ársverk í
útreikningum.
Niðurstöður og umræður
Ársverk í skógrækt greidd af LHV
voru að meðaltali 56,1 á árunum
2001 til 2010. Þar af voru 36,8
ársverk unnin á skógarjörðum og
19,2 ársverk voru unnin af
starfsmönnum LHV (2. mynd).
Ársverk greidd af LHV voru flest árið
2007 eða 69,1 en fækkaði síðan
fram til 2010 þegar ársverk voru
46,6. Til að setja þennan fjölda
ársverka í samhengi við aðra
atvinnuuppbyggingu í þjóðfélaginu
um þessar mundir má
benda á að kísilmálm-
verksmiðja á Suður-
nesjum er talin skapa
um 90 ársverk og
kosta 17 milljarða ef af
uppbyggingu hennar
verður (Mbl.is,
19.03.2012).
Eingöngu var um að
ræða beina vinnu við
skógrækt og tengdar
framkvæmdir sem
greitt var fyrir af LHV í
þessum tölum. Ársverk
á skógarjörðum
skiptast í átta verk-
þætti (3. mynd).
Verkþættir voru einnig sundurliðaðir
innan hvers árs, reiknað í mann-
mánuðum (4. mynd).
Vinna á meðaljörð, greidd af LHV,
var 209,8 klst eða 5,2 vinnuvika á
hverja skógarjörð á hverju ári og
hún skiptist í gróðursetningu, jarð-
vinnslu, umhirðu skógar og önnur
tengd störf. Vélavinna tengd
skógrækt var um 1,2 vikur á hverja
jörð. Flestar klukkustundir voru í
gróðursetningu og áburðargjöf eða
130 klst á meðaljörð og vinna við
girðingar og viðhald þeirra var 34,6
klst.
Niðurstöður þessara útreikninga voru
fyrst kynntar á Fagráðstefnu skóg-
ræktar á Húsavík í lok mars 2012.
Þar var höfundi bent á að hugsan-
lega væru forsendur fyrir útreikning-
um á vinnu við girðingar ekki réttar.
Því var farið yfir útreikningana aftur
eftir ráðstefnuna og í ljós kom að
vinnustundir höfðu verið vantaldar í
niðurstöðum sem birtar voru á
ráðstefnunni. Því er mismunur á
niðurstöðum í þessari grein og niður-
stöðum sem birtar voru í útdrætti í
ráðstefnuriti Fagráðstefnunnar.
Þegar horft er til breytinga á
ársverkum í skógrækt milli ára er
3. mynd. Hlutföll verkþátta í skógrækt sem greitt er fyrir af
LHV. Skjólbeltaræktun var aðeins tekin með þar sem hún
var á skógarjörðum og féll þannig inn í úttekt
rannsóknarinnar. Önnur skjólbeltaræktun greidd af LHV var
ekki tekin með í rannsókninni.