Morgunblaðið - 03.06.2021, Side 34

Morgunblaðið - 03.06.2021, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum rnin að þig? Eru frjóko fara með Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna Nefsíflur loksins horfnar! Frá unga aldri hef ég átt við vandamál í öndunarfærum að stríða sem lýsti sér m.a í stífluðu nefi. Eftir að hafa notað Ginger, Turmeric & Bromelain í rúma viku fann ég greinilegan mun á mér og eftir mánuð voru netstíflurnar horfnar“. Þrymur Sveinsson Ginger, Turmeric & Bromelain Afurðaverð á markaði 1. júní 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 414,88 Þorskur, slægður 336,97 Ýsa, óslægð 446,76 Ýsa, slægð 332,14 Ufsi, óslægður 121,03 Ufsi, slægður 146,44 Gullkarfi 220,02 Blálanga, óslægð 50,00 Langa, óslægð 260,37 Langa, slægð 162,00 Keila, óslægð 35,50 Keila, slægð 60,82 Steinbítur, óslægður 27,33 Steinbítur, slægður 126,03 Skötuselur, slægður 729,00 Grálúða, slægð 223,44 Skarkoli, slægður 401,23 Þykkvalúra, slægð 531,72 Langlúra, óslægð 212,12 Sandkoli, óslægður 158,00 Bleikja, flök 1.456,08 Regnbogasilungur, flök 3.176,00 Hlýri, óslægður 58,19 Hlýri, slægður 92,17 Kinnfiskur/þorskur 1.050,00 Lúða, slægð 909,13 Lýsa, óslægð 36,44 Lýsa, slægð 35,00 Undirmálsýsa, óslægð 13,00 Undirmálsþorskur, óslægður 201,18 Undirmálsþorskur, slægður 239,00 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Heildarfjárfestingar í fiskveiðum og fiskvinnslu, þjónustu við fiskveiðar og fiskeldi á árunum 2008 til 2019 námu 236 milljörðum króna. Þetta kemur fram í skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi. Þar segir að mest hafi verið fjárfest í bátum og skipum eða fyrir um 108 milljarða króna. Næstmest hefur verið fjárfest í fiskvinnslu og nema fjárfestingarnar 97 millj- örðum. Í fiskeldi hefur verið fjárfest fyrir 25 milljarða á tímabilinu og 6 milljarða í fjölbreyttri þjónustu við fiskveiðar. Töluverða sveiflu er að finna í fjárfestingum milli ára en það kann að skýrast af því að stök verkefni kunna að vera fyrirferðarmikil og skipt mörgum milljörðum. Til að mynda var fjárfest fyrir 105 millj- arða bara á árunum 2015 til 2017, þar af var fjárfest í nýjum skipum fyrir 54 milljarða króna. Stöðugri þróun hefur verið í fiskvinnslunum og hefur verið fjárfest fyrir 11 til 14 milljarða á hverju ári á tímabilinu 2015 til 2019. Auka hagkvæmni „Líkt og í öðrum atvinnugreinum ráðast fjárfestingar í sjávarútvegi af framtíðarhorfum og væntum ávinn- ingi, en einnig af afkomu undanfar- inna ára. Þær fjárfestingar sem ráð- ist hefur verið í á undanförnum árum hafa verið nauðsynlegar vegna þess hve fiskiskipastóllinn var orð- inn gamall, en auk þess hafa þær gert fyrirtækjum mögulegt að inn- leiða nýja tækni og skipulag um borð í skipunum og draga úr eldsneytis- notkun. Nýju skipin eru í mörgum til- vikum öflugri en hin eldri og því hef- ur einnig verið hægt að sameina aflaheimildir á færri skip og þannig auka enn fremur hagkvæmni við veiðarnar,“ segir í skýrslunni. Töluvert hefur verið fjárfest í fisk- eldi hér á landi á undanförnum árum og hafa þær vaxið ört. Á árunum 2008 og 2009 voru fjárfestingar í greininni einungis 600 milljónir króna en tvöfölduðust síðan í 1,1 til 1,4 milljarða árin á eftir. Náðu fjár- festingar í greininni hámarki 2017 er fjárfest var fyrir 6,8 milljarða króna, en 2018 námu fjárfestingar 3,5 millj- örðum og 2,7 milljörðum árið 2019. Benda skýrsluhöfundar á að fisk- eldi sé fjármagnsfrek atvinnugrein enda kostnaðarsamt að byggja upp innviðina og biðin eftir afköstum löng. Það tekur um tvö til þrjú ár fyrir eldislax í sjókví að ná slátur- stærð. Jákvæð aðkoma Norðmanna „Aðkoma norskra fjárfesta hefur því verið mikilvæg en áhugi inn- lendra fagfjárfesta á fiskeldi hefur farið vaxandi, svo sem glöggt kom fram í hlutafjárútboði Iceland Sal- mon AS, móðurfélags Arnarlax í október 2020, en félagið er skráð á hlutabréfamarkaði í Noregi (marg- föld eftirspurn var í hlutafjárútboði Arnarlax 2020). Norska fjárfestinga- félagið Måsøval Eiendom AS á ráð- andi hlut í Ice Fish Farm AS, sem er eignarhaldsfélag Fiskeldis Aust- fjarða hf., og fyrirtækinu Laxar fisk- eldi ehf. Ice Fish Farm AS er skráð á hlutabréfamarkaði í Noregi. Þá á norska fiskeldisfyrirtækið Norway Royal Salmon ASA (NRS) helm- ingshlut í Arctic Fish ehf. sem er móðurfyrirtæki Arctic Sea Farm hf. NRS er skráð á hlutabréfamarkaði í Noregi,“ segir um fjárfestingar í fiskeldi í skýrslunni. Þá fylgi norska fjármagninu einn- ig mikilvæg tækniþekking og reynsla af eldisstarfsemi sem skýrsluhöfundar telja nýtast við uppbyggingu greinarinnar hér. Fjárfest fyrir 236 milljarða króna - Fjárfest hefur verið fyrir 236 milljarða í sjávarútvegi og fiskeldi á áratug - Tæp 87% af fjárfest- ingunum í skipum og fiskvinnslu - Ör vöxtur í fiskeldinu - Þekking norskra fjárfesta sögð nýtast vel Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hafnarfjarðarhöfn Gríðarlegar fjárfestingar í skipakosti hafa átt sér stað á undanförnum árum. Því hafa einnig fylgt fjárfestingar í búnaði um borð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.