Morgunblaðið - 03.06.2021, Side 1

Morgunblaðið - 03.06.2021, Side 1
F I M M T U D A G U R 3. J Ú N Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 129. tölublað . 109. árgangur . Lægra verð - léttari innkaup FRÁBÆR TILBOÐ Í NÆSTU NETTÓ TILBOÐ GILDA 3. ! 6. JÚNÍ '$)(%&"!#% með roði Sjávarkistan 1.199KR/KG ÁÐUR: 2.398 KR/KG Nauta Rib Eye 2x250 gr 3.499KR/PK ÁÐUR: 4.998 KR/PK D-3 Vítamín ,. #%!"$ + -"'( *()(&& 833KR/STK ÁÐUR: 1.389 KR/STK Heilsuvara vikunnar! 50% AFSLÁTTUR 30% AFSLÁTTUR 40% AFSLÁTTUR LÍKT OG FYSSANDI JÖKULÁ ELDHUGAR SEM STÓÐU UNDIR NAFNI MINNISVARÐI UM ANNUS HORRIBILIS GOSIÐ Í EYJUM 28-29 DÆS LÓU HLÍNAR 72LÍKJÖR ÚR MJÓLK 26 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Landsvirkjun, sem er langstærsti framleiðandi raforku á Íslandi, hef- ur hækkað verðskrá sína á heild- sölumarkaði um 7,5-15%. Kemur hækkunin í kjölfar frétta af því að önnur tveggja 50 Mw túrbína Reykjanesvirkjunar var stöðvuð vegna óþekktrar bilunar. Á sama tíma og HS Orka, sem rekur Reykjanesvirkjun, sér fram á að ríf- lega fjórðungur af framleiðslugetu fyrirtækisins muni standa ónýttur næstu vikurnar, standa allra augu í orkugeiranum á uppistöðulónum Landsvirkjunar en vatnshæð þeirra er með allra lakasta móti. Þórisvatn, sem er stærsta stöðuvatn landsins og langstærsta miðlun fyrirtækisins og mikilvægur hlekkur í veitukerfi þess, stendur samkvæmt nýjustu mælingum í 566 metrum yfir sjáv- armáli sem er sjö og hálfum metra undir meðalvatnshæð áranna 2002- 2014. Er vatnshæðin nú aðeins 2,5 metrum ofan við lægsta gildið sem mælst hefur á ofannefndu tímabili. Sérfræðingur sem Morgunblaðið ræddi við sagði afar óvanalegt að Landsvirkjun hækkaði raforkuverð á þessum tíma árs og að það væri helst til marks um að fyrirtækið teldi hættu á að framboðshlið mark- aðarins stefndi í ranga átt. Annar sérfræðingur sem blaðið ræddi við sagði stöðu lónanna, auk erfiðleik- anna í Reykjanesvirkjun, vekja spurningar um hvort orkufyrirtækin gætu lent í vandræðum með að af- henda ótryggða orku til kaupenda á komandi mánuðum. Horfa menn þar sérstaklega til fiskimjölsverksmiðja sem hafa verið rafvæddar á síðustu árum en geta einnig gengið fyrir jarðefnaeldsneyti ef í harðbakkann slær. Raforkuverð tekur kipp - Landsvirkjun hækkar verð á heildsölumarkaði um 7,5-15% - Vatnshæð lóna lág Hraun var í gær farið að teygja sig úr Geldingadal í átt að gönguleiðinni upp á fellið, sem hefur verið vinsæll útsýnis- staður. Svo virtist sem það ætlaði yfir í Syðri-Meradal hægra megin við fellið. Þar með hefði leiðin upp á fellið lokast. Þor- valdur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við HÍ, sagði í gær að þessi tunga hefði stöðvast, að minnsta kosti um sinn. Runnið hafði undan skorpunni og komið smá lægð í yfirborð hraunsins. Hann sagði að koma þyrfti sæmileg hraungusa inn dalinn til að ýta þessari tungu yfir haftið. »4 Morgunblaðið/Einar Falur Hraunið úr eldgosinu breiðir úr sér jafnt og þétt 40% svarenda í nýrri könnun MMR leist mjög eða frekar vel á framkomnar hugmyndir um Borg- arlínu á höfuðborgarsvæðinu. 34% leist mjög eða frekar illa á þær. Rúmur helmingur svarenda taldi bætingar á stofnbrautakerfi borgarinnar líklegri til að draga úr umferðartöfum á höfuðborgar- svæðinu næstu árin en bætingar á almenningssamgöngum með Borgarlínu. Þriðjungur taldi Borgarlínu líklegri til að draga úr töfum. Þá sögðust tæp 60% andvíg lækkun hámarkshraða á borgar- götum en fjórðungur hlynntur. » 4 og 46 40% leist vel á Borgarlínuna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.