Morgunblaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 71
ÍÞRÓTTIR 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2021
HANDBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
KA/Þór leiðir 1:0 í einvígi sínu
gegn Val í baráttunni um Íslands-
meistaratitilinn í handknattleik
kvenna eftir þriggja marka sigur í
fyrsta leik liðanna í KA-heimilinu á
Akureyri í gær.
Rut Jónsdóttir átti stórleik fyrir
KA/Þór og var markahæst með
átta mörk en leiknum lauk með
24:21-sigri Akureyringa.
Valskonur voru með frumkvæðið
framan af en munurinn var þó aldr-
ei meiri en tvö mörk á fyrstu mín-
útum leiksins. Lovísa Thompson
kom Val í 7:5 eftir fimmtán mín-
útna leik en Akureyringar neituðu
að gefast upp og tókst að jafna
metin í 10:10 og þannig var staðan í
hálfleik.
KA/Þór byrjaði seinni hálfleik-
inn af krafti og skoraði fyrstu tvö
mörk síðari hálfleiks. Valskonur
jöfnuðu metin og Lilja Ágústs-
dóttir kom Val tveimur mörkum
yfir, 17:15, þegar fimmtán mínútur
voru til leiksloka.
Þá kom frábær leikkafli hjá KA/
Þór sem skoraði fimm mörk í röð
og allt í einu var staðan orðin 23:19
þegar fimm mínútur voru til leiks-
loka.
Valskonum tókst að minnka for-
skot KA/Þórs í tvö mörk, 21:23, en
lengra komust þær ekki og Ak-
ureyringar fögnuðu sigri.
„KA/Þór gerði vel í sínum fyrsta
alvöru úrslitakeppnisleik. Leik-
menn héldu ávallt áfram þrátt fyrir
að lenda margsinnis tveimur mörk-
um undir. Sóknir þeirra voru ekki
beint snarpar en skynsemin var
allsráðandi. Þær keyrðu kerfin sín
og unnu eftir fyrirfram ákveðnum
kerfum sem skiluðu sér margoft.
Aldís Ásta Heimisdóttir steig svo
upp á lokakaflanum þegar Valur
gerði sig líklegan til að koma til
baka. Matea Lonac og vörnin lok-
aði svo á Val sem átti afar erfitt
með að skora á seinasta kortérinu,“
skrifaði Einar Sigtryggsson m.a. í
umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði
sex mörk fyrir KA/Þór og Matea
Lonac varði fjórtán skot í marki
Akureyringa, þar af tvö vítaköst
frá Lovísu Thompson.
Títtnefnd Lovísa var markahæst
í liði Vals með átta mörk og Sara
Sif Gísladóttir varði tólf skot í
markinu.
Annar úrslitaleikur liðanna fer
fram á Hlíðarenda hinn 6. júní en
vinna þarf tvo leiki til þess að
tryggja sér Íslandsmeistaratit-
ilinn.
Fari svo að Valskonur fagni sigri
á sunnudaginn munu liðin mætast í
oddaleik og hreinum úrslitaleik um
Íslandsmeistaratitilinn hinn 9. júní
í KA-heimilinu á Akureyri.
Bikarinn í augsýn hjá KA/Þór
- KA/Þór vann sigur gegn Val í fyrsta leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Öflug Valskonan Mariam Eradze reynir að verjast Rut Jónsdóttur á Akureyri í gær en Rut var markahæst Akureyringa með átta mörk.
Handknattleiksdeild Fram hefur
gengið frá samningi við hina
sænsku Emmu Olsson og mun hún
leika í Safamýri næstu tvö árin. Ols-
son kemur til Fram frá Önnered í
heimalandinu. Olsson er línumaður
og er henni ætlað að fylla í skarðið
sem Steinunn Björnsdóttir skilur
eftir sig, en Steinunn sleit kross-
band í mars.
Á hinn bóginn er Lena Margrét
Valdimarsdóttir gengin til liðs við
Stjörnuna frá Fram. Lena er 21 árs
gömul og hefur leikið með öllum
yngri landsliðum Íslands.
Lið Fram tekur
breytingum
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Efnileg Lena Margrét Valdimars-
dóttir er á leið í Garðabæinn.
Martin Hermannsson skoraði 6 stig
fyrir Valencia þegar liðið tapaði
65:76 fyrir Baskonia á útivelli í öðr-
um leik liðanna í átta liða úrslitum
spænsku úrslitakeppninnar í körfu-
knattleik í gær.
Þá tók Martin fjögur fráköst og
gaf tvær stoðsendingar en Bas-
konia leiddi með þrettán stigum í
hálfleik, 41:28.
Liðin þurfa því að mætast í odda-
leik um sæti í undanúrslitum en
leikurinn fer fram í Valencia hinn
4. júní. Baskonia er núverandi
meistari á Spáni.
Oddaleikur gegn
meisturunum
Morgunblaðið/Hari
Spánn Martin Hermannsson stend-
ur í ströngu með Valencia.
Ég hef áður tjáð mig á þess-
um vettvangi um líkindi knatt-
spyrnustórveldanna Fram og
Leeds United.
Leeds tryggði sér sæti í
ensku úrvalsdeildinni á þarsíð-
ustu leiktíð og náði síðan gífur-
lega góðum árangri á sínu fyrsta
tímabili í deild þeirra bestu með
snillinginn Marcelo Bielsa á hlið-
arlínunni.
Koma Bielsa gjörbreytti öllu
hjá enska félaginu, sem hafði
ekki verið í efstu deild í sextán
ár. Nú er liðið eitt það skemmti-
legasta á Englandi og verður
áhugavert að sjá komandi ár.
Fram var í svipaðri stöðu og
Leeds. Nokkuð er síðan liðið féll
úr deild þeirra bestu og var fátt
sem benti til þess að Framarar
væru á leiðinni upp um deild á
næstunni. Þá tók goðsögnin Jón
Þórir Sveinsson við og gjör-
breytti félaginu, rétt eins og
Bielsa gerði hjá Leeds.
Undir stjórn Jóns Þóris er
Framliðið orðið gífurlega spenn-
andi og er sem stendur í topp-
sæti 1. deildarinnar með fullt hús
stiga eftir fjóra leiki. Liðið spilar
virkilega skemmtilegan fótbolta
og stefnan er á efstu deild.
Fram var grátlega nálægt
því að fara upp á síðustu leiktíð,
rétt eins og Leeds á fyrsta tíma-
bili Bielsa. Leedsararnir hristu af
sér vonbrigðin og unnu að lokum
öruggan sigur í B-deildinni tíma-
bilið eftir. Framarar hafa nú hrist
af sér vonbrigði síðasta sumars.
Svo má ekki gleyma suðræn-
um töktum, því einn allra besti
leikmaður Leeds á leiktíðinni var
Brasilíumaðurinn Raphinha. Einn
besti leikmaður Fram er Brasilíu-
maðurinn Fred. Tilviljun? Ég held
ekki. Þetta er góð uppskrift að
árangri.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Hamar tók í gær forystuna gegn
Vestra í úrslitarimmu liðanna um
laust sæti í úrvalsdeild karla í
körfuknattleik á næsta keppnis-
tímabili.
Hamar vann fyrsta leikinn í
Hveragerði 88:79 en liðin mætast
næst á Ísafirði á laugardaginn.
Vinna þarf þrjá leiki til að komast
upp um deild. Hamar lagði Selfoss
að velli í undanúrslitum úrslita-
keppninnar og Vestri vann þá
Skallagrím. Breiðablik komst beint
upp í úrvalsdeildina eftir að hafa
unnið 1. deildina.
Spánverjinn Jose Aldana var
áberandi hjá Hamri en hann skor-
aði 19 stig og gaf 11 stoðsendingar.
Aldana hvíldi ekki eina einustu sek-
úndu í leiknum. Sex leikmenn hjá
Hamri skoruðu tíu stig eða meira í
leiknum. Hollendingurinn Ruud
Lutterman skoraði 15 stig og var
næststigahæstur.
Miðherjinn sterki Nemanja
Knezevic frá Makedóníu er drjúgur
fyrir Vestra eins og síðustu ár.
Knezevic tók hvorki fleiri né færri
en 27 fráköst en skoraði einnig 23
stig. sport@mbl.is
Hvergerðingar tóku forystuna
- Unnu fyrsta leikinn gegn Vestfirðingum
Morgunblaðið/Eggert
Hamar Ragnar Jósef Ragnarsson skoraði 11 stig fyrir Hamar.
ÍBV fær Val í heimsókn í átta liða úr-
slitum bikarkeppni kvenna í knatt-
spyrnu, Mjólkurbikarnum, á Há-
steinsvöll í Vestmannaeyjum en
dregið var í átta liða úrslitin í höf-
uðstöðvum Sýnar á Suðurlandsbraut
í gær.
Þetta er þriðja árið í röð sem liðin
mætast í bikarkeppninni en Valur
hefur haft nokkra yfirburði í einvíg-
um sínum gegn ÍBV undanfarin tvö
tímabil, en Valur vann 7:1-sigur í
Vestmannaeyjum sumarið 2019 og
3:1-sigur á Hlíðarenda síðasta sumar.
Þá fer fram annar úrvalsdeildar-
slagur á Selfossi þar sem Selfyss-
ingar taka á móti Þrótti úr Reykjavík
en síðast þegar bikarinn fór á loft var
hann í höndum Selfyssings, sumarið
2019, en bikarkeppnin var blásin af
síðasta sumar vegna kórónuveiru-
faraldursins.
Í Árbænum tekur Fylkir á móti
fyrstudeildarliði FH sem sló Þór/KA
úr leik eftir vítakeppni og Íslands-
meistarar Breiðabliks fá topplið
fyrstu deildarinnar, Aftureldingu, í
heimsókn.
Valur hefur oftast unnið bikar-
keppnina eða þrettán sinnum og
Breiðablik kemur þar á eftir með tólf
bikarsigra. ÍBV hefur tvívegis orðið
bikarmeistari og Selfoss einu sinni en
Fylkir, Þróttur, FH og Afturelding
hafa aldrei fagnað sigri í bikarkeppn-
inni.
Allir leikirnir fara fram 25. júní en
undanúrslitin verða leikin 16. júlí og
úrslitaleikurinn, sem fram fer á
Laugardalsvelli, fer fram 1. október.
Mætast þriðja
árið í röð