Morgunblaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 68
68 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2021
50 ÁRA Sigurður Birgisson er fæddur og uppalinn á Krossi í
Ljósavatnsskarði í Suður-Þingeyjarsýslu og er bóndi þar. Ætt
hans hefur búið á Krossi frá því fyrir 1900. Sigurður og Hulda
konan hans eru með blandaðan búskap á Krossi, 17 kýr og 200
kindur. Hann er líka skólabílstjóri við Stórutjarnaskóla. Sauð-
burði er núna lokið og skólakrakkar komnir í sumarfrí. „Núna
er maður að vinna vorverkin, fylgjast með lambánum úti á
túni, koma áburði á túnin og vinna flög,“ segir Sigurður að-
spurður, en að vinna flög er að sinna endurrækt á túnum.
Sigurður er formaður sóknarnefndar Ljósavatnssóknar og einnig veiði-
vörður við Ljósavatn. „Veiðin gengur ágætlega, þetta er dauft fyrst á vorin
en lifnar við þegar kemur fram í júní. Vorið hefur verið kalt en síðasta vika
hefur verið mjög góð og hitinn farið í 15-17 gráður á daginn. En það getur
orðið hvasst hérna í suðvestanáttinni. Ef hún nær sér á strik fer hann hér al-
veg í 30-40 metra.“ Sigurður hefur gaman af að syngja og var í Söngfélaginu
Sálubót í mörg ár.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Sigurðar er Hulda Svanbergsdóttir, f. 1969,
grunnskólakennari í Þingeyjarskóla. Börn þeirra eru Hannes Haukur, f.
2003, og Guðrún Karen, f. 2005. Stjúpsonur Sigurðar er Gunnlaugur Sig-
valdason, f. 1989. Systir Sigurðar er Helga Birgisdóttir, f. 1968. Móðir
Sigurðar er Karen Hannesdóttir, f. 1946, búsett á Krossi, og faðir hans var
Birgir Þórisson, f. 1932, d. 1986. Þau voru bændur á Krossi.
Sigurður Birgisson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Sumum líður hreinlega ekki vel
nema þeir séu að breiða yfir tilfinninga-
hnökra með þurri og kaldhæðinni gaman-
semi. Gleymdu ekki að taka mikilvægi ham-
ingjunnar með í reikninginn.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú áleist þig vita hvernig þú vilt láta
koma fram við þig, en ert ekki alveg viss.
Sæktu styrk í vissuna um að þú ráðir við að-
stæður.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Notaðu daginn til að spjalla við vini
þína. Byrjaðu á þvotta- og ruslahrúgunum
og einbeittu þér að því að gera dvalarstað
þinn fallegri og hagnýtari.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Fjölskyldumálin eru ekki einföld í
dag. Einhver mun velta upp gömlu deilumáli
sem þú þarft að leysa úr.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Taktu þér þann tíma sem þú þarft til að
endurskipuleggja fjármálin því það mun
margborga sig. Einhver gæti gefið þér gjöf
eða gert þér greiða.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú ert í náðinni hjá samstarfsmönn-
unum og ættir að nota tækifærið til þess að
koma hugmyndum þínum á framfæri.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú vilt ekki troða neinum um tær en þú
vilt stjórna eigin heimi. Reyndu að bregðast
við eftir efnum og ástæðum því of hörð við-
brögð valda bara vandræðum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú kemst að því hver stendur
með þér og hver er ekki viss um þig. Mundu
að ekki eru allir viðhlæjendur vinir og að
stuðningur kemur oft úr óvæntri átt.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þig langar til þess að kaupa eitt-
hvað fallegt handa sjálfum þér eða ein-
hverjum nákomnum. Gefðu þér tíma til þess.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það er vitanlega betra að vera
frjáls en bundinn væntingum einhvers ann-
ars. Skipuleggðu hlutina á þann hátt sem
þér hentar.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú ert í góðu jafnvægi andlega
sem líkamlega og mátt ekki láta neitt verða
til að trufla það. Reyndu eftir fremsta megni
að bæta heilsu þína því þú kýst að komast í
fremstu röð.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Alvarleikinn á sinn stað og sína
stund, en ekki núna. Bilið á milli styrkleika
og ýtni er ekki breitt.
Í grunnskóla var Þuríður virk í
íþrótta- og félagsstarfi. Æfði frjálsar
íþróttir, körfubolta og borðtennis og
kúluvarp, keppti á ungmennafélags-
mótum og náði á þeim að komast
einstöku sinnum á verðlaunapalla.
Þuríður spilaði á hljóðfæri á þessum
tíma, stundaði nám í saxófónleik við
Tónlistarskóla Austur-Skaftafells-
sýslu og spilaði á trommur í stelpu-
hljómsveitinni Ikarus. Í framhalds-
skóla tók hestamennskan við af
svæðinu. Samstarfsfólk lagði sitt af
mörkum við að finna húsnæði og
maka fyrir þennan nýja starfsmann,
og með forgangsröðina á hreinu
kynntist hún maka sínum þetta
sama ár og flutti til Reykjanes-
bæjar. Þuríður lauk MBA-náminu
árið 2014 og vinnur enn hjá Mark-
aðsstofu Reykjaness við að þróa
áfangastaðinn og markaðssetja með
nýjum áskorunum og verkefnum
tengdum eldgosinu í Fagradalsfjalli.
Þ
uríður Halldóra Aradótt-
ir Braun er fædd 3. júní
1981 á Akureyri, en ólst
upp á Hofi í Öræfum
innan um kindur, hesta
og ferðamenn, en foreldrar hennar
voru bændur og ferðaþjónustu-
bændur þar.
Þuríður fór í heimavistaskóla frá
13 ára til 16 ára í Nesjum í Horna-
firði. 16 ára flutti hún til Reykjavík-
ur til að fara í Menntaskólann í
Kópavogi (1997-2001) og var á ferða-
málabraut. Síðan hélt hún áfram í
ferðamálafræði og þjóðfræði við Há-
skóla Íslands (2002-2006) og lauk
BS-prófi. Árið 1999 hóf Þuríður störf
við Reiðskólann Þyril með námi, við
þjálfun hrossa, leiðsögn með ferða-
menn í hestaferðum og síðar að leið-
beina bæði börnum og fullorðnum á
námskeiðum. Þá aðstoðaði hún við
rekstur hesthúsanna og járnaði
kennsluhrossin um tíma, ásamt því
að taka meirapróf. Árið 2004 flutti
hún í Fljótshlíðina, þar sem unnið
var áfram við þjálfun hrossa, vaktir
á N1 og í Vínbúðinni, ásamt safn-
vörslu í Sögusetrinu á Hvolsvelli.
Að loknu námi í háskólanum í
upphafi árs 2007, var Þuríður ráðin
sem markaðs- og kynningarfulltrúi
Rangárþings eystra, þar sem hún
kom að fjölmörgum verkefnum sem
sneru að ferða-, menningar- og um-
hverfismálum sveitarfélagsins, rak
upplýsingamiðstöð ferðamanna og
Sögusetrið á Hvolsvelli til ársins
2010. Þá kom hún jafnframt að ýms-
um verkefnum tengdum eldgosinu á
Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli
árið 2010. Við þessi verkefni fékk
hún áhuga á krísustjórnun og sam-
skiptum, sem leiddu til áframhald-
andi diplómanáms í markaðs-
samskiptum og almannatengslum
við Opna háskólann í Reykjavík til
vorsins 2012. Í framhaldi nam hún
MBA við Háskólann í Reykjavík,
vann við jeppa- og gönguleiðsögn
ferðamanna hjá Southcoast Advent-
ure og Mountaineers of Iceland.
Í upphafi árs 2013 hóf Þuríður
störf hjá Sambandi sveitarfélaga á
Suðurnesjum sem forstöðumaður
Markaðsstofu Reykjaness við þróun
ferðamála og markaðssetningu á
körfuboltanum og átti allan hennar
frítíma. Í Rangárþingi eystra söng
hún með kvennakórnum Ljósbrá,
var í björgunarsveitinni Dagrenn-
ingu, kvenfélaginu Hallgerði í
Fljótshlíð og var einn af stofnaðilum
ljósmyndaklúbbsins 860+. Þá tók
við áhugi á útivist og fjallgöngum
sem hún lagði stund á fram að fæð-
ingu dóttur sinnar 2018. Hljóðfæra-
leikur hefur ekki komist að á síðustu
áratugum en ef gott partý er með
Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness – 40 ára
Hvannadalshnjúkur Þuríður þriðja frá vinstri ásamt félögum sínum í Björgunarsveitinni Dagrenningu árið 2012.
Eyðibýli endurbyggt í Fljótshlíð
Jökulsárlón Þuríður, Soffía og Arnbjörn. Mæðgurnar Þuríður og Soffía á Covid-fjarfundi.
Til hamingju með daginn
Gunnar Konráðsson og Agnes
Magnúsdóttir eiga í dag, 3. júní, 55
ára brúðkaupsafmæli. Af því tilefni
verður heitt á könnunni á heimili
þeirra laugardaginn 5. júní fyrir gesti
og gangandi.
Árnað heilla
Smaragðsbrúðkaup