Morgunblaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 60
✝
Svanborg
Ólafsdóttir var
fædd 8.4. 1932 í
Litla-Laugadal í
Tálknafirði.
Hún lést á
Hrafnistu Hafn-
arfirði 26.5 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Ólafur Jós-
úa Guðmundsson,
fæddur 4.10. 1900,
dáinn 1993 og Sess-
elja Ólafsdóttir, fædd 13.6.
1897, dáin 1988. Systkini Boggu
voru Guðmundur, Hulda, Har-
aldur, Cesar, Júlíus, Sverrir,
Aðalsteinn, Gróa og Erla Þor-
gerður sem er ein eftirlifandi af
þeim systkinum.
Árið 1953 giftist Svanborg
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Baldri Jóhannssyni vélstjóra,
fæddur 19.10. 1929. Foreldrar
hans voru Jóhann Jónsson og
Lára Sigfúsdóttir.
Lovísa, Birna og Kristófer. Og á
hún eitt barnabarn.
5) Brynja, fædd 1966, maki
Gunnar Óli Pétursson. Barn
þeirra er Lilja og börn Brynju
eru María Lind og Guðmundur.
6) Erla, fædd 1971, maki Gísli
Vattnes. Barn hennar er Áslaug
Brynja og á Erla eitt barna-
barn.
7) Ólafur Jósúa, fæddur 1973,
maki Ramona Balaciu. Börn
hans eru Karel Atli, Gunnar
Árni, Jón Emil og Emilía Anna
og barnabörn hans eru tvö.
Svanborg ólst upp á Tálkna-
firði í stórum systkinahóp þar
sem hún sá um dýrin á bænum
með föður sínum. Þegar Bogga
var 14 ára flutti fjölskyldan til
Patreksfjarðar og vann hún við
hin ýmsu störf þar til hún og
Baldur stofnuðu heimili. 1966
flutti Bogga og Baldur í Hafn-
arfjörð með börnin sín þar sem
hann fékk starf sem vélstjóri.
Bogga var húsmóðir þar til
börnin voru uppkomin og fór þá
út á vinnumarkaðinn og vann
meðal annars í Sjávarfiski.
Útför Svanborgar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju, í dag,
3. júní 2021 kl. 13.
Börn Boggu og
Baldurs eru:
1) Reynir, f. 8.10.
1952, maki Karitas
Jóhannsdóttir,
þeirra börn eru
Eva Lísa, Kamilla,
Sturla Snær og
Karl Viðar, barna-
börn eru 5.
2) Jóhann, fædd-
ur 1954, eiginkona
Kristín Reynis-
dóttir, sonur þeirra er Reynir
Freyr. Börn Jóhanns og Sig-
urveigar Einarsdóttur eru Bald-
ur, Einar Þór og Sólveig.
Barnabörn Jóhanns eru 9 og
barnabarnabörn tvö.
3) Anna Björk, fædd 1960,
eiginmaður Sigurjón Andersen.
Börn þeirra eru Svanborg Erla
og Viktor Freyr. Barnabörn
þeirra eru 4.
4) Birgitta, fædd 1963, maki
Elías Ívarsson. Börn hennar eru
Elsku Bogga mín.
Ástarþakkir fyrir lífið okkar
saman, börnin okkar og þína ein-
stöku góðmennsku.
Ég þakka fyrir ferðalögin,
dansana og allar góðu minning-
arnar okkar.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þinn
Baldur.
Elsku hjartans mömmublómið
okkar, það er sárara en tárum taki
að kveðja þig.
Við eigum öll svo margar minn-
ingar um þig og allar góðar, það
má svo sannarlega segja að við
systkinin höfum unnið í mömmu-
lottóinu þegar okkur var úthlutað
þér sem móður okkar. Betri,
dásamlegri, sanngjarnari, dug-
legri, ástríkari og skilningsríkari
móður er ekki hægt að óska sér.
Við áttum yndislega æsku, þú
elskaðir fjölskylduna þína skilyrð-
islaust og hafðir þá sýn að það ætti
ekki að skamma börn, heldur ætti
að tala við þau og biðja með góðu.
Þannig var þetta alla okkar tíð,
aldrei vorum við skömmuð eða
okkur ýtt frá vegna þess að þú
hafðir ekki tíma fyrir okkur, aldrei
nokkurn tímann. Þú kenndir okk-
ur margt um lífið, varst góður
hlustandi og gafst okkur góð ráð,
það má alveg segja það að við
systkinin erum öll góðar mann-
eskjur sem er þér og pabba að
þakka. Það var gaman að alast
upp í Kinnunum og áttum við
systkini marga vini sem allir voru
velkomnir á okkar heimili, enda
var þar oft margt um manninn.
Við munum þegar við vorum lítil
og kalt var í veðri, þá varst þú svo
oft búin að setja sængurnar okkar
á ofnana til að þær væru heitar
þegar við færum upp í á kvöldin,
fötin okkar voru á ofnunum á
morgnana svo þau væru heit og
notaleg þegar við klæddum okkur
áður en farið var í skólann, þessu
er ekki hægt að gleyma og
kannski ekki margir sem gerðu
svona hluti. Við minnumst þess
þegar við vorum úti að leika á vet-
urna og komum inn með ískaldar
tær, þá tókstu okkur úr sokkun-
um og lést okkur liggja á gólfinu
fyrir framan ofninn í eldhúsinu og
setja tærnar upp við ofninn þar til
þær voru orðnar heitar, þú fannst
alltaf tíma til að sinna börnunum
þínum hvenær sem var sólar-
hringsins. Á meðan við vorum á
þeim aldri að vera til í að vera í
heimasaumuðu, þá saumaðir þú
alltaf á okkur fyrir jólin og yfir-
leitt líka þegar eitthvað stóð til.
Á meðan þú sast við saumavél-
ina þá vorum við systur svo oft að
sniglast í kringum þig, fá að
hjálpa til þó að besta hjálpin fyrir
þig hafi líklega verið að fá að vera
í friði og við bræður fengum að
gera við vélar úr bílum á eldhús-
borðinu. En alltaf leyfðir þú okk-
ur að vera með í öllu sem þú varst
að gera. Það má alveg velta því
fyrir sér hvað voru margir
klukkutímar í þínum sólarhring,
það sem þú gerðir og allt sem þú
komst í verk á hverjum degi gæti
engan veginn gengið fyrir neitt
okkar. Það hlýtur oft að hafa tek-
ið á að vera með fullt hús af börn-
um, frá smábarni til unglings,
ekki munum við þó einn einasta
dag þar sem þú lást í sófanum að
hvíla þig eða værir aðgerðalaus,
nei nei, það þurfti að baka, elda,
þrífa, prjóna eða sauma og eng-
inn tími fyrir leti, það orð er lík-
lega ekki til í þinni orðabók.
Þegar við vorum flutt að heim-
an þá varð sú hefð til að hittast í
Boggukaffi á sunnudögum með
börnin okkar hjá ykkur pabba og
gerum við það enn.
Við pössum upp á pabba fyrir
þig.
Hvíl í friði, elsku mamma okk-
ar, þú varst einfaldlega best.
Börnin þín,
Reynir, Jóhann, Anna,
Birgitta, Brynja, Erla.
Elsku mamma mín.
Þar sem ég horfi til baka og
hugsa um þá tíma þegar ég var
lítill, þegar maður gerði marga
skrítna hluti sem héldu þér frek-
ar upptekinni frá því snemma að
morgni þangað til ég sofnaði með
puttana í flækju í hárinu á þér, þá
veltir maður fyrir sér hvort sólar-
hringurinn þinn hafi verið lengri
en okkar hinna.
Á sumrin þegar ég kom heim
eftir að hafa verið að hjóla út í
læk blautur og drullugur upp fyr-
ir haus einungis til þess að skipta
um föt og fá mjólk og nýbakaðar
kökur, var maður tilbúinn að
bruna eins hratt og maður gat
beint aftur niður Bárukinn og á
stökkpallinn sem maður áður
hafði gert til að stökkva út í læk
aftur og endurtekið leikinn,
svona var þetta alla daga og
skilningurinn frá þér náði engum
mörkum, fötin voru bara þrifin
og allt var tilbúið fyrir næsta dag
eins og ekkert væri eðlilegra.
Á veturna þegar ég kom heim
eins seint og maður gat ískaldur
vissi maður að það beið heitt
kakó og með því, kannski það
kvöld kom ég heim bara með einn
lopavettling því hinn var frosinn
fastur aftan á stuðara á VW-
bjöllu eða öðrum bílum sem áttu
leið um hverfið, hvað vaknaði
maður svo við, jú það var komin
nýprjónaður vettlingur. Í okkar
heimi var þetta bara eins og hlut-
ir, föt eða bara hvað sem er hefði
poppað upp yfir nótt og verið til
staðar næsta dag árið um kring,
Þér þótti jafnvel eðlilegt að
taka hluta af ljósakrónunni yfir
eldhúsborðinu niður svo ég gæti
notað hana í kappakstursleik, svo
bara sett þetta upp aftur eins og
allt væri eðlilegt þegar ég sneri
mér að einhverju öðru.
Það er erfitt að gera sér grein
fyrir hversu mikla þolinmæði þú
varst með til að ala upp mjög svo
uppátækjasaman einstakling frá
morgni til kvölds, fyrir mér væri
líklega hægt að líkja saman heilu
munkaklaustri með hópi manna
sérþjálfuðum í þolinmæði, um-
hyggju og ást, fyrir mér voru allir
þessir menn settir í eina mömmu
sem hafði allan skilning á öllu
sem maður tók sér fyrir hendur.
Það er spurning, elsku
mamma, hvort þú hafir verið
huldukonan sem kom og hitti
pabba okkar í bakgarðinum þeg-
ar hann var lítill, það lítur út fyrir
það þegar hugsað er til baka að
þú hafir haft lítinn her af álfum
sem við sáum ekki með þér til að
áorka öllu sem þú gerðir án þess
að kvarta eða afsaka þig, það er
eitthvað sem þú hafðir ekki í þér
á neinn hátt, ég upplifði aldrei
vandamál, þú varst með lausnir á
öllu, held að afsökunum hafi verið
skipt út fyrir skilning, að reiði
hafi verið skipt út fyrir ást og
endalaus tími gefinn fyrir okkur
krakkana og pabba.
Það eru endalausar sögur til af
okkur og allar þær byrja á ein-
hverju uppátæki hjá mér og enda
með góðmennsku, skilningi og
ást frá þér.
Elsku mamma okkar, jafnvel á
síðustu dögum komstu okkur til
að hlæja og finnast að allt ætti
eftir að vera í fínasta lagi til eilífð-
ar, ást og umhyggja þín mun vera
með okkur öllum það sem eftir er.
Ég elska þig.
Ólafur Jósúa.
Elsku besta amma Bogga, það
er með miklum söknuði sem ég
kveð þig í hinsta sinn en einnig
miklu þakklæti fyrir allan þann
tíma sem ég átti með þér og þær
minningar sem eftir sitja.
Minningarnar um þig munu lifa
með mér það sem eftir er.
Allt frá því að ég var lítil stelpa
hef ég eytt miklum tíma á Suður-
götunni með þér og afa, þar er og
verður alltaf gott að vera. Afi að
horfa á boltann og þú að leggja
kapal við eldhúsborðið, maður var
alltaf velkominn á Suðurgötuna og
alltaf var í boði að fá kaffi og kök-
ur, sama hvaða tíma sólarhrings
var um að ræða. Ég man svo vel
eftir tímunum í eldhúsinu með þér
að baka kleinur eða pönnukökur,
þær voru alltaf langbestar hjá þér.
Þú varst einstök kona og tel ég
mig vera eina af þeim heppnu sem
fengu að eiga þig sem ömmu og
fyrirmynd. Ég er óendanlega
þakklát fyrir þá einstöku kosti
sem ég hef erft frá mömmu minni
sem hún fékk frá þér.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku amma mín, ég hlakka til
að fá hlýja knúsið þitt næst þegar
ég hitti þig. Góða ferð og megir þú
hvíla í friði.
Áslaug.
Meðan ég sit hér og reyni að
koma niður orðum á blað um eina
bestu konu í lífi mínu, hana ömmu
mína, er ég gjörsamlega tóm og
vanmáttug. Efst í huga mér er
fyrst og fremst þakklæti.
Fyrir mér var amma mín ofsa-
lega merkileg kona og blíðari en
allt blítt. Hún var góð í gegn. Hún
var ekki bara amma mín, hún var
líka félagi minn og klappstýra
(peppari) í lífinu.
Sem barn ungra foreldra ólst ég
líka upp hjá ömmu og afa, sem var
fyrir mér algjör forréttindi, fannst
líka eiginlega hvergi betra að vera.
Amma mín var húmoristi mikill og
með eindæmum skemmtileg.
Elsku amma er búin að vera partur
af mér frá fæðingu, hún var við-
stödd mína fæðingu, við amma átt-
um einstakt samband. Hún kenndi
mér margt í lífinu og mótaði stóran
part af hjarta mínu. Þegar ég
hugsa um ömmu mína get ég hleg-
ið, brosað og grátið allt í senn.
Amma mín elskaði tónlist og við
vinkonurnar nutum þess að vera að
brasa eitthvað í eldhúsinu syngj-
andi, hlæjandi og snúa hvor ann-
arri í hringi, við nutum þess að gera
grín og vera saman. Amma mín var
sko alvöru fyrirmynd.
Þangað til næst, amma mín.
Ég elska þig.
Þín
Lovísa.
Það er ótrúlega erfitt að kveðja
þig elsku amma mín. Þú með þitt
stóra hjarta og fallegu sál hefur
kennt mér svo margt um lífið. Ég
get ekki annað en brosað þegar ég
hugsa til þín og það eru óteljandi
minningar sem koma upp í hug-
ann og í þeim ertu alltaf brosandi.
Ég er svo óendanlega þakklát
fyrir að hafa fengið þig sem
ömmu, fyrir að vera nafna þín og
þakklát fyrir allar stundirnar sem
við áttum, alveg frá því að ég
fæddist. Þú verður alltaf ein af
mínum stærstu fyrirmyndum
enda algjört hjartagull.
Takk fyrir allt elsku besta
amma.
Mér þykir óendanlega vænt um
þig og veit að þú vakir yfir okkur.
Við hittumst aftur seinna.
Þín ömmustelpa,
Svanborg Erla.
Svanborg
Ólafsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Við kveðjum þig elsku amma
mín,
í upphæðum blessuð sólin
skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í
dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Ég minnist ömmu
Boggu með hlýju og virð-
ingu. Hún var góð við alla,
menn og dýr. Amma mín
var góð kona og gaf mikið
af sér, alltaf brosandi og
hlý.
Takk fyrir allar stund-
irnar og fallegar minning-
ar.
María Lind
Traustadóttir.
Elsku yndislega amma
mín.
Ég er heppin að hafa átt
ömmu eins og þig. Ég á
einungis fallegar minning-
ar um þig og afa. Þú varst
ljúf, góð og alltaf með bros
á vör. Alltaf gastu fundið
spaugilegar hliðar á lífinu
og hlegið. Ég lít upp til þín.
Tær góðmennska þín í
garð annars fólks og dýra
er aðdáunarverð. Fyrir þér
voru allir jafnir.
Takk fyrir allt, amma
mín, þín verður sárt sakn-
að.
Birna Óskarsdóttir.
60 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2021
Minningarkort
fæst á nyra.is eða
í síma 561 9244
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR FRIÐRIKKA JÓNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 27. maí.
Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn
9. júní klukkan 13.
Slóð á streymi verður birt síðar.
Rebekka G. Gundhus Anders Gundhus
Anna Ólafía Guðnadóttir Viðar Böðvarsson
Arnfríður Lára Guðnadóttir Sveinbjörn Lárusson
Kristín Guðnadóttir Einar Vignir Sigurðsson
Jóna Björk Guðnadóttir Jón Marinó Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
ÁSTU GARÐARSDÓTTUR
frá Fáskrúðsfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks V-3 á Grund
fyrir umönnun síðustu tvö árin.
Aðstandendur
Kæru ættingjar og vinir. Hjartans þakkir fyrir
samúð og hlýju sem þið auðsýnduð okkur
vegna andláts elskulegs eiginmanns, sonar,
föður, tengdaföður, bróður, mágs og afa,
HILMARS ÞÓRARINSSONAR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
krabbameins- og líknardeildar Landspítala og heimahjúkrunar
Heru fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Birna E. Benediktsdóttir
Þórarinn Guðmundsson Hulda Petersen
Þórarinn Hilmarsson Ásta R. Thorarensen
Benedikt Kjartan Magnúss. Petrea I. Guðmundsdóttir
Karitas María Lárusdóttir Gylfi Einarsson
Edda Þórarinsdóttir Jón Ingi Guðmundsson
Inga Þórarinsdóttir Baldur Bragason
og barnabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSTU HALLDÓRU ÁGÚSTSDÓTTUR,
Birkihvammi 5, Kópavogi.
Sérstakar þakkir sendum við Félags-
þjónustunni í Kópavogi, Heimahjúkrun
Kópavogs og starfsfólki HERU heimahlynningar og líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir nærgætni og virðingu.
Ágúst Þór Gunnarsson Hólmfríður Sigurðardóttir
Ólafur Sævar Gunnarsson
Hulda Björk Gunnarsdóttir Helgi Valberg
Sigurlaug Gunnarsdóttir Hafsteinn Haraldsson
Gunnhildur Gunnarsdóttir Rannver Eðvarðsson
Valdimar Grétar Gunnarsson Katrín Einarsdóttir
Gunnar Gunnarsson Anna María Bjarnadóttir
barnabörn og langömmubörn