Rit Mógilsár - 2013, Page 86

Rit Mógilsár - 2013, Page 86
 86 Rit Mógilsár 27/2012 Abstract in English [e. New Icelandic trees] Since only a handful of tree species form native woodlands or forests in Iceland, a number of species have been introduced, mainly from the most northerly reaches of each species´ range on the west coast of N-America, the most northern parts of Europe and mountain ranges further south on both continents. A few of those species are thought to be of possible interest in commercial forestry in Iceland, although not yet much used to that end. Those get a somewhat more thorough intro- duction in this article. Their potentials for forestry in Iceland are evaluated, based partly on their success in Icelandic conditions to date and partly by their temperature requirements in regions of origin. Furthermore, tree species that have produced mature seed under natural conditions in Iceland are listed in Table 1. Inngangur Þórarinn Benedikz leitaðist við undir lok 20. aldar að skrásetja sjálf- sáningu innfluttra trjátegunda á Íslandi. Grein þessi er að nokkru byggð á munnlegum heimildum frá honum. Höfundar þessarar greinar hafa, ásamt fleirum, ítrekað, safnað trjáfræi á Hallormsstað, Tuma- stöðum, í Skorradal, Hveragerði og Múlakoti á fyrsta áratug 21. aldar. Safnarar, sem hér greina frá, hafa verið á vegum sjálfra sín, Skóg- ræktarfélags Hafnarfjarðar og Vesturlandsskóga. Höfum við leitast við að ná spírunarhæfu fræi af sem flestum tegundum, eftir því sem bætist í þann hóp trjátegunda, sem bera þroskað fræ á Íslandi. Fræinu hefur einkum verið sáð í gróðrar- stöðinni Þöll við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Þar hefur fengist reynsla af spírunarhæfni fræsins og byggir listinn í 1. töflu ekki síst á henni. Grasafræðingarnir Ingimar Óskars- son, Ingólfur Davíðsson, Steindór Steindórsson og Stefán Stefánsson, hafa talið tegundir fullkomlega ílendar (og þar með íslenskar), þegar þær hafa náð að sá sér af sjálfdáðum í íslenskri náttúru (Stefán Stefánsson, 1948). Þegar tegund hefur náð að þroska fræ á Íslandi, er eingöngu tímaspursmál, hvenær viðkomandi tegund nær að sá sér út af sjálfdáðum og með því að staðfesta þegnrétt sinn í landinu. Aðferðir Í 1. töflu eru tegundir, sem við höfum safnað fræi af og hefur spírað, auk þeirra ílendu víðitegunda sem Jóhann Pálsson (2004) getur um í grein sinni í Skógræktarritinu og nokkurra algengustu skógræktar- tegunda Íslands sem löngu eru orðnar ílendar hérlendis. Ekki er þó óhugsandi að einhverjar tegundir hafi orðið útundan í þessari saman- tekt. Síðan er stutt umfjöllun um hverja tegund sem hefur sennilega þroskað fræ í fyrsta skipti um og eftir síðustu aldamót og gætu að okkar mati nýst til nytjaskógræktar í framtíðinni. Upplýsingar um tegundirnar eru að Nýjar íslenskar trjátegundir Árni Þórólfsson1 og Sigvaldi Ásgeirsson2 1Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar; 2Vesturlandsskógum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.