Rit Mógilsár - 2013, Blaðsíða 85
Rit Mógilsár 27/2012 85
Nokkuð af þekktum harðgerðum
tegundum og yrkjum hefur ekki
verið plantað nema í einn eða tvo
tilraunareiti. Þar er helst að nefna
víði- (Salix sp.) og reynitegundir
(Sorbus sp.) auk yrkja af tegundum
kvistla (Physocarpus sp.), rósa (Rosa
sp.), rifs (Ribes sp.) og toppa
(Lonicera sp.).
Umræður
Fyrstu niðurstöður úr verkefni Yndis-
gróðurs gefa sterkar vísbendingar
um hvaða tegundir og yrki geta
hentað til skjólbeltaræktar. Við
samanburð á hentugum tegundum í
skjólbeltarækt í Danmörku og Noregi
(Olrik o.fl., 2002; Westergaard, o.fl.,
2001) kemur í ljós að um margar
sömu tegundir og yrki er að ræða
hérlendis.
Með hverju ári sem líður munu söfn
Yndisgróðurs halda áfram að gefa
gleggri mynd um þrif viðkomandi
yrkja. Engu að síður er mikil þörf á
að rannsaka nánar fleiri yrki og ekki
síst hvernig þau þrífast í sambýli
með öðrum plöntum í skjólbeltum,
hvernig þau standa sig í samkeppni
við aðrar tegundir runna, hávaxnari
trjágróður og illgresi.
Mikil þörf er á frekari rannsóknum á
vali á heppilegum og harðgerðum
tegundum runna og smávaxnari
trjátegunda til notkunar í skjól-
beltum hérlendis og er brýnt að
koma á frekara samstarfi milli
viðeigandi stofnana og hagsmuna-
aðila um þær.
Heimildir
Aðalsteinn Sigurgeirsson, 2000. Saman-
burður á klónum víðitegunda og undir-
búningi jarðvegs við ræktun skjólbelta á
Suðurlandi. Skógræktarritið 2000, 1.
101-114
Einar G. E. Sæmundsen, 1963. Skjól-
belti. Skógræktarritið 1963. 15-31
Eymundur Magnússon. 2012. Bóndi á
Vallarnesi á Héraði. Tölvupóstur
15.05.2012.
Olrik, Ditte C. Et al. 2002. Design og
plantevalg i bredere lövtræslæhegn.
Miljöministeriet Forskningscenteret for
Skov og landskab. 2002, bls. 23 og 52.
Olsen, Frode. 1979. Læplantnig. Land-
husholdningsselskabet Forlag. Köben-
havn 1979. 67-68.
Samson Bjarnar Harðarson. 2009. Um
kosti og galla víðis í ræktun. Skóg-
ræktarritið 2009, 1. 48-58
Samson Bjarnar Harðarson. 2009. Um
plöntuval og hlutverk plantna í skjól-
beltum. Skógræktarritið 2009, 2. 12-20
Stjórnarráð Íslands. 2007. Lög um
landshlutaverkefni í skógrækt. Lagasafn
(útgáfa 133b) - Íslensk lög 1. júní 2007
Reykjavik: Alþingi, 2 bls.
Særheim, Anne Erstad. 1994. Leplanting
på kysten av Vestlandet. Faginfo nr. 24
1994. NLH-fagtjenesten.
Westergaard, Lars. Norrie, John Emil og
Jensen, Jan Svejgaard. 2001. Anden
generation løvtrælæhegn – en analyse
af plantevalget i 20 jyske forsøgslæhegn
etableret i 1980’erne. Park- og
Landskabsserien nr. 32, Skov & Land-
skab (FSL), Hørsholm, 2001. 84 bls..