Rit Mógilsár - 2013, Síða 78
ljóst að ársverkum fækkaði mikið frá
2007 til ársins 2010 (2. mynd).
Ástæðuna má rekja beint til
lækkunar fjárframlaga ríkisins til
starfsemi LHV „eftir hrun“.
Jarðir þar sem eingöngu er stunduð
skjólbeltarækt voru ekki teknar með
í rannsókninni þar sem mjög
mismunandi uppgjörsreglur eru
varðandi skjólbelti á milli
landshlutaverkefnanna og því erfitt
að samræma upplýsingar um
vinnustundir í skjólbeltarækt hjá
hverju verkefni. Það varð því að
samkomulagi milli framkvæmda-
stjóra LHV og höfundar að taka þær
jarðir ekki með í rannsóknina. Samt
sem áður er ljóst að á þessum
jörðum er unnin talsverð vinna við
skógrækt sem ekki var meðtalin í
þessari rannsókn.
Verkþættir í skógrækt dreifðust á
mismunandi tíma yfir árið (5.
mynd). Vinnuálag hjá skógar-
bændum var mest á vorin og sumrin
en jafnframt er ljóst að vinna við
grisjun og umhirðu skóganna mun
aukast eftir því sem þeir vaxa upp
og vinnuálagið færast yfir á haust og
vetur sem því nemur.
Þessar niðurstöður eru fyrsti hluti af
rannsókn á atvinnuuppbyggingu LHV
en í öðrum hluta verður rannsakað
hversu mikla vinnu skógarbændur
leggja í skóga sína án greiðslu fyrir
vinnuframlag sitt. Í þriðja hluta
verður síðan rannsakað hversu mörg
afleidd störf hafa skapast í kringum
starfsemi LHV og í fjórða og síðasta
hluta rannsóknarinnar verður
reiknuð út þjóðhagsleg arðsemi af
skógrækt á vegum landshluta-
verkefnanna.
Rannsóknin er styrkt af Héraðs- og
Austurlandsskógum, Norðurlands-
skógum, Skjólskógum á Vest-
fjörðum, Suðurlandsskógum, Vestur-
landsskógum og Vaxtarsamningi
Vestfjarða. Þessum aðilum er þakkað
fyrir stuðninginn. Ennfremur er
framkvæmdastjórum og starfsfólki
landshlutaverkefnanna þakkað fyrir
gott samstarf og aðstoð við
gagnaöflun og vinnslu
rannsóknarinnar.
Heimildir
Árni Snæbjörnsson, 2002. Framræsla
lands - kílræsi. Freyr(6), 27-30.
Böðvar Guðmundsson & Lárus Heiðars-
son, 2006. Undirbúningur lands til
skógræktar. Í Guðmundur Halldórsson
(Ritstj.), Skógarbók grænni skógar (137
-145). Akureyri: Landbúnaðarháskóli
Íslands.
Grétar Einarsson, 2001. Tækni við
jarðvinnslu. Ráðunautafundur 2001, 191
-196.
Grétar Einarsson & Gísli Sverrisson,
1997. Afköst búvéla. Handbók bænda,
47. árgangur, 137-142.
Hreinn Óskarsson, 2000. Undirbúningur
gróðursetningar. Handbók bænda, 51.
árgangur, 63-64.
Jón Birgir Jónsson, Aðalsteinn Sigur-
geirsson, Áslaug Helgadóttir, Edda
Björnsdóttir, Jón Loftsson, Jón Geir
Pétursson, Sveinn Runólfsson, Valgerður
Jónsdóttir, Vigdís Sveinbjörnsdóttir &
Þorsteinn Tómasson, 2010. Skýrsla
nefndar um mörkun langtímastefnu
íslenskrar nytjaskógræktar í samræmi
við lög um landshlutaverkefni í skógrækt
nr. 95/2006 81 bls. Reykjavík:
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytið.
Lagasafn Alþingis, 2006. Lög um
landshlutaverkefni í skógrækt nr.
95/2006.
Ríkisendurskoðun, 2004. Skógrækt.
Lagaumhverfi Skógræktar ríkisins og
landshlutabundinna skógræktar-
verkefna. 51 bls. Reykjavík: Ríkisendur-
skoðun.
Sigurður Blöndal & Skúli Björn
Gunnarsson, 1999. Íslandsskógar
hundrað ára saga: Skógrækt ríkisins:
Mál og mynd.