Morgunblaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2021 Imac strigaskór Stærðir: 37-42 13.594.- / 16.995.- Imac strigaskór Stærðir: 37-42 13.594.- / 16.995.- KAUPHLAUP Í SMÁRALIND 3.-7. JÚNÍ! Imac sandalar Stærðir: 37-42 10.396.- / 12.995.- Imac sandalar Stærðir: 37-42 10.396.- / 12.995.- SMÁRALIND - SKÓR.IS S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE AF ÖLLUM SKÓM FRÁ VAGABOND MARCOTOZZI SKECHERS PUMA RIEKER IMAC 20% SVIÐSLJÓS Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum Tilviljun eða tilviljun ekki? Nú er verið að dusta rykið af hugmynd sem Þorbjörn Sigurgeirsson jarð- fræðingur fékk þegar hann var að borða saltfisk með hamsatólg. Þá stóð gosið í Surtsey sem hófst haustið 1963 sem hæst. Hann situr við matarborðið heima hjá sér og sér að feitin lýtur sömu lögmálum og bráðið hraun. Storknar eftir því sem hún rennur lengra. Það kviknar hugmynd. Má hægja á og jafnvel stöðva hraun með því að dæla á það vatni eða sjó? Fyrst var þetta reynt í litlum mæli í Surtsey og svo í stórum stíl á Heimaey í gosinu 1973. Þá tókst að bjarga miklum verðmætum og sjálfri höfninni, lífæð Vestmanna- eyja. Nú tæplega hálfri öld seinna er skoðað hvort bjarga megi verð- mætum á Reykjanesi, fari hraun frá Geldingadölum að ógna mann- virkjum. Líka ef byrjar að gjósa nærri byggð og lykilinnviðir eins og orkuverið í Svartsengi verða í hættu. Á laugardag verður frumsýnd í Vestmannaeyjum myndin Eldhug- arnir, gluggi vonarinnar sem segir sögu Heimaeyjargossins með áherslu á hraunkælinguna. Brunn- ur sem vísindamenn og aðrir geta sótt í þegar taka á ákvarðanir um hvað gera skal ógni hraun verð- mætum á Reykjanesi eða annars staðar á landinu. Öflugur hópur Heimildarmyndin Eldhugarnir fjallar um Vestmannaeyjagosið ár- ið 1973, hætturnar sem það hafði í för með sér og árangursríkt björgunarstarf heimamanna. Að henni standa öflugir menn með víðtæka reynslu. Sögumaður er Gísli Pálsson, mannfræðingur og rithöfundur sem fæddist og ólst upp í Vestmannaeyjum. Með hon- um eru Valdimar Leifsson, marg- reyndur kvikmyndagerðarmaður og leikstjóri, og Ari Trausti Guð- mundsson, jarðfræðingur og þing- maður, og saman skrifa þeir þrír handritið. Eldhugarnir sem rætt er við í myndinni varpa ljósi á þetta ein- staka verkefni og þær áskoranir sem því fylgdu. Meðal annars er rætt við Arnar Sigurmundsson, Hólmfríði Sigurðardóttur, Írisi Róbertsdóttur, Ragnar Baldvins- son, Sigrúnu Sigurgeirsdóttur, Sigurð Þ. Jónsson, Svanhildi Gísladóttur, Svavar Steingrímsson og Pál Zóphóníasson, sem þá var bæjartæknifræðingur og síðar bæjarstjóri sem öll hafa sína sýn á það sem gerðist. Þá er brugðið upp mynd af fyrsta bæjarstjórn- arfundi í gosinu þar sem Páll Magnússon alþingismaður bregð- ur sér í hlutverk föður síns, Magnúsar Magnússonar bæjar- stjóra. Í myndinni, sem Valdimar stýr- ir og framleiðir á vegum Lífs- myndar, ferðast Gísli um æsku- slóðirnar á Heimaey í fylgd eins eldhuganna, frænda síns Sigurðar Óskarssonar sem er öllum hnútum kunnugur og fylgir sögumanni á fund mannanna sem glímdu við það verkefni að kæla hraun- strauminn frá eldfjallinu í því skyni að bjarga byggðinni og höfninni. Gísli fléttar inn í frá- sögnina hugleiðingum sínum um umhverfisvanda mannkyns á tím- um hamfarahlýnunar. Ráðist gegn vánni Nú, eins og í björgunarstarfinu í gosinu, veltur mikið á að sam- Ljósmynd/Gísli Pálsson Viðmælandi Sigurður Óskarsson var meðal þeirra sem börðust við hraunflæðið vorið 1973. Ljósmynd/Valdimar Leifsson Tökumaður Valdimar Leifsson við tökur í Vestmannaeyjum. Hann leikstýrði einnig myndinni. Hamsatólgin kveikti hugmynd - Heimildarmyndin Eldhugarnir: Gluggi vonarinnar frumsýnd í Eyjum um helgina - Fjallar um baráttuna við hraunið í Heimaeyjargosinu 1973 þegar kælingu var beitt til að stöðva rennslið Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Eldhugar Aðstandendur myndarinnar um Heimaeyjargosið á toppi Eldfells. Frá vinstri eru Ari Trausti Guðmunds- son, Gísli Pálsson, Ragnar Th. Sigurðsson, Ásdís Gissurardóttir, Valdimar Leifsson og Bryndís Kristjánsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.