Morgunblaðið - 03.06.2021, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2021
Heimir Bergmann
Löggiltur fasteigna- og
skipasali og löggiltur
leigumiðlari.
Sími 630 9000
heimir@logheimili.is
Kristín
Skjaldardóttir
Löggiltur fasteignasali
Sími 824 4031
kristin@logheimili.is
Ásgeir þór
Ásgeirsson
Löggiltur fasteignasali og
lögfræðingur
Sími 772 0102
asgeir@logheimili.is
Guðmundur Ólafs
Kristjánsson
Löggiltur fasteigna-
og skipasali
Sími 847 0306
gudmundur@logheimili.is
Unnur Alexandra
Nemi til löggildingar
fasteignasala og
viðskiptalögfræðingur
Sími 788 8438
unnur@logheimili.is
Sólrún Aspar
Hefur lokið námi til
fasteignasala.
Sími 862 2531
solrun@logheimili.is
Jónas H. Jónasson
Nemi til löggildingar
fasteignasala
Sími 842 1520
jonas@logheimili.is
Skipholti 50d, 105 Reykjavík
Skólabraut 26, 300 Akranesi
530 9000 • www.logheimili.is
Ertu í sölu-
hugleiðingum?
Getum bætt
við eignum á
söluskrá
Fagmennska og traust
í meira en áratug
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
L
eiðarljós mitt sem stjórn-
andi fyrirtækis er að
starfsmannahópurinn sé
fjölbreyttur. Slíkt skapar
orku og farveg fyrir sköpun sem við
þurfum sterklega á að halda í al-
þjóðlegu umhverfi,“ segir Sigríður
Hrund Pétursdóttir sem á dögunum
var kjörin formaður Félags kvenna í
atvinnulífinu.
„Mikilvægt er að gefa starfsfólki
svigrúm til að blómstra og uppskera.
Síðan þurfum við sjálf að leita leiða til
persónulegs þroska meðal annars hjá
samferðafólki okkar. Engum sem við
hittum fylgir handbók um viðhorf,
reynslu eða hugmyndir viðkomandi.
Allir hafa þó ósýnilegan bakpoka full-
an af reynslu og þekkingu sem getur
verið dýrmætt og jafnvel ómetanlegt
innlegg. Vegferð stjórnandans er oft
að ná því ósýnilega fram í samstarfs-
fólki og auðvitað gleðjast yfir því þeg-
ar fólk dafnar í lífi og starfi.“
Gefa fólki tækifæri
til vaxtar og þroska
Um 1.200 konur eiga aðild að
FKA; sem stofnað var árið 1999. Fé-
lagið á samstarf við fyrirtæki, fé-
lagasamtök, opinbera aðila og fleiri á
vinnumarkaði um eflingu þáttar
kvenna í atvinnulífinu; rekstri, ný-
sköpun og stjórnun. Einnig stendur
félagið að ýmiss konar fræðsluverk-
efnum og kynningum, sem miða að
því að gera konur í atvinnulífinu,
jafnt stjórnendur, leiðtoga sem at-
vinnurekendur, sýnilegri í störfum
sínum. Er slíkt meðal annars gert
með fjölbreyttu viðburðahaldi, átaks-
verkefnum og viðurkenningum til
kvenna sem á einhvern máta eru leið-
andi fyrirmyndir.
„Á starfsferli mínum hef ég
staldrað við á nokkrum stöðum en
síðustu 10 ár hef ég verið sjálfstætt
starfandi ásamt eiginmanni mínum,
Baldri Ingvarssyni framkvæmda-
stjóra. Hef komið að frumkvöðla-
starfi, fjárfestingum og ráðgjöf við
verkefnastjórn og gæðamál, meðal
annars í rekstri okkar eigin félaga,
segir Sigríður Hrund. Eitt þessara
fyrirtækja eru Vinnupallar ehf. í
Garðabæ, fyrirtæki sem veitir mann-
virkja- og byggingariðnaði þjónustu.
Öryggismál eru áhersluþáttur í
rekstrinum, enda eru vinnuslys
þekktur og sár veruleiki í bygginga-
starfsemi. „Mér finnst mikilvægt að
vera samferða börnum mínum í
þeirra lífi og hef iðulega valið að sitja
í stjórnum foreldrafélaga eða íþrótta-
deilda þar sem börnin hafa tekið þátt.
Einnig hef ég kennt 6-9 ára börnum
vísindi og finnst afar skemmtilegt. Að
sjá sprotana blómstra og gefa fólki
tækifæri til vaxtar og þroska er
skemmtilegt.“
Konur séu drífandi,
hugrakkar og skapandi
FKA á að vera leiðandi í starfi
og mótandi afl í íslensku samfélagi,
segir Sigríður Hrund.
„Reynsla og þekking fé-
lagskvenna er marglaga og mikil.
Starf félagsins er því til samræmis
fjölbreytt og kraftmikið og í sífelldum
endurbótum eins og góðra félaga er
siður. Við nýtum okkur tæknina til
hins ýtrasta sem skapar vettvang fyr-
ir fjölbreytni og öfluga tengslamynd-
um kvenna úr öllum greinum at-
vinnulífsins. Í gegnum starf félagsins
myndast tengslanet og vinátta. Fé-
lagskonum hugnast best að valdefla
hver aðra, tala upp og áfram. Okkar
er að vera drífandi, hugrakkar og
skapandi og nýta tækifæri. Fjöl-
breytni er að mínu mati lykillinn að
jafnrétti.“
Sigríður Hrund á að baki fjöl-
breyttan feril í atvinnulífinu. Hefur
háskólamenntun í viðskiptafræði,
stefnumótun, gæðamálum og verk-
efnastjórnun. Starfaði um sinn hjá
Norðuráli, en síðustu árin í eigin
rekstri, sem fyrr segir.
„Brýnasta verkefnið í dag – til að
styrkja stöðu kvenna í atvinnulífinu –
er að fá einkageirann og þá sem stýra
opinberri starfsemi til að veita jafnt
aðgengi að störfum óháð hefð-
bundnum jafnréttisbreytum, eins og
aldri, kyni og uppruna. Fjölbreytni er
það besta sem samfélaginu býðst til
framþróunar og þroska.“
Þurfum að horfa til
nýrra mælikvarða
Gróskan innan FKA er mikil og
samtakamátturinn sterkur,“ segir
Sigíður og heldur áfram: „Fjöl-
breytni í starfi okkar er einstök; bæði
eru innan félagsins atvinnurekendur
og konur í leiðtoga-, sérfræði- og
stjórnunarstöðum. Góð aldursdreif-
ing er meðal félagskvenna, sérstök
deild er fyrir nýja Íslendinga og þrjár
dreifbýlisdeildir. Covid hefur reynd-
ar lækkað og jafnvel fellt hólfaskipt-
ingar alfarið innan félagsins, sem er
bæði hvetjandi til aukinnar samvinnu
og samstarfs. Félagsstarf innan FKA
hefur mikið farið fram í netheimum
síðustu misserin, sem hefur í raun eflt
starfið.“
Hvað má kalla karllæg gildi og
eru þau of áberandi í atvinnulífinu?
Hverju þarf að breyta?
„Ég kýs að hafna hugtakinu
karllæg gildi. Segi frekar að við höf-
um um of horft á á hefðbundna mæli-
kvarða sem tengjast afkomu og ár-
angri fyrirtækja hvað fjárstyrk
varðar og fjármálatengd hugtök. En
nú breytist heimurinn afar hratt og
umhverfisvitund okkar knýr okkur til
að hugsa uppsetningu fyrirtækja,
stofnana og atvinnulífs upp á nýtt,
segir Sigríður og að lokum:
„Samhangandi mælikvarðar eins
og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóð-
anna knýja okkur til að breyta hratt –
þar á meðal jafnrétti í samfélaginu og
að taka fjölbreytni af fullum krafti.
Það mun verða okkur gæfuspor til
framtíðar. Að vinna saman að því að
raungera ákvörðunina um jafnrétti er
okkar sterkasta tækifæri til sam-
keppnishæfni á alþjóðamarkaði og
styrk stoð í kröftugt efnahagslíf.“
Fjölbreytni af fullum krafti
Eigum að vera leiðandi
í starfi og mótandi afl
í íslensku samfélagi.
Þetta segir Sigríður
Hrund Péturdóttir, sem
er nýr formaður Félags
kvenna í atvinnulífinu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson
Atvinnulíf Höfum um of horft á hefðbundna mælikvarða sem tengjast afkomu og árangri fyrirtækja hvað fjárstyrk
varðar og fjármálatengd hugtök. En nú breytist heimurinn afar hratt, segir Sigríður Hrund hér í viðtalinu.
Vegferð stjórnandans
er oft að ná því ósýni-
lega fram í samstarfs-
fólki og auðvitað gleðj-
ast yfir því þegar fólk
dafnar í lífi og starfi.
Næstkomandi laugardag, 5. júní,
verður í Þórsmörk haldinn viðburð-
urinn Göngum saman. Markmið við-
burðarins er að koma saman og fara
hina frábæru gönguleið Þórsgötu og
safna um leið fé til styrktar rann-
sóknum á brjóstakrabbameini.
Ferðaþjónustufyrirtækið Volcano
trails, í samvinnu við styrktarfélagið
Göngum saman, hefur skipulagt frá-
bæra dagskrá þar sem boðið verður
upp á rútuferðir, göngu, grillveislu og
kvöldvöku við varðeld. Gönguleið-
sögn verður um tvær leiðir; Merkur-
eða Tindfjallahringinn.
Þátttakendur greiða skráningar-
gjald sem fer í styrktarsjóð Göngum
saman, auk þess sem Volcano trails
leggur fram mótframlag. Fjölmargir
þátttakendur hafa þegar skráð sig.
Því má búast við að Mörkin verði ið-
andi af lífi á laugardag. Sjá má meira
á volcanotrails.is.
Göngum sam-
an í Þórsmörk
Þórsmörk Litið til Langadals.
Skemmtun á fallegum stað
Handritamál
verða til umfjöll-
unar á fundi sem
Sagnfræðinga-
félag Íslands
stendur fyrir í
Neskirkju í
Reykjavík og
hefst kl. 17 í dag.
Nú, 50 árum
eftir að Flateyj-
arbók og Konungsbók eddukvæða
voru afhentar Íslendingum með við-
höfn, eru uppi hugmyndir um að
endurskoða skiptingu handritanna.
Á málþingi Sagnfræðingafélags Ís-
lands ræða fimm fræðimenn um
handritakröfur fyrr og nú.
Hver á handritin og hvar eiga
þau að vera? Hvaða áhrif hafa lög-
fræði, tilfinningar, þjóðarstolt og
stjórnmál á stöðu handritanna?
Þetta og fleira er til umfjöllunar
þar sem tala Guðrún Nordal, for-
stöðumaður Stofnunar Árna Magn-
ússonar í íslenskum fræðum, Lilja
Alfreðsdóttir menntamálaráðherra,
Már Jónsson, prófessor í sagnfræði
við Háskóla Íslands, Gottskálk
Jensson, rannsóknardósent við
Kaupmannahafnarháskóla, og
gestaprófessor við HÍ – og fleira
gott fólk.
Þingað í Neskirkju
Guðrún Nordal
Handritamál