Rit Mógilsár - 2013, Blaðsíða 80
80 Rit Mógilsár 27/2012
upprunalega skógarbotns- eða
skógarjaðarstegundir og gera vana-
lega kröfur um fremur frjósaman
jarðveg.
Standi runnar mjög áveðurs og
jafnvel í þurrum jarðvegi reynir
meira á vindþol, saltþol og rótarfestu
þeirra. Þar henta því fremur náttúru-
legar frumherjategundir. Frumherja-
tegundir eru hinsvegar almennt ljós-
elskar og koðna gjarnan niður við
samkeppni og skuggavarpi há-
vaxnari tegunda (Samson Bjarnar
Harðarson, 2009). Því getur það
verið kostur fyrir slíkar runna-
tegundir að skríða lítillega til hliðar í
birtuna og þannig endurnýja sig.
Þetta geta tegundir eins og fjallarós
(Rosa pendulina), ígulrós (Rosa
rugosa) og hafþyrnir (Hippophae
rhamnoides). Frumherjategundir
sem ekki skríða, svo sem víðir (Salix
sp.), ætti fyrst og fremst að nota
sem fósturtegundir og ætti þá að
velja upprétt meðalhá yrki, svo sem
af loðvíði (S. lanata) og gulvíði (S.
phylicifolia), gjarnan með áður-
nefndum skriðulum og/eða skugg-
þolnum tegundum, sem svo yxu inn í
víðirinn og tækju hans sæti síðar
meir (Samson Bjarnar Harðarson,
2009).
Erfiðustu skilyrðin eru norðanmegin í
beltum. Þar þarf að velja skugg-
þolnar tegundir sem gjarnan skríða
lítillega og eru jafnframt það harð-
gerðar og veðurþolnar að geta þolað
norðan áhlaup. Æskilegir eiginleikar
allra trjáa og runna sem nota á í
skjólbeltum eru þol gagnvart
klippingu á hliðum, niðurklippingum,
jarðvegsþurrki eða blautum jarðvegi,
sjúkdómum og skaðvöldum og að
þeir hafi góðan vaxtarhraða eða
langlífi, úthaldskraft og endur-
nýjunarhæfileika (Olsen, 1979;
Westergaard, o.fl., 2001).
Runna í skjólbelti má samkvæmt
þessu skipta gróflega niður í þrjá
flokka:
1. Skuggþolnar til hálfskuggþolnar
tegundir, til notkunar í innri
röðum belta og öðrum skugg-
sælum stöðum.
2. Sólelskar vind- og saltþolnar
skriðular tegundir, til notkunar
áveðurs í beltum en undir
vaxandi samkeppni og skugga-
varpi.
2. mynd. Yfirlitsmynd af tilraunareitnum á Blönduósi í lok ágúst 2012. Næst á
myndinni er fjallarós (Rosa pendulina) og næst henni Blöndustikkill (Ribes x
magdalenae), fyrir aftan til vinstri sést Glótoppur (Lonicera involucrata) ´Kera´