Morgunblaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 80
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
virkir dagar 11-18:30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
virkir dagar 11-18
Akureyri
Opnunarhátíð 4.-7. júní
Ný verslun á
Austursíða 2, Norðurtorgi
Opnum kl. 11 á morgun
• 30-40% af völdum vörum
• 20% af öllum vörum
• Bylgjan í beinni gefur gjafabréf
• Fyrstu 50 fá veglegan gjafapoka sem
versla fyrir 10.000 kr. eða meira
Tilboð gilda einungis í verslun ILVA á Akureyri
s: 522 4500 - www.ILVA.is
LOTUS 2ja sæta sófimeð legubekk. L217xD147 cm.
Áður 149.900 kr.Nú 89.940 kr. Sparaðu 59.960 kr.
Einnig til speglaður.
30%
30%
30%
40%
HARVEY Desertskálar. 4 í pk.
Áður 2.295 kr.Nú 1.607 kr.
RETINA Skemill með geymslu.
Áður 15.900 kr.Nú 13.930 kr.
GLORY Bekkur. Ýmsir litir.
Áður 15.900 kr.Nú 11.130 kr.
Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytur verkið Cata-
morphosis eftir Önnu Þorvaldsdóttur á tónleikum sín-
um í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 20 undir stjórn Evu Olli-
kainen. Verkið, sem var pantað í sameiningu af
Fílharmóníusveitunum í Berlín og New York, Sinfóníu-
hljómsveitinni í Birmingham og Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands, var heimsfrumflutt í Berlín í janúar. Einleikari
kvöldsins er Grímur Helgason í klarínettkonsert nr. 1
eftir Carl Maria von Weber. Tónleikunum lýkur á for-
leiknum að Tannhäuser, óperu Wagners um samnefnt
söngvaskáld og togstreitu hins andlega og veraldlega í
lífi og list.
Nýtt verk Önnu hjá Sinfó í kvöld
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 154. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
KA/Þór leiðir 1:0 í einvígi sínu gegn Val í baráttunni um
Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna eftir
þriggja marka sigur í fyrsta leik liðanna í KA-heimilinu
á Akureyri í gær. Annar úrslitaleikur liðanna fer fram á
Hlíðarenda hinn 6. júní en vinna þarf tvo leiki til þess
að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
Fari svo að Valskonur fagni sigri á sunnudaginn
munu liðin mætast í oddaleik og hreinum úrslitaleik
um Íslandsmeistaratitilinn hinn 9. júní í KA-heimilinu á
Akureyri. »71
Akureyringar í kjörstöðu eftir
sigur í fyrsta leik úrslitaeinvígisins
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kvíðir er félagsskapur eldri fót-
boltamanna úr Keflavík og Víði í
Garði sem byrjuðu að spila golf sam-
an fyrir um ári til þess að treysta
vinaböndin enn frekar, en önnur
Kvíðismótaröðin er nýhafin. „Hörð-
ustu fótboltaleikir okkar Keflvíkinga
á Suðurnesjum í gamla daga voru á
móti Víði og til þess að þétta hópinn
buðum við Víðismönnum að vera
með okkur í fótboltanum á sínum
tíma,“ segir Gunnar Oddsson. „Það
hefur þróast í mikinn vinskap og
bræðralag, þar sem gömlu andstæð-
ingarnir eru orðnir miklir vinir.“
Það er engin leið að hætta’ að
syngja svona, segir Valgeir í Popp-
lagi í G-dúr, en íþróttafólk glímir oft
við svipaðan vanda. Það getur ekki
hætt og þar hefur félagsskapurinn
mest að segja. Þegar Reykjaneshöll-
in var tekin í notkun í febrúar 2000
voru milli 30 og 40 manns í fótbolta-
hópi eldri leikmanna í Keflavík, en
þeim hefur fjölgað mikið og ekki síst
eftir að golfið bættist við. Margir eru
bæði í fótbolta og golfi, sumir bara í
boltanum og aðrir aðeins í golfi.
Gunnar segir að allir sem tengjast
eða hafa tengst fótboltanum að ein-
hverju leyti geti gerst félagar, en
skráðir félagar eru nú 102. Þar af
eru um 60 í fótboltanum og um 40 til
50 manns taka þátt í golfmótunum
að meðaltali.
„Margeir Vilhjálmsson er okkar
helsti kylfingur og var í forystu fyrir
því að bæta golfinu við, sannfærði
okkur um að það væri borðleggjandi
að vera í golfi á sumrin og fótbolt-
anum inni á veturna,“ segir Gunnar.
„Við fórum til Skotlands skömmu
áður en öllu var skellt í lás vegna
veirunnar í fyrra og spiluðum þar
fótbolta og golf. Þá var ákveðið að
setja Kvíðis-mótaröðina í gang, við
héldum nokkur mót og verðum með
um 20 mót í sumar.“
Íslandsmeistarar í 50+
Keppnisskapið leynir sér ekki
jafnt í boltanum og golfinu og Kefl-
víkingar eru stoltir af því að vera Ís-
landsmeistarar í 50+ í fótbolta. „Öll-
um þykir svo skemmtilegt í „old
boys“ að enginn vill hætta,“ segir
Gunnar. „Við höfum verið með mjög
öflugan hóp sem hefur staðið sig vel
í mótum, enda höfum við verið mjög
duglegir að mæta á „æfingar“ á vet-
urna, höfum verið með fastan tíma í
hálfum sal klukkan 20.20 á fimmtu-
dögum í yfir 20 ár.“ Um 20 til 40
manns mæti hverju sinni, skipt sé í
tvö lið og spilað. „Það er mjög gam-
an og skynsemin ræður ferðinni.“
Margir góðir kylfingar eru í hópn-
um og þar á meðal eru Jón Ólafur
Jónsson og Hjörtur Zakaríasson úr
gullaldarliði Keflavíkur á sjöunda
áratugnum. „Jón er áttræður og læt-
ur engan bilbug á sér finna, en ég
held að forgjöfin sé frá 2,7 og upp
úr,“ segir Gunnar. Bætir við að Mar-
geir, sem sé PGA-kennari og sjái um
skipulagningu golfmótanna, verði
með æfingar fyrir félagsmenn viku-
lega í sumar.
Flest golfmótin fara fram í Leir-
unni, en einnig mörg í Sandgerði og
Grindavík. Í fyrra var líka meðal
annars spilað í Öndverðarnesi, Vest-
mannaeyjum og Grafarholti. Síðast-
liðinn mánudag var keppt í Leirunni
og nk. mánudag verður spilað í
Grindavík. „Þetta er endalaust gam-
an,“ áréttar Gunnar.
Á Livingstone-vellinum Félagar úr hópnum hafa oft farið saman til útlanda. Þessir spiluðu fótbolta og golf í Skot-
landi áður en öllu var lokað vegna veirunnar í fyrra. Gunnar Oddsson er áttundi til vinstri í öftustu röð.
Mótherjar sameinast
- Kvíðismenn úr Keflavík og Víði Garði saman í fótbolta og golfi
Hafnagengið Páll Ketilsson og föðurbræður hans Margeir, Svanur og
Garðar Vilhjálmssynir frá Höfnum eru öflugir kylfingar.